Þrír látnir eftir sprengingu á Jersey Að minnsta kosti þrír eru látnir og rúmlega tíu manns er enn saknað eftir sprengingu í íbúðarhúsnæði á eyjunni Jersey í Ermarsundi. Viðbragðsaðilar hafa unnið stanslaust í tæpan sólarhring við að leita í rústunum. 11.12.2022 07:47
Með hnífa að hóta dyravörðum Tveir menn voru handteknir í miðbæ Reykjavíkur í nótt eftir að hafa haft í hótunum við dyraverði. Mennirnir voru vopnaðir hnífum og bareflum og vistaðir í fangageymslu lögreglu. 11.12.2022 07:20
Jólalestin fer sinn árlega hring í dag Jólalest Coca-Cola leggur af stað klukkan 17 í dag. Lestin er á leiðinni í sinn 27. hring um höfuðborgarsvæðið en hægt verður að fylgjast með hvar hún er í rauntíma í gegnum nýja vefsíðu. 10.12.2022 14:54
Sex hundruð Úkraínumenn á jólaballi í Vesturbænum Úkraínskt og íslenskt jólaball verður haldið í samfélagshúsi fyrir flóttamenn frá Úkraínu í dag. Von er á um sex hundruð manns í hangikjöt og annan jólamat. Talsmaður samtakanna sem skipuleggur ballið þakkar Íslendingum fyrir velvild í garð flóttamanna. 10.12.2022 14:36
Tengdafaðir Alaba og stjörnukokkurinn Frank Heppner handtekinn Frank Heppner, þýskur stjörnukokkur og tengdafaðir knattspyrnumannsins David Alaba, er meðal þeirra sem hafa verið handteknir vegna tengsla við hægri öfga-hópinn Reichsburger. Heppner var handtekinn á veitingastað sínum í Austurríki í aðgerðum lögreglunnar. 10.12.2022 13:56
Inga grét á Alþingi er hún ræddi eingreiðslur til öryrkja og aldraðra Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, brast í grát er hún ræddi eingreiðslu til öryrkja á Alþingi í dag. Hún ræddi um þegar hún var á þeim stað að geta ekki haldið jól sjálf. 10.12.2022 13:04
Sterkustu skákmenn landsins mætast á Selfossi Hlaðvarpsþátturinn Chess After Dark stóð fyrir Íslandsmótinu í atskák sem fór fram í dag á Selfossi. Sterkustu skákmenn landsins mættust en alls voru fjórir stórmeistarar skráðir til leiks. 10.12.2022 12:50
Parks and Recs leikkonan Helen Slayton-Hughes er látin Bandaríska leikkonan Helen Slayton-Hughes er látin, 92 ára að aldri. Slayton-Hughes er best þekkt fyrir hlutverk sitt í þáttunum Parks and Recreation. Fjölskylda hennar greindi frá andlátinu á Facebook í dag. 10.12.2022 11:28
Varaforseti Evrópuþingsins grunaður um spillingu Evu Kaili, einni af fjórtán varaforsetum Evrópuþingsins, hefur verið vikið úr stjórnmálaflokk sínum í heimalandinu vegna gruns um spillingu. Henni hefur einnig verið vikið úr þingflokknum á Evrópuþinginu. 10.12.2022 09:37
Sonur Tinu Turner er látinn Ronnie Turner, sonur Ike og Tinu Turner, er látinn, 62 ára að aldri. Ekki er vitað hvað dró hann til dauða en hann hafði glímt við ýmsa heilsukvilla síðustu ár. 10.12.2022 08:33