Lögðu hald á hundrað kíló af kókaíni Þrír þeirra sem handteknir voru í aðgerðum lögreglu fyrir tæpum tveimur vikum voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna stórtæks fíkniefnainnflutnings. Mennirnir eru taldir hafa flutt inn tæplega hundrað kíló af kókaíni. 17.8.2022 16:06
Gossvæðið áfram lokað Gossvæðið í Meradölum verður áfram lokað í kvöld og í nótt. Tekin verður ákvörðun um hvenær svæðið verður opnað á fundi viðbragðsaðila klukkan hálf níu í fyrramálið. 17.8.2022 15:18
Björguðu manni úr sjónum við Garð Björgunarsveitin Ægir í Garði fékk í morgun útkall vegna manns sem talið var að væri í sjónum. Björgunarsveitin fann manninn heilan á húfi og var honum komið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. 17.8.2022 15:12
Gekk um Hafnargötu með öxi Karlmaður var í dag handtekinn fyrir aftan húsgagnaverslunina Bústoð við Tjarnargötu í Keflavík af sérsveit og lögreglunni á Suðurnesjum. Maðurinn hafði gengið eftir Hafnargötu með öxi. 17.8.2022 14:19
Von á ágætisveðri á Menningarnótt Veðurspáin lítur ágætlega út fyrir þá sem ætla sér að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn. Engin úrkoma er í kortunum og nokkuð bjart og fínt veður verður framan af degi. 17.8.2022 13:23
Biðja um leyfi stjórnvalda til að hækka verð á núðlum Fimm af stærstu núðluframleiðendum Taílands hafa óskað eftir því að fá að hækka verðið á skyndinúðlum sínum. Verðið á núðlunum þar í landi hefur ekki hækkað í fjórtán ár. 17.8.2022 12:55
Spá 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir hækki um 0,75 þann 24. ágúst næstkomandi þegar peningastefnunefnd Seðlabankans fundar. Stýrivextir fara þá í 5,5 prósent en vextirnir hafa ekki verið hærri síðan árið 2016. 17.8.2022 11:19
Aðgerðir Seðlabankans farnar að hafa áhrif Hækkun vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli hækkaði um 0,5 prósent milli mánaða en í sérbýli um 3,7 prósent. Hagfræðideild Landsbankans telur þetta vera merki um að aðgerðir Seðlabankans til þess að bæta fasteignamarkaðinn séu að virka. 17.8.2022 10:49
Ekkert útivistarveður við gosstöðvarnar í dag Lokað er inn á gossvæðið í Meradölum í dag og verða allir sem ætla Suðurstrandarveginn stoppaðir og rætt við þá. Spáð er vonskuveðri í dag, allt að 23 metrum á sekúndu ásamt talsverðri rigningu. 17.8.2022 09:56
Rúmlega þriðjungur klárar bakkalárnám á tilætluðum tíma Af þeim nýnemum sem hófu þriggja ára nám til bakkalárgráðu í háskólum á Íslandi árið 2014 kláruðu rúmlega þriðjungur það á tilætluðum tíma eða 38 prósent. Rúmlega 68,5 prósent nemenda kláruðu námið á sex árum eða skemur. 17.8.2022 09:36