Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Tískuhönnuðurinn Berglind Hlynsdóttir hannar undir nafninu Bosk og hefur vakið athygli fyrir einstakar og litríkar töskur. Það er búið að vera mikið um að vera hjá Berglindi í kringum HönnunarMars og er hún gjarnan með marga bolta á lofti en hún gaf sér tíma til þess að veita lesendum Vísis innsýn í töskuna sína í fasta liðnum Hvað er í töskunni? 2.5.2024 11:31
Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Það var líf og fjör í nýja Landsbankahúsinu á laugardag þegar fatahönnuðir framtíðarinnar komu saman og settu upp lifandi sýningu. 29.4.2024 20:00
Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands fór fram með pomp og prakt í Hörpu á föstudagskvöld. Fatahönnuðir framtíðarinnar sýndu útskrifarverk sín við frábærar undirtektir gesta. Bjarni Einarsson tökumaður Vísis var á staðnum og tók upp sýninguna en hana má sjá í heild sinni í spilaranum hér í pistlinum. 29.4.2024 15:01
„Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ „Textarnir mínir fjalla um mína upplifun af ástinni og þar fer ekki á milli mála að ég sé að tala um stráka,“ segir tónlistarmaðurinn Torfi Tómasson eða TORFI. Hann sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu á sumardaginn fyrsta. Platan ber titilinn EITT og er tilraunakennd poppplata sem inniheldur hinsegin ástarljóð, samin fyrir hinsegin klúbba sem að fyrirfinnast ekki á Íslandi. 29.4.2024 12:01
Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi Lífskúnstnerinn Ingunn Ýr Angantýsdóttir hefur gaman að því hvað tískan getur verið óútreiknanleg. Hún er tveggja barna móðir búsett í Ólafsvík og lýsir sjálfri sér sem strangheiðarlegri dreifbýlistúttu á Snæfellsnesi. Ingunn Ýr er með einstakan og glæsilegan stíl en hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 27.4.2024 11:30
„Það er einmanalegt að missa móður“ „Ég ætlaði alls ekki í leiklist. Þú getur samt aldrei flúið frá kölluninni og þér sjálfri, úr hverju þú ert og við hvað þú elst upp. Maður er nú genasamsetning foreldra sinna,“ segir leikkonan Unnur Birna J. Backman. Unnur er dóttir Eddu Heiðrúnar Backman heitinnar og Jóns Axels Björnssonar myndlistarmanns og er alin upp í kringum mikla list. Hún ræddi við blaðamann um móðurmissinn, uppeldið, leiklistina, stöðuga þróun á sjálfri sér, hvernig hreyfing bjargaði lífi hennar og margt fleira. 27.4.2024 07:00
„Elska að hafa skipulagt kaos“ Fatahönnuðurinn Aníta Hirlekar stendur á tímamótum þar sem hún og kollegi hennar Magnea eru að opna nýja verslun við Hafnartorg. Þær fögnuðu opnuninni með pompi og prakt í gær og hafa síðustu dagar því verið mjög viðburðaríkir en Aníta gaf sér þó tíma til að opna tösku sína fyrir lesendum Vísis hér í fasta liðnum Hvað er í töskunni? 25.4.2024 11:30
Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun „Áfram íslensk tónlist,“ sagði María Rut framkvæmdastjóri nýrrar tónlistarmiðstöðvar við opnun. Tónlistarmiðstöð var formlega opnuð þann 23. apríl í nýjum höfuðstöðvum við Austurstræti 5 í Reykjavík. Á eftir var opið hús þar sem gestir gátu hitt starfsfólk miðstöðvarinnar og skoðað nýjar höfuðstöðvar. 24.4.2024 13:00
Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu Síðastliðinn laugardag hélt tónlistarmaðurinn og rapparinn ISSI útgáfutónleika í Gamla Bíó fyrir væntanlega plötu sína 21. Platan er enn óútgefin en uppselt var á tónleikana. 24.4.2024 12:00
„Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ „Ég hef alltaf haft áhuga á tísku og klæðnaði en bjóst seint við að taka áhugamálið á þetta stig,“ segir fatahönnuðurinn Björn Hugason. Hann mun frumsýna fatalínu undir sama nafni á Hönnunarmars í Kiosk, Grandagarði 35 næstkomandi fimmtudag. 23.4.2024 17:00