Fréttamaður

Eiður Þór Árnason

Eiður Þór er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Það er auka­at­riði í þessu hvað ég var lengi þarna“

Fyrirtækið Green Parking segir rangfærslur hafa komið fram í umfjöllun um ökumann sem rukkaður var um vangreiðslugjald þegar hann lagði bíl við Domino‘s í Nóatúni í Reykjavík. Ekki sé rétt að fólk þurfi að vera með app í síma til að geta lagt þar frítt í 45 mínútur.

Komst á­fram fyrst ís­lenskra kvenna á vængjum fjall­konunnar

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, hefur tryggt sér sæti í aðalkeppni Bocuse D’Or. Hún keppti í dag í stærstu kokkakeppni Evrópu og er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd. Þema hennar í keppninni var fjallkonan og íslenski þjóðbúningurinn.

Til­kynnt um mann með sverð

Lögreglu var í dag tilkynnt um mann með sverð og var hann sagður „talsvert æstur“ á meðan hann sótti sér þjónustu á ónefndum stað á höfuðborgarsvæðinu. Sverðið reyndist vera eftirlíking en þegar laganna verðir komu á staðinn sást maðurinn sveifla því á meðan hann gekk á miðri akbraut, að sögn lögreglu.

Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð

Hversu vel fylgdist þú með í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum.

Frétta­tía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson

Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis.

Á­ætla að 188 frelsis­sviptir út­lendingar hefðu verið vistaðir í nýja úr­ræðinu

Áætlað er að 188 einstaklingar hefðu verið vistaðir í fyrirhugaðri brottfararstöð á síðasta ári ef úrræðið hefði verið til staðar. Þetta er mat heimferðar- og fylgdardeildar ríkislögreglustjóra. Það byggir á tölum yfir fólk sem fylgt var úr landi árið 2025 og hefði mögulega uppfyllt skilyrði lagafrumvarpsins sem er til umræðu í þinginu. 

Á annan tug ferða­langa fastir á Holta­vörðu­heiði

Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tug ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Þó nokkuð hefur verið um að björgunarsveitir hafi aðstoðað ferðalanga sem hafa fest bíla sína í dag.

Þó nokkur snjó­flóð fallið og loka Flat­eyrar­vegi í kvöld

Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðan­verðum Vest­fjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flat­eyrar­vegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóða­hættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvestur­landi og við Hellis­heiði.

Kristinn ekki bæn­heyrður

Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál Kristins Jens Sigurþórssonar, fyrrverandi prests í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, gegn Þjóðkirkjunni. Hann fór fram á skaðabætur eftir að prestakall hans var lagt niður árið 2019 og um leið embætti hans. Landsréttur sýknaði kirkjuna af kröfum Kristins í nóvember og vildi hann í kjölfarið áfrýja til Hæstaréttar.

Mátti kalla fjárfesta „nú­tíma þrælahaldara“

Hjálmar Friðriksson blaðamaður á Samstöðinni hefur verið sýknaður í Landsrétti af stefnu þriggja fjárfesta og félags þeirra vegna ummæla í fréttum í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023. Fjárfestarnir og félagið þurfa að greiða honum 1,4 milljónir króna í málskostnað.

Sjá meira