Ísland mælist meðal fremstu ríkja í netöryggismálum Ísland er komið í hóp þeirra ríkja sem þykja standa sig hvað best í netöryggismálum á heimsvísu samkvæmt nýrri alþjóðlegri úttekt. Mikilvægt er að gefa ekkert eftir þar sem ógnin fer vaxandi að sögn iðnaðarráðherra. Aukin áhersla verður lögð á netöryggi barna í aðgerðaráætlun stjórnvalda í netöryggismálum. 14.9.2024 15:19
Ráðherra og nýr nefndarformaður ósammála: „Almenningur á betra skilið“ Fjármálaráðherra og verðandi formaður fjárlaganefndar eru ósammála um hvort endurnýja skuli almenna heimild til að nýta séreignasparnað inn á húsnæðislán. Þingmaður Pírata segir stjórnarmeirihlutann með þessu senda misvísandi skilaboð til almennings sem lofi ekki góðu fyrir komandi þingvetur. Almenningur eigi betra skilið. 14.9.2024 14:04
Mögulega rangar ADHD-greiningar kalli á aukið opinbert eftirlit Mikilvægt er að komast til botns í því hvort ADHD sé ofgreint á Íslandi segir heilbrigðisráðherra. Varaformaður ADHD-samtakanna segir varhugavert að draga ályktanir um rangar greiningar en ef rétt reynist þurfi aukið eftirlit. 13.9.2024 20:31
„Ég stend við þessa ákvörðun“ Dómsmálaráðherra stendur keik við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Hún segir eðlilegt að fram komi ólík sjónarmið enda eigi málið sér fá sem engin fordæmi. Ríkissaksóknari telur umræðu um málið hafa verið óvægna gagnvart embættinu. 13.9.2024 19:26
„Þetta er ákall frá ungmennunum sjálfum“ Formaður Samfés vonar að tilveruréttur félagsmiðstöðva og ungmennahúsa verði festur í sessi í framhaldi af boðuðum aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Hann segir ungt fólk sjálft kalla eftir því að hafa meiri og betri aðgang að félagsmiðstöðvum, starfsemi sem hafi sannað forvarnargildi sitt. 11.9.2024 21:59
Sjö ár frá síðustu stefnuræðu Bjarna sem forsætisráðherra Bjarni Benediktsson flytur fyrstu stefnuræðu sína sem forsætisráðherra síðan 2017 á Alþingi í kvöld. Meðal mála á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar í haust er frumvarp um verslun með áfengi á netinu, en málið var til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun. 11.9.2024 13:52
Trump verði áfram Trump en meira í húfi fyrir Harris Mikil eftirvænting ríkir fyrir fyrstu, og mögulega einu, kappræðunum á milli forsetaframbjóðendanna Donalds Trump og Kamölu Harris sem verður sjónvarpað frá Pennsylvaníu í nótt. Það er meira í húfi fyrir Harris en Trump að mati sérfræðings, þótt Trump sé minna spenntur fyrir að mæta Harris en hann var fyrir að mæta Biden. 10.9.2024 20:02
Viðbúinn átökum á Alþingi í vetur Það er viðbúið að átakavetur sé framundan í stjórnmálum að sögn forseta Alþingis, sem vonar þó að þingstörf fari fram með skikkanlegum hætti. Síðasti þingvetur fyrir alþingiskosningar hefst í dag þegar þing verður sett síðdegis. Yfir tvö hundruð mál eru á þingmálaskrá. 10.9.2024 12:17
„Við sáum átta metra ofan í jörðina“ Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Ekki er öruggt að vera í húsinu og þarf þónokkur vinna að fara fram áður en hægt yrði að hleypa fólki þar inn. Bæjarfulltrúar kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og menningarmiðstöðin Kvikan var opin í fyrsta sinn í tíu mánuði. 9.9.2024 20:02
Á þriðja hundrað kíló tekin á landamærunum Ríflega 230 kíló, tæpir tíu lítrar og 40 þúsund töflur af ólöglegum fíkniefnum hafa verið haldlögð á landamærum Íslands það sem af er þessu ári. Alls hefur verið lagt hald á 21 tegund fíkniefna, þar á meðal rúmlega 22,5 kíló af kókaíni, yfir 140 kíló af marijúana og tæplega nítján þúsund töflur af MDMA. Í heildina er um að ræða nokkuð meira magn fíkniefna en haldlagt var á sama tímabili í fyrra, að undantöldum fíkniefnum í vökvaformi sem haldlögð voru í meira magni á síðasta ári. 5.9.2024 07:03