Yfir áttatíu milljónir í reiðufé haldlagðar á landamærum Tollayfirvöld hafa það sem af er þessu ári lagt hald á tæplega 82,5 milljónir í reiðufé á landamærum Íslands. Það er meira fjármagn en haldlagt var á landamærum allt árið í fyrra þegar lagt var hald á rúmar 75 milljónir króna. 4.9.2024 07:03
Þénuðu hvorki né eyddu meiru en 550 þúsund Eiríkur Ingi Jóhannsson og Viktor Traustason, sem báðir gáfu kost á sér til embættis forseta Íslands, eyddu hvorki né þénuðu meiru en 550 þúsund krónum í tengslum við framboð sín. Þeir hafa báðir skilað inn yfirlýsingu þess efnis til Ríkisendurskoðunar. 3.9.2024 14:47
Allt á suðupunkti í flokki utanríkisráðherrans Moteraterne, flokkur Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur, er í krísu og hefur vinnustaðasálfræðingur verið kallaður til til að bregðast við eitraðri vinnustaðamenningu sem sögð er viðgangast innan flokksins. Þá hefur verið ákveðið að koma upp nafnlausu ábendingakerfi þar sem hægt verður að tilkynna um óæskilega háttsemi, áreitni eða ofbeldi í kjölfar hneykslismála sem upp hafa komið hjá flokknum. 3.9.2024 14:10
Fundaði með ráðherrum vegna vopnaburðar ungmenna Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að setja aukinn kraft í aðgerðir og forvarnir til að sporna gegn aukinni ofbeldishegðun og vopnaburði barna sem vart hefur orðið við að undanförnu. Sigríður fundaði með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem kynntar voru tillögur að frekari aðgerðum til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin. 3.9.2024 13:12
Ekkert uppgjör frá tveimur framboðum og Halla og Katrín síðastar að skila Allir nema tveir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa skilað til Ríkisendurskoðunar fjárhagslegu uppgjöri vegna framboðs til embættisins. Frestur til að skila inn uppgjöri rann út í gær þegar þrír mánuðir voru liðnir frá forsetakosningum. 3.9.2024 10:35
„Það er enginn öryggisventill þarna, það bremsar þetta ekkert af“ Einstaka veiðifélög íhuga alvarlega að leita réttar síns vegna þess tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir sem rekja megi til umhverfismengunar frá fiskeldi. Þá gagnrýna Landssamtök veiðifélaga stjórnvöld, einkum Matvælastofnun, fyrir að beita ekki þeim heimildum sem stofnunin hafi samkvæmt lögum til að áminna fiskeldisfyrirtæki eða svipta þau starfsleyfi í þeim tilfellum sem við gæti átt. Formaður landssamtakanna segir svör stjórnvalda ekki upp á marga fiska. 3.9.2024 07:01
Dyraverðir vilja fá að nota handjárn: „Það er orðið svo mikið ofbeldi niðri í bæ“ Dyraverðir kalla eftir því að fá heimild til að nota handjárn í þágu aukins öryggis. Dyravörður sem stendur fyrir undirskriftasöfnun þess efnis segir aukið ofbeldi í miðborginni kalla á breytingar á lögum sem heimili dyravörðum, með skilyrðum, að bera og beita handjárnum. Sjálfur hafi hann í tvígang lent í því á undanförnum mánuðum að ráðist var að honum með eggvopni. 2.9.2024 16:01
Laxaseiði úr landeldisstöð sluppu í sjó Allt að þrjú hundruð laxaseiði sluppu í sjó á Kópaskeri í júlí. Ekki tókst að fanga neitt hinna stroknu seiða eftir að ljóst varð um óhappið sem leiddi til stroks laxfiska úr landeldisstöð. Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík ehf. tilkynnti Matvælastofnun um óhappið þriðjudaginn 30. júlí en seiðin sluppu í sjó við dælingu laxaseiða úr eldisstöð fyrirtækisins á Röndinni á Kópaskeri yfir í brunnbátinn Ronja Fjord. 2.9.2024 11:14
„Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran“ „Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran sem hefur stigið á þessari jörð. Hún var of góð, trúði engu slæmu upp á aðra og var ljósberi fyrir alla sem henni kynntust.” Þetta skrifar Birgir Karl Óskarsson, faðir hinnar sautján ára gömlu Bryndísar Klöru sem lést af sárum sínum síðastliðið föstudagskvöld eftir að hafa orðið fyrir stunguárás í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt. 1.9.2024 00:15
Beið í fleiri tíma og fékk ekki miða: „Það var miklu auðveldara að fá miða á Taylor Swift“ Það varð uppselt á aðeins nokkrum klukkustundum á alla sautján fyrirhugaða tónleika bresku sveitarinnar Oasis sem kemur saman að nýju á næsta ári eftir áralangt hlé, en miðar á tónleikana fóru í sölu í morgun. 31.8.2024 23:56