Óvíst hvort Ísland verði með í Eurovision Stjórn Rúv hefur gert fyrirvara um þátttöku Íslands í Eurovision á næsta ári og ekki liggur fyrir hvort Ísland verði með líkt og staðan er núna. Þetta staðfestir stjórnarformaður Rúv í samtali við Vísi. Ástæðan er sú að nú stendur yfir samráðsvinna á vettvangi EBU hvað lýtur að þátttöku Ísraels í keppninni. 8.9.2025 13:38
„Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Íslenskir farsímanotendur munu frá og með 1. október greiða sömu gjöld fyrir farsímaþjónustu í Bretlandi og í öðrum ríkjum innan EES og ESB. Reglugerð þess efnis hefur verið birt í Stjórnartíðindum en henni er ætlað að tryggja að farsímanotendur, sem eru í viðskiptum við íslensk fyrirtæki á þeim markaði, greiði sömu gjöld í Bretlandi og víðast hvar annars staðar í Evrópu. 8.9.2025 12:36
Daður við drengi sem verður kynferðislegt og endar með hótun Barnaheill merkja aukningu í svokölluðum kynlífskúgunarmálum sem beinast gegn börnum. Fórnarlömbin eru í flestum tilfellum unglingsdrengir sem eru narraðir af óprúttnum aðilum, sem þykjast vera stúlka á þeirra aldri, til að senda af sér viðkvæmar myndir sem þeir síðan nota til að kúga fé út úr drengjunum. 8.9.2025 08:59
Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra boðaði til blaða- og fréttamannafundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu klukkan 9, þar sem hann kynnti fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Beina textalýsingu frá fundinum og um efni frumvarpsins má finna neðst í fréttinni. 8.9.2025 07:22
Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi Óprúttnir aðilar hafa gert sig heimakomna á stúdentagarðana í Gamla Garði við Hringbraut frá því í vor sem valdið hefur íbúum miklu ónæði. Námsmönnum sem búa í húsinu finnst öryggi sínu vera ógnað en mennirnir hafa ítrekað stolið mat og drykkjum frá íbúum, haft uppi ógnandi hegðun og trekk í trekk reynt að brjótast inn í húsið. Dýnur sem fundust í kjallara hússins og þvag á gólfinu bendi til þess að umræddir menn hafi haldið til í húsinu í óleyfi. 5.9.2025 12:43
„Það kemur að því að við lendum í veseni“ Auknum árangri íslenskra fótboltaliða fylgir aukin ábyrgð og nýjar áskoranir sem klúbbarnir hafa margir hverjir ekki mikla reynslu af ennþá. Þetta segir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Samstarfsaðilum erlendis þyki gaman að taka á móti íslenskum aðdáendum sem séu þekktir fyrir mikla gleði. Nú sé hins vegar kominn sá tími að öryggismál þurfi að taka fastari tökum og af meiri alvöru en verið hefur í gegnum tíðina hér á landi. 5.9.2025 09:02
Þrjú söfn í eina sæng Hljóðbókasafn Íslands, Kvikmyndasafn Íslands og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn, verða sameinuð í eitt safn nái áform stjórnvalda fram að ganga. 5.9.2025 08:07
Yfirgefið hreysi víkur fyrir hundrað íbúðum Ryð, sót og veggjakrot, brotnar rúður og flögnuð málning. Þetta er meðal þess sem blasir við nú á lóðinni við Borgartún 34-36 sem snýr að Kringlumýrarbraut. Eldur kom upp í húsinu í sumar en það er í mikilli niðurníðslu og hefur ekki verið í notkun um hríð. Húsin á lóðinni sem byggð voru á árunum 1958 til 1978 fá senn að fjúka en á lóðinni eiga að rísa hundrað nýjar íbúðir. 5.9.2025 07:18
Tískugoðsögnin Giorgio Armani er fallin frá Ítalski fatahönnuðurinn og tískugoðsögnin Giorgio Armani er látinn, 91 árs að aldri. Tískuhús Armani staðfesti fregnir af andláti hans í dag. 4.9.2025 13:33
Aukið samstarf opni á fleiri tengimöguleika til vesturstrandar Bandaríkjanna Fimmtán ára samstarf Icelandair og Alaska Airlines verður aukið enn frekar þegar viðskiptavinir Alaska Airlines munu geta bókað tengiflug til fjölda áfangastaða Icelandair í Evrópu. Þá mun fjölga þeim áfangastöðum sem viðskiptavinum íslenska flugfélagsins geta bókað í tengiflugi til vesturstrandar Banaríkjanna og annarra áfangastaða Alaska Airlines. 4.9.2025 09:38