Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ís­búðina

Þegar flugfreyjan Sigríður Birna Jónsdóttir áttaði sig á því að buxurnar hennar hefðu verið teknar í misgripum í útiklefa Vesturbæjarlaugar dó hún ekki ráðalaus. Hún vafði hálfkláraðri peysu sem hún hafði meðferðis um sig miðja og arkaði því næst ásamt syni sínum og tveimur frændum yfir í Ísbúð Vesturbæjar. Þar tók við henni hópur túrista sem brá heldur betur í brún við að sjá konu koma sér fyrir aftast í röðinni, á brókinni.

„Þetta er auð­vitað snilldarmarkaðsbrella“

Nei-arar kölluðu „Já til að sjá“ markaðsbrellu í það minnsta þrisvar sinnum á nokkrum mínútum þegar fulltrúar já- og nei-hliðarinnar mættust í Pallborði þar sem ungt fólk var í brennidepli. Já-ari sagði sérfræðinga tala í kross og það væri eflaust mörgu ungu fólki sem fyndist það vera bestu útkomuna úr atkvæðagreiðslunni í lok ágúst að fá að sjá með eigin augum hvað fælist í samningi.

Gisti­heimili Sverris í Gríms­nesi inn­sigluð

Lögreglan innsiglaði húsnæði í Grímsnesi á mánudag en það var í sameiginlegum aðgerðum Skattsins, Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og heilbrigðiseftirlitsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu snúa aðgerðirnar að gistingu sem athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson rekur á svæðinu en hann hefur áður verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot.

Betur fór en á horfðist þegar flutninga­bíll valt

Vinna við að færa flutningabíl sem valt í aðrein frá Reykjanesbraut við Ártúnsbrekku á níunda tímanum í morgun af vettvangi tók rúmar sjö klukkustundir. Umferð var stýrt um svæðið á meðan og gekk það vel þrátt fyrir að einhverjar teppur hafi myndast.

Rán­fugl gæddi sér á smáfugli í Vestur­bænum

Íbúa í Vesturbæ Reykjavíkur brá heldur betur í brún þegar hann leit upp af kvöldmatnum og sá ránfugl gæða sér á spörfugli í bakgarðinum við heimili sitt. Hann segir atburðarásina hafa verið svo ólystuga áhorfs að hann missti matarlystina og þurfti að henda kvöldmatnum sínum í ruslið.

Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026

Keppni um ljótasta hund heims fór fram í fimmtugasta skipti í ár en pug-hundurinn Jimmy Lu, sem er sex ára gömul, hreppti hnossið í ár. Hún hafnaði í öðru sæti í fyrra en þetta var í fjórða skipti sem hún var meðal keppenda. Skipuleggjendur hafa sagt raunverulegan tilgang keppninnar vera að hvetja fólk til að ættleiða gæludýr frekar en að kaupa.

Í­búar Bolungar­víkur urðu varir við borgarísjaka

Borgarísjaki lónar í Ísafjarðardjúpi og er meðal annars sjáanlegur íbúum Bolungarvíkur. Líklegt þykir að hann hafi brotnað úr stórri íseyju sem hefur hringsólað á milli Vestfjarða og Grænlands.

Hin hliðin ljúgi að lands­mönnum

Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar.

Frank Beard er látinn 77 ára að aldri

Frank Beard, trommari bandarísku rokkhljómsveitarinnar ZZ Top til fimmtíu og sex ára, er látinn, sjötíu og sjö ára að aldri. Hann lést á líknardeild á búgarði sínum í Richmond í Texas-fylki í Bandaríkjunum umvafinn fjölskyldu sinni og ástvinum. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í hljómsveitinni frá því að hún var stofnuð spilaði Beard inn á allar fimmtán plötur hennar.

Þessir voru tekju­hæstu læknarnir og tann­læknarnir í fyrra

Röntgenlæknirinn Halldór Benediktsson trónir á toppi listans yfir tekjuhæstu lækna og tannlækna landsins með ríflega sex milljónir á mánuði árið 2025. Fast á hæla honum koma svo skurðlæknirinn Jón H. H. Sen og yfirlæknirinn Súsanna B. Ástvaldsdóttir með hvor sínar tæplega sex milljónirnar á mánuði í fyrra. Ofarlega á listanum er að finna heimilslækna, þyrlulækna, geðlækna og svæfingalækna.

Sjá meira