Þetta er lægðin sem hefur verið að hrella landsmenn Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, náði þessari mynd af lægðinni sem leikið hefur landsmenn grátt undanfarna daga. 8.2.2022 21:08
Pfizer græddi 4,6 billjónir í fyrra með sölu bóluefnisins Lyfjarisinn Pfizer hagnaðist um tæplega 37 milljarða dala, eða um 4,6 billjónir íslenskra króna, einungis með sölu á bóluefni sínu gegn Covid-19 á síðasta ári. Með því er bóluefnið orðið ein arðbærasta vara sögunnar. 8.2.2022 20:40
„Sætum ekki límd við skjáinn yfir sögulegri frásögn af tilurð kvótakerfisins“ Landsmenn sætu ekki allir límdir á sunnudagskvöldum við sjónvarpsskjáinn ef Verbúðin væri einungis söguleg frásögn af tilurð kvótakerfisins. Þetta segir Daði Már Kristófersson, prófessor í umhverfis- og auðlindahagfræði. 8.2.2022 20:31
Colbert grínast með McDonalds-borgarann hans Hjartar Síðasti McDonalds hamborgarinn, sem keyptur var á Íslandi, hefur vakið mikla athygli utan landssteinanna að undanförnu. Eftir að ferðatímaritið Atlas Obscura fjallaði um hamborgarann, sem var keyptur 31. október 2009, hefur borgarinn fangað athygli ýmissa framámanna. 8.2.2022 17:40
Vilja að rannsókn á Netanjahú verði látin niður falla vegna meintra njósna Almannavarnaráðherra Ísraels hefur skipað sérstaka nefnd sem mun rannsaka meinta notkunn lögreglunnar á njósnabúnaði. Lögreglan á að hafa notað búnaðinn til að njósna um ýmsa framámenn, allt frá stjórnmálamönnum yfir í aðgerðasinna. 7.2.2022 16:34
Friðrik Ómar tekinn við af Loga Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson er tekinn við af Loga Bergmanni Eiðssyni, fjölmiðlamanni, í Síðdegisþættinum á útvarpsstöðinni K100. 7.2.2022 14:05
Viðskiptavinir N1 Rafmagns fá leiðréttingu á næsta rafmagnsreikningi Viðskiptavinir N1 Rafmagns, sem skipt hafa um orkusala, þurfa að koma grieðsluupplýsingum til félagsins svo þeir fái endurgreiðslu vegna mismuns á auglýstum taxta og þrautavarataxta. 7.2.2022 13:23
Leikskólar og frístundaheimili opna klukkan eitt Leikskólar og frístundastarf grunnskólanema á höfuðborgarsvæðinu opnar klukkan eitt í dag. Þetta var niðurstaða almannavarna á höfuðborgarsvæðinu og skóla- og frístundarsviðanna sem funduðu fyrir stuttu. 7.2.2022 09:42
N1 Rafmagn endurgreiðir viðskiptavinum fyrir mismun á taxta frá upphafi N1 Rafmagn hefur ákveðið að endurgreiða viðskiptavinum, sem komu til félagsins í gegn um þrautavaraleið stjórnvalda, þann mismun sem var á auglýstum taxta og þrautavarataxta frá upphafi. 7.2.2022 09:31
Flugmaðurinn sem leitað er reynslumikill og flýgur reglulega útsýnisflug Haraldur Diego, flugmaðurinn sem er einn þeirra fjögurra sem leitað hefur verið að í tæpan sólarhring, er reynslumikill í faginu. Hinir eru þrír erlendir ferðamenn. Flugvélin sem leitað er að er af gerðinni Cessna 172N með skráningarnúmerinu TF-ABB. 4.2.2022 12:02
Gjörunnin matvæli skaðleg öllum líffærum: „Það er fólk í skurðstofubúningum að búa matinn til“ Innlent