Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Svo virðist sem feðgarnir sem stóðu fyrir árásinni á Bondi-strönd um helgina og myrtu fimmtán, hafi fundið innblástur í Ríki íslam. Tveir heimagerðir Ríki íslam fánar fundust í bifreið þeirra og þá hefur verið staðfest að þeir hafi ferðast til Filippseyja, mögulega til að fá herþjálfun. 16.12.2025 07:21
Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands auk átta annarra Evrópuríkja hafa heitið hernaðarlegum stuðningi við Úkraínu í samvinnu við Bandaríkin, sem er ætlað að koma í stað 5. greinar stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins. 16.12.2025 06:47
Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Heilt yfir gengu tónleikarnir mjög vel en það voru einhver mál sem komu inn á borð lögreglu þar sem tónleikagestir höfðu ekki aldur til að vera á tónleikunum né aldur til að vera undir áhrifum áfengis.“ 15.12.2025 10:54
Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni „Maður finnur, á samfélagsmiðlum og bara í kring, að fólk er bara í molum,“ segir Jakob Máni Ásgeirsson, sem var staddur skammt frá Bondi-ströndinni þegar skotárásin átti sér stað í gær. 15.12.2025 09:43
„Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ „Þegar fólk sér prófílmyndina mína og að ég er múslímsk kona þá finnst þeim í lagi að gera grín að trúarbrögðunum mínum, að kalla mig ákveðnum hlutum vegna trúarbragða minna og að segja mér að ég eigi ekki heima í þessu samfélagi. Að ég eigi að fara, snúa aftur þaðan sem ég kom, og svo framvegis.“ 15.12.2025 09:20
Árásarfeðgarnir nafngreindir Feðgarnir sem stóðu fyrir skotárásinni á Bondi strönd í Nýju Suður Wales í Ástralíu í gær voru Naveed Akram, 24, ára og Sajid Akram, 50 ára. Sajid var skotinn til bana af lögreglu en Naveed var handtekinn og fluttur á sjúkrahús, alvarlega særður. 15.12.2025 08:38
Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo í nótt þar sem þeir höfðu komið sér fyrir í ruslageymslu fjölbýlishúss í póstnúmerinu 105 og kveikt eld þar inni. 15.12.2025 06:37
Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir Úkraínumenn reiðubúna til að falla frá fyrirætlunum sínum um að ganga í Atlantshafsbandalagið, gegn pottþéttum öryggistryggingum. 15.12.2025 06:27
Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Tyler Robinson, 22 ára, sem hefur verið ákærður fyrir að myrða íhaldssama aðgerðasinnan Charlie Kirk í september síðastliðnum, mætti fyrir dómara í gær. 12.12.2025 08:27
Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði forsetatilskipun í gær sem miðar að því að takmarka getu einstakra ríkja Bandaríkjanna til að setja reglur um gervigreindariðnaðinn. 12.12.2025 07:22