Rannsóknir á leghálssýnum útboðsskyldar en engin útboðsvinna í gangi Fulltrúar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu funduðu með Ríkiskaupum í júní síðastliðnum vegna rannsókna á leghálssýnum. Á fundinum voru þeir upplýstir um að verkefnið væri útboðsskylt en það var metið á um 140 milljónir króna. 24.3.2021 07:30
Máttu segja upp starfsmanni fyrir að baktala samstarfsmenn í einkaskilaboðum Borgarleikhúsinu var heimilt að segja upp starfsmanni sem vann sér til sakar að baktala samstarfsmenn við móður sína í einkaskilaboðum. Annar starfsmaður sá samskiptin á tölvu starfsmannsins, sem hafði verið skilin eftir opin, og greindi öðrum frá. 24.3.2021 00:02
Enginn skjálfti mælst stærri en 3 á síðustu 48 tímum Á síðustu 48 klukkustundum hafa 332 skjálftar mælst á landinu en enginn stærri en 3. Níu skjálftar hafa mælst á bilinu 2 til 3 og 105 á bilinu 1 til 2. Þá hafa 218 mælst minni en 1. 23.3.2021 23:13
Líkur á hægrisinnuðustu ríkisstjórninni í sögu Ísrael Samkvæmt útgönguspám verðu Likud-flokkur forsætisráðherrans Benjamin Netanyahu enn stærsti flokkur landsins eftir kosningarnar sem fram fóru í dag en hann mun þurfa að reiða sig á stuðning annarra flokka á hægri vængnum til að mynda meirihluta. 23.3.2021 22:47
565 tilvik mögulegra aukaverkana tilkynnt Lyfjastofnun Lyfjastofnun hafa borist 565 tilkynningar um mögulegar aukaverkanir í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19. Flestar þeirra, eða 529, eru flokkaðar „ekki alvarlegar“ en 36 „alvarlegar“. 23.3.2021 21:33
Ný bylgja muni brotna á varnargarði bólusettra einstaklinga „Eftir á að hyggja er eflaust margt sem við vildum óska að við hefðum vitað og margt sem við vildum óska að við hefðum gert öðruvísi, eftir á að hyggja, af því að við vorum að berjast við nýjan sjúkdóm undir allt öðruvísi kringumstæðum en nokkur fyrrverandi stjórnvöld gátu ímyndað sér.“ 23.3.2021 20:19
„Ég var næstum drepinn fyrir að ná mér í gos og poka af kartöfluflögum“ Lögregluyfirvöld í Colorado í Bandaríkjunum hafa gefið upp nöfn þeirra tíu sem létust þegar byssumaður réðist inn í matvöruverslun í Boulder. Þrír voru á þrítugsaldri, einn á fimmtugsaldri, þrír á sextugsaldri og þrír á sjötugsaldri. 23.3.2021 19:15
„Persónulega finnst mér hundar ekkert eiga heima innan um sauðdrukkið fólk“ Þær aðstæður sem hundurinn sem beit stúlku á Röntgen á föstudag voru ekki boðlegar, segir Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Hún segir hundinn hafa verið hræddan og það sé æsifréttamennska að slá tegundinni upp. 23.3.2021 18:34
Deildum á leikskólanum Austurkór lokað: Mygla fannst vegna einkenna starfsmanns Tveimur deildum í leikskólanum Austurkór í Kópavogi hefur verið lokað vegna myglu. Myglan fannst í klæðningu á útvegg á suðvesturhlið skólans. Lokunin er varúðarráðstöfun til að vernda starfsmenn og nemendur. 23.3.2021 17:16
Erfðafræðin mun gjörbreyta læknisfræðinni: Ritrýndi „sakamála“-rannsókn á meintum raðmorðingja Það má spyrja sig að því hvort það sé ekki næg refsing að missa fjögur börn, segir hjartalæknirinn Davíð O. Arnar um mál Kathleen Folbigg, sem var dæmd í 30 ára fangelsi fyrir að myrða börnin sín. Vísindamenn telja hana mögulega saklausa. 23.3.2021 07:42