Bíður eftir útsölum til að kaupa gleraugu á dætur sínar „Dætur mínar geta ekki verið án gleraugna, þær verða að vera með þau til að geta lifað eðlilegu lífi.“ Þetta segir Ása Ingiþórsdóttir sem berst nú fyrir því að gleraugu barna verði að fullu niðurgreidd af ríkinu. Hún segir grófa mismunun felast í því að heyrnartæki barna séu niðurgreidd en gleraugu ekki. 12.12.2020 09:03
Áslaug Thelma áfrýjar málinu gegn Orku náttúrunnar Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur áfrýjað dómi héraðsdóms í máli hennar gegn Orku náttúrunnar en það var niðurstaða dómsins að sýkna ON af ásökunum Áslaugar um ólögmæta uppsögn og kynbundinn launamun. 11.12.2020 14:46
Viðar sakar Ólínu um „hálfstuld“ og hroðvirkni Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur fer ófögrum orðum um Lífgrös og leyndir dómar - Lækningar, töfrar og trú í sögulegu ljósi eftir Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur þjóðfræðing í nýjasta tölublaði Sögu, tímarits Sögufélags. Bókin kom út í fyrra við góðar undirtektir og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna en Viðar sakar Ólínu meðal annars um „hálfstuld“ og hroðvirkni. 11.12.2020 14:34
Deila um tölur snýst raunverulega um umfang og forgangsröðun Framkvæmdakostnaður Reykjavíkurborgar vegna Óðinstorgs nam 60,6 milljónum króna samkvæmt svari fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar en heildarkostnaður framkvæmda á torginu og í nágrenni var 474 milljónir króna. 11.12.2020 11:45
Jón Finnbjörnsson og tveir aðrir sækja um Landsréttarstól Þrír sóttu um laust embætti dómara við Landsrétt sem auglýst var 20. nóvember síðastliðinn en um sóknarfrestur rann út 7. desember. 11.12.2020 09:48
Kínversk yfirvöld ráðleggja flugþjónum að ganga með bleyju Síðustu misseri hafa menn leitað ýmissa leiða til að efla sýkingavarnir og draga úr smithættu en ef einhverjum hefur þótt nóg um þá ættu þeir að kynna sér nýjar ráðleggingar kínverskra flugmálayfirvalda til starfsfólks í fluggeiranum. 10.12.2020 15:03
Heilsugæslan: Það er ekki hægt að panta tíma í bólusetningu Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar nú á heimasíðu sinni að það sé ekki hægt að panta tíma í bólusetningu gegn Covid-19. Allir muni fá boð í bólusetningu þegar kemur að þeirra forgangshóp. 10.12.2020 14:30
Lemstruð og öskuill eftir heimsókn til sýslumanns Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er með glóðurauga, brákað kinnbein og mögulega brotinn ökkla. Hún kennir sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um ástandið á sér með því að vera með galandi slysagildru í afgreiðslusal. 10.12.2020 14:23
Munu freista þess að tryggja óhindraðar samgöngur og fiskveiðar Evrópusambandið hefur gefið út viðbragðsáætlun sem gripið verður til ef fer sem horfir og aðlögunartímabilinu í kjölfar Brexit lýkur án samnings. Áætlunin miðar að því að tryggja samgöngur milli Bretlands og Evrópu og áframhaldandi veiðar. 10.12.2020 12:48
Mun færri ávísanir á sýklalyf en fjölgun í ávísunum þunglyndislyfja Ávísunum á sýklalyf hefur fækkað um 24% samkvæmt könnun Landlæknisembættisins á heilsu og líðan landsmanna í Covid-19 faraldrinum. Þetta má þakka persónulegum sóttvörnum sem hafa dregið úr öðrum sýkingum. 10.12.2020 11:35