Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Eiður Þór Árnason skrifar 12. september 2026 21:46 Atvikið átti sér stað í Háskólanum á Akureyri og lítur forseti Stúdentafélags skólans málið alvarlegum augum. Vísir/Viktor Freyr Atli Bjarnason, framkvæmdastjóri og stofnandi Nóbel námsbúða, gengst við því að hafa beðið nemendur við Háskólann á Akureyri um að deila með sér netföngum samnemenda án þeirra heimildar. „Það var rangt af mér og á því biðst ég afsökunar.“ Hann hafnar því ekki að hafa beitt sömu aðferð í öðrum háskólum en kveðst ekki ætla að afla sér upplýsinga með þessum hætti aftur. Búið sé að eyða umræddum gögnum og tilgangurinn með upplýsingaöfluninni hafi verið að auglýsa vefnámskeið sem ætlað er að undirbúa nemendur fyrir próf. Aðalbjörn Jóhannsson, forseti Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA), varaði í síðustu viku stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi Atla og lítur málið alvarlegum augum. Hann hefur áður sagt í samtali við Vísi að ekki mætti deila persónuupplýsingum um nemendur sem séu á innri kerfum háskólans til þriðja aðila og það væri ekki síst varhugavert að sækja slíkar upplýsingar í hagnaðarskyni. Hafi fallist á allar kröfur SHA „Aðalbjörn er auðvitað bara að vinna sína vinnu vel og stendur vörð um sína félagsmenn í SHA,“ segir Atli í samtali við Vísi. „Þeir gerðu ákveðnar kröfur um að ég myndi eyða þessum gögnum og fleira slíkt og augljóslega ekki gera þetta aftur.“ Hann hafi orðið við öllum kröfum Stúdentafélagsins þegar hann fékk bréf frá Aðalbirni á föstudeginum í síðustu viku. „Ég bað SHA afsökunar á þessu öllu og leit í rauninni svo á að þessu máli væri lokið.“ Háskólinn á Akureyri vistar upplýsingar um nemendur í innri kerfum sem bera heitið Uglan og Canvas.Skjáskot Atli segir upplýsingaöflunina hafa farið fram með þeim hætti að hann setti sig í samband við nemendur sem höfðu áður sótt námskeið á vegum Nóbels námsbúða og óskaði eftir netföngum samnemenda til að auglýsa komandi námskeið sem hann hafi kennt í fjórtán ár. Þú gerir sem sagt ekki athugasemd við þá frásögn forseta SHA að þú hafir beðið nemendur um að flytja út (e. exporta) einhverja nemendalista úr kerfum og deila með þér? „Það sem stemmir er að ég hafði samband við mína fyrrverandi nemendur til að óska eftir netföngum til að auglýsa mín námskeið,“ segir Atli í samtali við Vísi. Hafnar því að hafa villt á sér heimildir Aðalbjörn hjá SHA sagði Atla hafa gefið nemendum ítarlegar leiðbeiningar um hvernig ætti að nálgast gögnin. „Í rauninni gerir hann þetta með því að villa á sér heimildir, það er að segja á fölskum forsendum. Hann segist vera í nánu samstarfi við aðila sem er formaður aðildarfélags hjá okkur, sem er ekki rétt,“ sagði hann í samtali við Vísi í síðustu viku. „Ég tek skýrt fram að ég var ekki að villa á mér neinar heimildir eða reyna að þykjast vera einhver annar en ég var. Öll samskiptin fóru fram í mínu eigin nafni og við mína fyrrverandi nemendur,“ svarar Atli. Atli segist hafa orðið við öllum kröfum SHA. Nóbel námsbúðir bjóða einnig upp á námskeið í tengslum við áfanga kennda við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.Vísir/Viktor Freyr Ekki ætlað sér að dreifa upplýsingunum Sérðu hvers vegna forseti SHA gerir athugasemdir við þetta út frá persónuverndarsjónarmiðum? „Varðandi það sjónarhorn þá kemur líka skýrt fram í bæði svarinu og yfirlýsingunni [til SHA] að þessi netgögn voru eingöngu ætluð þeim tilgangi sem ég lýsti: að auglýsa námskeið fyrir komandi skólavetur. Þetta var ekki neitt sem átti að fara í hendur á einhverjum öðrum í einhverjum öðrum tilgangi en ég var að lýsa. Það er nú svona það mikilvægasta sem mig langaði að segja um þennan persónuverndarvinkil.“ Í persónuverndarstefnu Háskólans á Akureyri, sem rekur kerfið sem geymdi upplýsingarnar, segir eftirfarandi: „Háskólinn á Akureyri afhendir ekki persónuupplýsingar til þriðja aðila nema honum beri lagaleg skylda til þess, skráður einstaklingur hafi óskað eftir því eða gefið upplýst og óþvingað samþykki fyrir því.“ Burtséð frá þessu voru það tæknilega séð nemendur sem afhentu upplýsingarnar í þessu tilviki. Hafnar því ekki að hafa notað sömu aðferð víðar Hefur þú aflað þér upplýsinga um nemendur með þessum hætti áður? „Ertu að meina með þessum nákvæmlega sama hætti?“ Já, með því að hafa samband við gamla nemendur og biðja þá um að senda þér nemendalista. „Ekki eins og Aðalbjörn er að lýsa þessu en ég myndi bara vilja vitna aftur í yfirlýsinguna frá mér.“ En með aðra háskóla, hefur þú verið að nota sömu aðferðir þar? „Allar þessar kröfur sem ég varð við strax á föstudaginn, og eins og kom fram bæði í svarinu mínu til Aðalbjörns og í yfirlýsingunni sem ég get sent þér, þá gildir þetta um starfsemi Nóbels námsbúða í heild, það er að segja ekki bara gagnvart Háskólanum á Akureyri heldur gagnvart öllum háskólum.“ Já, þú átt við í framhaldinu en hefur þú gert þetta í tengslum við aðra háskóla, til að mynda fyrrverandi nemendur þína sem ganga í Háskóla Íslands, Háskólann við Bifröst eða aðra? „Við höfum aldrei kennt neitt við Bifröst en ég hugsa að það sé nú bara best að ég sendi þér þessa yfirlýsingu.“ Atli dró síðar boð sitt um að deila tölvupósti sínum til SHA til baka með vísan til þess að í honum væru einstaklingar nafngreindir. Hann óskaði þess í stað eftir því að fá birta eftirfarandi yfirlýsingu: „Það er rétt að ég hafði samband við fyrrverandi nemendur mína hjá Nóbel námsbúðum og bað þá um netföng í þeim tilgangi að auglýsa námskeið fyrir komandi skólaár. Það var rangt af mér og fyrir það biðst ég afsökunar. Ég hef kennt námskeið hjá fyrirtæki mínu, Nóbel námsbúðum ehf., í yfir 14 ár og aðstoðað nemendur við að undirbúa sig fyrir lokapróf og ná lengra í námi sínu. Um 1.100 þeirra hafa verið nemendur við Háskólann á Akureyri og hefur ánægja þeirra með kennsluna verið með allra besta móti. Ég vil taka fram að ég gerði ekki tilraun til að villa á mér heimildir í umræddum beiðnum. Samskiptin fóru öll fram í mínu nafni og við fyrrverandi nemendur mína. Forseti SHA hafði nýlega samband við mig vegna málsins og lagði fram skýrar kröfur sem ég varð þegar við. Ég lét hann jafnframt vita að ég hefði orðið við þeim. Kröfurnar fólust meðal annars í því að eyða öllum netföngunum og hafa ekki aftur samband við nemendur í þessum tilgangi. Eins og fram kom í svari mínu til forseta SHA gildir þetta um starfsemi Nóbel námsbúða í heild en ekki aðeins samskipti fyrirtækisins við nemendur Háskólans á Akureyri.“ Fréttin hefur verið uppfærð. Háskólar Persónuvernd Skóla- og menntamál Akureyri Tengdar fréttir Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema. 5. september 2026 20:01 Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira
Það er rétt að ég hafði samband við fyrrverandi nemendur mína hjá Nóbel námsbúðum og bað þá um netföng í þeim tilgangi að auglýsa námskeið fyrir komandi skólaár. Það var rangt af mér og fyrir það biðst ég afsökunar. Ég hef kennt námskeið hjá fyrirtæki mínu, Nóbel námsbúðum ehf., í yfir 14 ár og aðstoðað nemendur við að undirbúa sig fyrir lokapróf og ná lengra í námi sínu. Um 1.100 þeirra hafa verið nemendur við Háskólann á Akureyri og hefur ánægja þeirra með kennsluna verið með allra besta móti. Ég vil taka fram að ég gerði ekki tilraun til að villa á mér heimildir í umræddum beiðnum. Samskiptin fóru öll fram í mínu nafni og við fyrrverandi nemendur mína. Forseti SHA hafði nýlega samband við mig vegna málsins og lagði fram skýrar kröfur sem ég varð þegar við. Ég lét hann jafnframt vita að ég hefði orðið við þeim. Kröfurnar fólust meðal annars í því að eyða öllum netföngunum og hafa ekki aftur samband við nemendur í þessum tilgangi. Eins og fram kom í svari mínu til forseta SHA gildir þetta um starfsemi Nóbel námsbúða í heild en ekki aðeins samskipti fyrirtækisins við nemendur Háskólans á Akureyri.“
Háskólar Persónuvernd Skóla- og menntamál Akureyri Tengdar fréttir Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema. 5. september 2026 20:01 Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira
Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema. 5. september 2026 20:01