Fréttamaður

Kjartan Kjartansson

Kjartan er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ræðir vopn og nánara sam­starf við þýska leið­toga

Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, er nú í Þýskalandi í fyrsta skipti frá því að Rússar réðust inn í heimaland hans í fyrra. Hann segist ætla að ræða hernaðaraðstoð og aðild að Evrópusambandinu og NATO í heimsókninni. Ítalskir leiðtogar hétu honum áframhaldandi stuðningi í Róm í gær.

Læknir og hjúkrunar­fræðingur fyrstir á slysstað á Kletts­hálsi

Ökumaður bifreiðar sem fór út af veginum og valt á Klettshálsi á sunnanverðu Vestfjörðum í dag er sagður í stöðugu ástandi eftir atvikum. Hann sat fastur í flaki bílsins en læknir og hjúkrunarfræðingur voru á meðal fyrstu vegfarenda sem komu að slysinu.

Selenskíj til fundar við páfa

Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, kom til Rómarborgar í morgun en hann hygst funda með Frans páfa og ítölskum ráðamönnum. Páfi heldur því fram að Páfagarður vinni að því að koma á friði í Úkraínu á bak við tjöldin.

Horfur fyrir láns­hæfi Ís­lands batna

Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru staðfestar og horfur lánshæfis hans eru taldar hafa batnað í nýju mati alþjóðlegs matsfyrirtækis. Matið byggir á því að horfur í opinberum fjármálum og geta Íslands til að mæta áföllum haldi áfram að batna, mögulega umfram væntingar.

Skaut kærustu sína til bana eftir að hún fór í þungunar­rof

Karlmaður á þrítugsaldri sem vildi ekki að kærastan sín færi í þungunarrof skaut hana til bana í Texas í Bandaríkjunum í vikunni. Konan fór til annars ríkis til að gangast undir þungunarrof þar sem það er bannað eftir sjöttu viku meðgöngu í Texas.

Gera sér vonir um að velta Erdogan úr sessi

Tyrkneska stjórnarandstaðan vonast til þess að tuttugu ára valdatíð Receps Erdogan forseta ljúki eftir forseta- og þingkosningar sem fara fram á sunnudag. Erdogan er ekki talinn hafa staðið eins veikt og nú áður, að stórum hluta vegna óstjórnar í efnahagsmálum.

Sjá meira