Skeljungur eykur umsvif sín í lyfsölu Fjölorkufélagið Skeljungur verður meirihlutaeigandi í apótekakeðjunni Lyfsalanum og Lyfjavali með viðskiptum sem tilkynnt var um í dag. Kaupin eru sögð liður í að minnka vægi eldsneytissölu í rekstri Skeljungs. 25.6.2021 22:49
Ekkja McAfee kennir Bandaríkjastjórn um dauða hans Dauði Johns McAfee, hugbúnaðarfrömuðsins umdeilda, í spænsku fangelsi er á ábyrgð Bandaríkjastjórnar, að sögn ekkju hans. McAfee beið framsals til Bandaríkjanna fyrir skattsvik og fleiri brot þegar hann stytti sér aldur. 25.6.2021 21:47
Hvítrússneskur stjórnarandstöðugleiðtogi sækir Ísland heim Svetlana Tsikhanouskaja, einn leiðtoga hvítrússnesku stjórnarandstöðunnar, heimsækir Ísland í næstu viku. Hún fundar meðal annars með forsætisráðherra, forseta Alþingis og rektor Háskóla Íslands. 25.6.2021 21:01
Nokkrir látnir í hnífaárás í Þýskalandi Að minnsta kosti þrír eru sagðir látnir og sex særðir eftir að karlmaður á þrítugsaldri gekk þar berserksgang með stóru eggvopni í borginni Würzburg í sunnanverðu Þýskalandi í dag. Árásarmaðurinn var handtekinn. 25.6.2021 20:28
Morðingi Floyd í meira en 22 ára fangelsi Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumaður í Minneapolis, var dæmdur í 22 og háfs árs fangelsi fyrir að verða George Floyd að bana með því að krjúpa á hálsi hans í fyrra. Drápið á Floyd varð kveikjan að miklum mótmælum í Bandaríkjunum og víða um heim. 25.6.2021 20:06
Umfangsmikil leit að manni á gosstöðvunum Björgunarsveitarfólk af Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu leitar nú að karlmanni á gosstöðvunum á Reykjanesi. Leitar- og sporhundar frá höfuðborgarsvæðinu hafa einnig verið sendir til að aðstoða við leitina. 25.6.2021 19:52
Áframhaldandi varðhaldi í hnífstungumáli hafnað Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður um hnífstunguárás í miðborg Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði. 25.6.2021 19:18
Segja enga tilraun hafa verið gerða til að leyna upptökum Eftirlitsnefnd með störfum lögreglunnar hafði frá upphafi nákvæmt eftirrit af ummælum lögregluþjóna sem sinntu umdeildu útkalli í Ásmundarsal á Þorláksmessu og engin tilraun var gerð til þess að leyna því sem kom fram á upptökum búkmyndavéla þeirra, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 25.6.2021 18:52
Ísorka hafnar ábyrgð á að slökkt verði á hleðlustöðvum Framkvæmdastjóri Ísorku hafnar því að kvörtun fyrirtækisins sé orsök þess að Orka náttúrunnar ætlar að taka straum af á annað hundrað hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík. Hann segir Reykjavíkurborg rót vandans. 25.6.2021 18:01
Áttföld eftirspurn eftir hlutum í Play Um 4.600 áskriftir bárust fyrir um 33,8 milljarða króna í hlutafjárútboði flugfélagsins Play sem lauk nú klukkan 16:00 í dag. Það var áttfalt meiri eftirspurn en framboð var af hlutum í útboðinu. 25.6.2021 17:21