Dönsk skip flytja koltvísýring til förgunar á Íslandi Samið hefur verið um að danska skipafélagið Dan-Unity CO2 sjái um flutning á koltvísýringi til förgunar í fyrirhugaðri miðstöð Carbfix í Straumsvík. Siglingarnar eiga að hefjast árið 2025 en stefnt er að því að farga allt að þremur milljónum tonna af koltvísýringi árlega árið 2030. 19.5.2021 16:20
Repúblikanar í hár saman vegna umdeildrar endurskoðunar Endurskoðun sem repúblikanar í öldungadeild ríkisþings Arizona í Bandaríkjunum fyrirskipuðu á úrslitum forsetakosninganna í nóvember heldur áfram þrátt fyrir harðar mótbárur flokkssystkina þeirra sem báru ábyrgð á framkvæmd þeirra í stærstu sýslu ríkisins. Embættismennirnir neituðu að taka þátt í endurskoðuninni í vikunni. 19.5.2021 15:39
Fundu málmgufur utan um halastjörnur Uppgötvun evrópskra stjörnufræðinga á gufum þungmálma í gashjúpi utan um halastjörnur innan og utan sólkerfisins okkar þykir óvænt. Þungmálmar finnast venjulega í heitu umhverfi en ekki á gasformi í kringum halastjörnur þegar þær eru fjarri sólinni. 19.5.2021 15:01
Aldrei fleiri dauðsföll á einum degi í faraldrinum Nýtt met yfir fjölda dauðsfalla í einu landi á einum sólarhring frá því að kórónuveiruheimsfaraldurinn hófst var sett á Indlandi í gær þegar yfirvöld tilkynntu að 4.529 manns hefðu látist. Nær öruggt er þó talið að raunverulegur fjöldi látinna sé hærri. 19.5.2021 13:15
Berlusconi sagður alvarlega veikur Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er alvarlega veikur. Saksóknari sem rekur mál gegn honum í Mílanó hefur óskað eftir því að réttarhöldum verði tímabundið frestað vegna veikinda hans. 19.5.2021 12:47
Tæplega 70% samdráttur í losun frá Evrópuflugi í faraldrinum Losun íslenskra flugrekenda á gróðurhúsalofttegundum vegna ferða innan evrópska efnahagssvæðisins dróst saman um 69% á milli ára í fyrra þegar samgangur á milli landa snarminnkaði í kórónuveirufaraldrinum. Ekki hefur verið losað minna frá því að samevrópskt kerfi um losunarheimildir var tekið upp árið 2013. 19.5.2021 10:00
Bakslag fyrir bólusetningaráætlun Sameinuðu þjóðanna Verulegt bakslag er komið í áætlanir Sameinuðu þjóðanna um að bólusetja fólk í þróunarríkjum gegn kórónuveirunni eftir að stærsti framleiðandi bóluefna í heiminum á Indlandi sagðist ekki geta afhent fleiri skammta fyrr en í lok þessa árs. 18.5.2021 16:56
Repúblikanar á móti rannsókn á árásinni á þinghúsið Leiðtogi Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings styður ekki tillögu um að óháð nefnd beggja flokka rannsaki mannskæða árás á þinghúsið 6. janúar. Sumir flokksbræður hans hafa undanfarið tekið til við að gera lítið úr alvarleika árásarinnar. 18.5.2021 16:22
Alþjóðaorkumálastofnunin: Hætta þarf fjárfestingum í jarðefnaeldsneyti strax Hægt er að feta þröngt einstigi til að ná metnaðarfyllra markmiði Parísarsamkomulagsins um hnattræna hlýnun en til þess verður að hætta strax fjárfestingum í nýjum kolanámum og olíu- og gaslindum í heiminum. Umbylta þarf orkukerfi heimsins og skipta jarðefnaeldsneyti út fyrir endurnýjanlega orkugjafa. 18.5.2021 13:34
Vara Alþingi við að samþykkja ályktun um þjóðarmorð á Armenum Samþykki Alþingi ályktun um að viðurkenna þjóðarmorð Tyrkja á Armenum bæri skugga á góð samskipti Tyrklands og Íslands. Þetta kemur fram í bréfi sem forseti tyrkneska þingsins hefur sent Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis. 18.5.2021 11:33