Trump óákveðinn um samkomulag í útgjaldadeilu Samkomulag repúblikana og demókrata myndi fjármagna ríkisstofnanir út september. Hafni Trump því gætu stofnanirnar lokast aftur eftir föstudaginn. 12.2.2019 16:40
„Græn ný gjöf“ demókrata í loftslagsmálum fær lof og last Metnaðarfull markmið um afkolefnisvæðingu Bandaríkjanna er að finna í nýrri loftslagsáætlun sem hluti Demókrataflokksins hefur lagt fram. Áætlunin á sér þó litla framtíðarvon í bili. 12.2.2019 16:00
Yfir þúsund manns skotmarkið í nýjustu herferð Tyrklandsstjórnar eftir valdaránstilraun Ríkisstjórn Erdogan forseta hefur handtekið tugi þúsunda manna og rekið á annað hundrað þúsund ríkisstarfsmanna eftir misheppnaða valdaránstilraun árið 2016. Tilkynnt var um handtökuskipanir á hendur rúmlega 1.100 manna í dag. 12.2.2019 12:55
Fyrrverandi ráðgjafi stefnir Bandaríkjaforseta vegna árása eftir bókarskrif Lögmenn framboðs Trump saka fyrrverandi ráðgjafa um að hafa brotið þagnarsamning með bók sem hann skrifaði um reynslu sína í Hvíta húsinu. Ráðgjafinn hefur stefnt Trump forseta á móti fyrir að beita framboðinu til að reyna að þagga niður í sér. 12.2.2019 12:05
Sautján látnir eftir eldsvoða á hóteli í Delí Fólki reyndi að bjarga lífi sínu með því að stökkva út um glugga fimm hæða byggingarinnar, þar á meðal kona og barn sem eru sögð hafa farist. 12.2.2019 11:17
Trump fengi tæpan fjórðung fjárins sem hann krefst fyrir múrinn Óvíst er hvort að Bandaríkjaforseti fallist á samkomulag sem þingmenn demókrata og repúblikana hafa náð um fjármögnun ríkisstofnana. 12.2.2019 10:36
Zúistum snarfækkaði eftir að þeir fengu skráningu sem trúfélag Ráðuneytið hafnaði umsókn zúista um skráningu trúfélags í tvígang áður en fallist var á hana. Rúmlega 20 manns voru sagðir í félaginu í umsókninni en þeir voru aldrei fleiri en þrír til fjórir eftir að félagið var skráð sem trúfélag. 12.2.2019 09:30
Tyrkneska ríkið selur grænmeti til að vinna gegn verðbólgu Verð á matvælum hækkaði um 31% í janúar frá sama mánuði í fyrra. 11.2.2019 16:52
Kakkalakkar og húsflugur gætu hagnast á gríðarlegri hnignun skordýra Allt að 40% allra skordýrategunda gætu horfið á næstu áratugum. Orsakirnar eru meðal annars iðnaðarlandbúnaður, eiturefnanotkun og hnattræn hlýnun. 11.2.2019 16:09
Rússar ætla að aftengjast veraldarvefnum Landið verður aftengt við netið í stuttan tíma og er það hluti af undirbúningi fyrir mögulegan tölvuhernað í framtíðinni. 11.2.2019 15:17