Fréttamaður 60 mínútna sakaður um kynferðislega áreitni Charlie Rose káfaði á konum, hringdi í þær og lýsti kynferðislegum órum sínum og gekk um nakinn fyrir framan þær. 20.11.2017 22:07
Ílangur gestur utan sólkerfisins Smástirni sem kom úr geimnum á milli stjarnanna var ólíkt öllu öðru sem menn hafa fundið í sólkerfinu okkar. 20.11.2017 20:39
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna tilkynnir um afsögn sína Skipunartími Janet Yellen rennur ekki út fyrr en árið 2024 en hún kýs að stíga alveg til hliðar eftir að Donald Trump tilnefndi annan seðlabankastjóra í hennar stað. 20.11.2017 19:45
Önnur kona sakar þingmann demókrata um áreitni Al Franken er nú sakaður um að hafa gripið í rass konu þegar hann var orðinn þingmaður. Hann hafði áður beðið konu afsökunar á atviki sem átti sér stað áður en stjórnmálaferill hans hófst. 20.11.2017 19:07
Kveikt í veitingasölu Þróttara við Laugardalsvöll Eldurinn var kominn í klæðningu og þak timburhússins sem stendur fyrir aftan eystri stúku Laugardalsvallar þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang. 20.11.2017 18:46
Orkuveitan kaupir aftur skemmdar höfuðstöðvar Þriðjungur höfuðstöðva OR er talinn skemmdur af völdum raka. OR hefur nú keypt húsin aftur af fasteignafélaginu sem hún hefur leigt af síðustu fjögur árin. 20.11.2017 18:18
Trump setur Norður-Kóreu aftur á hryðjuverkalista Norður-Kórea bætist í hóp Súdan, Sýrlands og Írans yfir ríki sem Bandaríkjastjórn telur styrkja alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi. 20.11.2017 17:56
Svartir fá lengri dóma en hvítir fyrir sömu brot Rannsókn opinberrar nefndar sýnir að svartir menn frá fimmtungi lengri dóma en hvítir fyrir sömu brot. 17.11.2017 16:19
George Bush eldri sakaður um að þukla á túlki Áttunda konan hefur stigið fram með ásakanir á hendur fyrrverandi Bandaríkjaforseta um kynferðislega áreitni. 17.11.2017 15:33
Norður-Kóreumenn útiloka viðræður um kjarnorkuvopn Heræfingar Bandaríkjamanna og Suður-Kóreumanna standa í vegi viðræðna um kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreumanna, að sögn sendiherra alræðisríkisins. 17.11.2017 14:29