George Bush eldri sakaður um að þukla á túlki Áttunda konan hefur stigið fram með ásakanir á hendur fyrrverandi Bandaríkjaforseta um kynferðislega áreitni. 17.11.2017 15:33
Norður-Kóreumenn útiloka viðræður um kjarnorkuvopn Heræfingar Bandaríkjamanna og Suður-Kóreumanna standa í vegi viðræðna um kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreumanna, að sögn sendiherra alræðisríkisins. 17.11.2017 14:29
Sylvester Stallone hafnar ásökun um árás á 16 ára gamla stúlku Leikarinn á að hafa hótað táningsstúlku ofbeldi eftir að hann og lífvörður hans höfðu kynmök við hana í Las Vegas á 9. áratugnum. 17.11.2017 13:45
Tuttugu tonn af kjötbollum lokuðu sænskum vegi Gárungarnir buðust til að hjálpa með hreinsunarstarfið með hníf og gaffli. 17.11.2017 13:17
Mögulega lífvænlegur hnöttur í rólegu hverfi Fjarreikistjarnan Ross 128b er á stærð við jörðina og á braut um stjörnu sem gæti hentað betur fyrir möguleikann á lífi en margar aðrar sem fundist hafa fram að þessu. 16.11.2017 16:00
Stærsti stjórnarandstöðuflokkur Kambódíu leystur upp með dómsvaldi Forseti hæstaréttar er einnig háttsettur í stjórnarflokki Hun Sen forsætisráðherra sem hefur ráðið ríkjum í Kambódíu í 32 ár. 16.11.2017 14:20
Hægriöfgamenn sviptir staðfestingu á Twitter Sumir notendur töldu að bláa staðfestingarmerkið á Twitter væri einhvers konar stuðningur eða viðurkenning á mikilvægi þeirra sem fengu það. 16.11.2017 12:29
Tvær konur til viðbótar saka frambjóðanda repúblikana um að hafa elst við sig Roy Moore hringdi meðal annars í menntaskólastúlku í skólanum til að bjóða henni á stefnumót eftir að hún hafði neitað honum um símanúmerið sitt. 16.11.2017 11:33
Trump afléttir banni við innflutningi á veiðiminjagripum úr fílum Bandaríkjamenn geta brátt farið að veiða fíla í Afríku og flytja minjagripi með sér heim aftur. Fílarnir eru á lista bandarískra stjórnvalda um dýr í útrýmingarhættu. 16.11.2017 10:41
BBC fjallar um hvernig Íslendingar fengu unglinga til að hætta að drekka og dópa Útivistartími og rannsóknir á líðan og neyslu barna og ungmenna eru á meðal þess sem BBC segir að hafi valdið "unglingabyltingu“ á Íslandi. 15.11.2017 11:56