Stjórnarandstaðan í Kenía fullyrðir að brögð hafi verið í tafli Forsetaframbjóðandi kenísku stjórnarandstöðunnar fullyrðir að tölvuþrjótar hafi brotist inn í tölvukerfi kjörstjórnar og hagrætt úrslitum. Talning bendir til þess að sitjandi forseti landsins hafi unnið öruggan sigur. 9.8.2017 10:57
Konur tilnefndar sem varaforsetar Írans Forseti Írans bregst við gagnrýni á kynjahalla í ríkisstjórninni með því að tilnefna konur í embætti varaforseta. 9.8.2017 10:34
Mikil sóun í einnota kaffihylkjum Talið er að stærstur hluti einnota kaffihylkja eins og fer í Nespresso-vélar endi í ruslinu frekar en endurvinnslu. Sérfræðingur Umhverfisstofnunar segir mikla sóun felast í notkun kaffihylkja af þessu tagi og að Íslendingar hugsi ekki um auðlindir sem fóru í kaffi sem þeir hella niður í stríðum straumum. 9.8.2017 10:00
Fullyrða að losun gróðurhúsalofttegunda sé vantalin Úttekt breska ríkisútvarpsins BBC bendir til þess að sum ríki vanmeti losun ákveðinna gróðurhúsalofttegunda. Sérfræðingur sem það ræðir við telur það geta grafið undan Parísarsamkomulaginu. 9.8.2017 09:57
Trump „hæfileikaríkasti stjórnmálamaður okkar daga“ Einn aðalráðgjafa Donalds Trump Bandaríkjaforseta mætti í viðtal til Fox News í gær og sagði Trump hæfileikaríkasta stjórnmálamann samtímans og besta ræðumann sem hefur gegnt embætti forseta í margar kynslóðir. 9.8.2017 08:24
Maður í bílsætisbúningi ók „sjálfkeyrandi“ bíl Margir töldu að stórstígar framfarir hefðu orðið í sjálfkeyrandi bílum þegar þeir sáu mannlausa bifreið á ferð í Virginíuríki í Bandaríkjunum um helgina. Mennsku ökumaður var þó undir stýri, dulbúinn sem bílsæti. 8.8.2017 15:37
Starfsmaður Google rekinn fyrir að stuðla að staðalmyndum kynjanna Umdeilt minnisblað karlkyns forritara hjá Google þar sem hann sagði líffræðilega þætti skýra hvers vegna konur séu ekki í stjórnunarstöðum hjá tæknifyrirtækjum hefur dregið dilk á eftir sér. Starfsmaðurinn hefur verið rekinn fyrir að ýta undir staðalmyndir kynjanna. 8.8.2017 11:47
Varaforseti Bandaríkjanna þvertekur fyrir forsetaframboð New York Times sagði frá því um helgina að Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, væri að undirbúa forsetaframboð eftir þrjú ár. Hann hafnar því alfarið að þær fréttir eigi við rök að styðjast. 8.8.2017 11:04
Fellibylur veldur usla á stærstu eyju Japans Hlutar borgarinnar Fukui á Honshu-eyju voru rýmdir vegna mikilla rigninga sem fylgdu fellibylinum Noru sem gekk þar á land í dag. 8.8.2017 10:08
Loftslagsskýrslu lekið af ótta við að hún verði þögguð niður Bandarískir vísindamenn óttast að ríkisstjórn Donalds Trump muni sitja á vísindaskýrslu um áhrif loftslagsbreytinga. New York Times hefur birt drög að skýrslunni. 8.8.2017 08:47