Álverð rýkur upp og búið að hækka um 59 prósent Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað hratt á undanförnum vikum og fór í dag í 2.330 dollara tonnið. Það er 59 prósenta hækkun á ellefu mánuðum en um miðjan maí í fyrra fór verðið niður undir 1.460 dollara. Hækkunin frá því í byrjun febrúar nemur átján prósentum. 15.4.2021 16:33
Grindvíkingar sultuslakir þótt gjósi bak við hólinn Nærri fjögurra vikna eldgos í bakgarði Grindavíkur virðist ekki hafa truflað daglegt líf Grindvíkinga. Það er rétt eins og gosið sé orðið eðlilegur hluti mannlífsins. 14.4.2021 23:20
Vilja hefja vegagerð í sumar á hæsta hluta Dynjandisheiðar Vegagerðin stefnir að því að bjóða út í vor stærsta áfangann í endurbyggingu Vestfjarðavegar yfir Dynjandisheiði. Vegarkaflinn er á hæsta hluta heiðarinnar og þykir mikilvægt að sumarið nýtist til framkvæmda. 13.4.2021 22:22
Norðfirðingar vilja stækka hlut sinn í Síldarvinnslunni Áhugi er meðal heimamanna á Norðfirði að auka hlut sinn á ný í Síldarvinnslunni, stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Austfjarða, nú þegar stefnt er að skráningu fyrirtækisins á hlutabréfamarkað. 12.4.2021 22:10
Kafaði niður í loðnutorfu í Faxaflóa og kvikmyndaði Íslenskur kafari kvikmyndaði loðnutorfu í síðasta mánuði með því að kafa sjálfur niður í torfuna. Ekki er vitað til þess að slíkt hafi áður verið gert í heiminum. Kafarinn lýsir þessu sem ævintýri. 8.4.2021 23:40
Verktakinn byrjar þverun Þorskafjarðar í næstu viku Verksamningur milli Vegagerðarinnar og Suðurverks um þverun Þorskafjarðar var undirritaður í dag. Vegamálastjóri segir þetta lið í gríðarlegum samgöngubótum á Vestfjörðum sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fimmtíu kílómetra. 8.4.2021 19:52
Múlanum ætlað að fjölga Norðfirðingum Norðfirðingar vonast til að heimta aftur brottflutta íbúa til baka og fá fjölda nýrra starfa með skrifstofuklasa og nýsköpunarmiðstöð sem búið er að opna í Neskaupstað. 8.4.2021 09:31
Auðveldari gönguleið stikuð að gosinu framhjá kaðlinum Aðalgönguleiðinni að eldgosinu í Fagradalsfjalli, svokallaðri A-leið, hefur verið breytt þannig að ekki þarf lengur að notast við kaðal í bröttustu brekkunni. Jafnframt er búið að lengja stikuðu leiðina svo hún nái að nýju gígunum, sem opnuðust síðastliðna nótt. 7.4.2021 23:37
Kennsla í loðnuveiði: Dæla úr nót annarra „Það er bara fundin torfa og kastað,“ svarar skipstjórinn á Beiti NK, Sturla Þórðarson, þegar við biðjum hann um að útskýra fyrir áhorfendum hvernig loðnuveiðar fara fram. 5.4.2021 07:43
Netagerðarmeistari lifir á loðnuvertíð fram eftir ári Nýafstaðin loðnuvertíð færir netaverkstæðum kærkomna búbót sem endist þeim langt fram eftir ári. Dæmi um slíkt fundum við austur í Neskaupstað. 3.4.2021 23:14