Eru að slökkva í síðustu glæðunum í Somerset Slökkviliðiðið í London hefur nú náð tökum á eldi í Somerset húsi en tilkynnt var um eld þar um hádegisbil í dag. Á vef breska ríkisútvarpsins segir að um 125 slökkviliðsmenn hafi verið kallaðir að vettvangi í dag til að slökkva eldinn. Slökkvilið vinnur nú að því slökkva í síðustu glæðunum í þaki hússins. 17.8.2024 20:35
Kuldakastinu muni fylgja töluverð úrkoma Sjaldséð snjókoma er í kortunum í fjöllum Norðanlands á morgun. Veðurfræðingar telja nokkuð ljóst að úr þessari spá rætist. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir allt eðlilegt í íslensku veðurfari en viðurkennir þó að það sé frekar óvanalegt að fá svona kuldakast í ágúst. Rætt var við Harald í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. 17.8.2024 19:56
Harðfisk-, laxa- og beikonís á Ísdeginum í Hveragerði Kjörísdagurinn Stóri var haldinn hátíðlegur í Kjörís í Hveragerði í dag í fimmtánda sinn. Hátíðin er dagskrárliður á bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum sem er haldin árlega í Hveragerði. Í tilkynningu frá Kjörís kemur fram að gefnir hafi verið um 200 þúsund skammtar af ís og að áætlað sé að um 22 þúsund manns hafi látið sjá sig á hátíðinni. 17.8.2024 18:36
Hamas segir sáttasemjara „selja blekkingar“ Alls létust 18 í loftárás Ísraela á Gasa í dag. Aðeins nokkrum klukkutímum eftir að sáttasemjarar frá Bandaríkjunum, Egyptalandi og Katar luku tveggja daga viðræðum um vopnahlé á Gasa. Unnið hefur verið að samkomulaginu í nokkra mánuði. 17.8.2024 18:19
Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Landsbankinn spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum óbreyttum þegar nefndin kemur saman í næstu viku. Í frétt á vef bankans segir að verðbólga hafi aukist umfram væntingar í júlí. Þó hún hafi verið almennt á niðurleið undanfarið hafi hjöðnunin verið hægari en vonir stóðu til. 15.8.2024 11:25
Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram tillögu á fund borgarráðs um að hjólhýsabyggðinni í Reykjavík verði fundin ný staðsetning. Eins og stendur eru þau í Sævarhöfða. Kolbrún leggur í tillögu sinni til sex svæði sem hún vill að séu metin með tilliti til umhverfisáhrifa og kostnaðar. 15.8.2024 09:09
Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Hafsteinn Sævarsson hafði ekki búið lengi í Grindavík þegar hörmungarnar dundu yfir í nóvember í fyrra. Hann og konan hans keyptu sér eign þar í júlí í fyrra og ætluðu að búa sér til framtíðarheimili í Grindavík. Í dag búa þau í Þorlákshöfn en greiða enn af húsnæði í Grindavík sem þau geta ekki selt Þórkötlu nema með milljónatapi. 15.8.2024 08:33
Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Upp úr klukkan hálf eitt í nótt fundu björgunarsveitir göngu mennina sem villtust í þoku á Kerlingafjallasvæðinu í gær. 15.8.2024 08:00
Lægð yfir landinu og skúradembur norðan- og austantil Alldjúp og hægfara lægð er nú yfir norðanverðu landinu. Henni fylgir vestlæg átt, kaldi eða stinningskaldi og rigning víða um land. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það dragi úr vætu norðvestantil þegar líður á daginn. 15.8.2024 07:26
Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Sigurgeir Svanbergsson synti í gær frá Flateyri til Holtsstrandar og sló hraðamet í sundinu sem hann vill kalla Drengjasund. Sigurgeir stundar sjósund til að berskjalda sig fyrir því sem honum þykir óþægilegt. Hann segir hafi geta verið hættulegt og skelfilegt en það jafnist ekkert á við tilfinninguna að skríða upp hinum megin. 14.8.2024 16:00