Útiræktað grænmeti mánuði fyrr í ár en í fyrrasumar Útiræktað grænmeti er nú komið í verslanir mánuði fyrr en síðasta sumar. 15.7.2019 10:00
Með hundrað bit eftir lúsmý á Flúðum Árni Þór Hilmarsson, íbúi á Flúðum lætur lúsmýið á staðnum ekki trufla sig þrátt fyrir að hann hafi verið bitinn hundrað sinnum. Mest var um mýið í júní, svo bar ekkert á mýinu fyrstu dagana í júlí en nú virðist það vera komið á fullt aftur. 14.7.2019 16:04
Bleikur Trabant og gamall Citroen sjúkrabíll í Borgarnesi Bleikur Trabant og gamall sjúkrabíl vekja hvað mest athygli gesta, sem skoða bílana hjá Fornbílafélagi Borgarfjarðar í Brákarey í Borgarnesi. Sjúkrabílinn var einnig notaður sem líkbíll, blómabíll og brauðbíll. 13.7.2019 21:28
Glæsilegar flugvélar á Hellu á nokkurra daga flughátíð Flughátíðin „Allt sem flýgur“ stendur nú yfir á Hellu þar sem sjá má mikið af glæsilegum flugvélum af öllum stærðum og gerðum. 10.7.2019 19:45
Vill helst skríða undir sæng og fara að gráta Eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Efstadals tvö í Bláskógabyggð harmar e.coli-smit sem kom upp þar. 9.7.2019 18:30
Dómurinn ekki í samræmi við aðalkröfu ákæruvaldsins Dómur Héraðsdóms Suðurlands yfir Vigfúsi Ólafssyni vegna brunans á Selfossi er ekki í samræmi við aðalkröfu ákæruvaldsins í málinu. 9.7.2019 14:05
Dæmdur í fimm ára fangelsi vegna brunans á Selfossi Vigfús Ólafsson var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa valdið eldsvoða sem varð tveimur að bana á Selfossi í október í fyrra. Frá dómnum dregst gæsluvarðhald sem hann hefur setið í síðan í nóvember í fyrra. 9.7.2019 13:00
Hugmyndir eru uppi um að byggja Latabæjargarð í Borgarnesi Nú þegar hefur verið komið upp Latabæjarsafni í bæjarfélaginu, sem vekur verðskuldaða athygli. Í Borgarnesi er líka stærsta lögregluhúfu safn landsins. 7.7.2019 22:29
Selfyssingar fagna veðurstöð á Selfossi Stöðin veitir allar helstu veðurupplýsingar, auk þess sem hún nýtist vel fyrir Sveitarfélagið Árborg við hönnun mannvirkja og fráveitna. 6.7.2019 22:30
Íbúar í Árborg verða 10 þúsund um áramótin Íbúum í Sveitarfélaginu Árborg fjölgar hratt og stefnir í að fjöldi íbúa verði komin upp í tíu þúsund manns um næstu áramót. Það sem af er ári hefur íbúum fjölgað að meðaltali um fimm prósent í hverjum mánuði. 6.7.2019 14:07