Fréttamaður

Oddur Ævar Gunnarsson

Oddur Ævar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Spenna vegna talna og dómarar fylgjandi sniðgöngu

Spennan er mikil meðal fjölmargra landsmanna að sjá kosningatölurnar úr Söngvakeppni Ríkisútvarpsins frá því á laugardagskvöld. Fullyrt er að galli í kosningakerfinu hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu keppninnar. Fulltrúar í dómnefnd RÚV eru meðal þeirra sem vilja sniðganga keppnina.

Af­létta rýmingu í Grinda­vík

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að opna aftur fyrir aðgengi að Grindavík eftir að svæðið var rýmt í gær í kjölfar kvikuhlaups. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Endur­meta rýmingu í kvöld

Lögreglan á Suðurnesjum hyggst endurmeta aðgengi að rýmdum svæðum í og við Grindavík í kvöld klukkan 19:00. Beðið er eftir því að Veðurstofan vinni úr gögnum af svæðinu.

Sonurinn gat ekki kosið Bashar

Fjölskylda sem var stödd á Söngvakeppninni í Laugardalshöll í gær gekk vel að kjósa Heru Björk, sigurvegara keppninnar. Þegar þau ætluðu svo að kjósa Bashar Murad slitnaði línan. Ekkert er að frétta af skoðun RÚV á kosningaappi sínu.

Rétt­læti ekki hvernig sum hafi leyft sér að tala um Heru

Alexandra Briem borgarfulltrúi segir að það hefðu verið sterk skilaboð að senda Bashar Murad út til Malmö að keppa í Eurovision í ár. Vegna úrslita Söngvakeppninnar í gærkvöldi telur Alexandra réttast að sniðganga keppnina.

Snjó­flóða­hætta á Norður­landi og Aust­fjörðum

Varasamar snjóaðstæður eru á Norðurlandi og á Austfjörðum. Talsvert hefur snjóað á Austfjörðum og nýr snjór sem fallið hefur síðan á þriðjudag virðist bindast illa við eldri snjó sem hefur gengið í gegnum hláku.

Niður­læging fyrir þýsk stjórn­völd

Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur heitið því að rannsakað verði til hlýtar hvernig upptökur af leynilegum fundum þýska hersins um Úkraínustríðið komust í dreifingu á rússneskum samfélagsmiðlum.

Kyssti eigin­manninn í skugga skandals

Kryddpían Geri Halliwell mætti á fyrstu keppni formúlunnar í ár í Bahrain í gær til að vera viðstödd keppnina ásamt eiginmanni sínum Christian Horner. Um stuðningsyfirlýsingu er að ræða að sögn erlendra miðla.

Sjá meira