Fréttamaður

Oddur Ævar Gunnarsson

Oddur Ævar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Tókust á um fjölda borgar­full­trúa

Skiptar skoðanir eru á því meðal oddvita í kosningum til borgarstjórnar um fjölda borgarfulltrúa. Þeir eru nú 23 talsins en voru um árabil fimmtán. Einn oddvita segir um lýðræðismál að ræða en annar segir fjölda borgarfulltrúa þann mesta sem gerist hér á landi miðað við nágrannalöndin.

Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós

Aflýst flugferð Icelandair til Seattle í síðustu viku hafði mest áhrif á eldra fólk og farþega sem treystu á beint flug vestur um haf. Þetta segir Magnús Halldórsson, ráðgjafi hjá Business Iceland, sem dáist að þremur pólskum konum á þjónustuborði Icelandair sem fóru á kostum við að hjálpa strandaglópum.

Út­strikanir gætu haft á­hrif en þær virka svona

Erfitt er að setja fingur á hve mörg prósent kjósenda þurfa að strika út frambjóðanda til fella hann niður um sæti. Ljóst er að útstrikanir gætu haft áhrif í kosningunum en dæmi eru um að frambjóðendur séu strikaðir út og falli þar með niður um sæti, meðal annars í sveitarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum.

Kosning um sam­einingu sveitar­fé­laganna ó­gild

Innviðaráðuneytið hefur ógilt íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem fóru fram í mars vegna ágalla. Sveitarstjórnir beri að ákveða í sameiningu hvenær önnur kosning fari fram en ljóst sé að kosið verði til sveitarstjórna í báðum sveitarfélögum á morgun.

Hníf­jafnt til hægri og vinstri

Kjósendur í Reykjavík eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort myndaður verði meirihluti til hægri eða vinstri að kosningum loknum, ef marka má nýja könnun Maskínu. 50,7 prósent vilja meirihluta frá miðju til vinstri en 49,3 prósent vilja meirihluta frá miðju til hægri. Meirihluti kjósenda Viðreisnar vill samstarf til vinstri.

Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar

Landsmenn munu ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa til sveitarstjórna víðsvegar um landið. Kjörstaðir verða opnaðir um allt land í fyrramálið, flestir klukkan níu og verður þeim í flestum tilfellum lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi kosningarnar og framkvæmd þeirra.

Einar kom öllum á ó­vart

Það varð uppi fótur og fit í síðasta þætti Af vængjum fram þegar Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar mætti með eigin sósur sem hann fékk í Mexíkó. Erfitt ástand eftir fjóra vængi varð enn erfiðara í þættinum en Einar lét sér ekki segjast, sósurnar væru ekki nógu sterkar.

Á­kvörðun um að sýna Euro­vision tekin fyrir barna­fjöl­skyldur

Ríkisútvarpið sýnir Eurovision í ár þar sem útvarpið vildi gefa fólki sem hefur áhuga á Eurovision kost á að fylgjast með keppninni með íslenskum þul frekar en að vísa því fólki á erlenda miðla sem einnig sýni keppnina. Keppnin sé auk þess vinsæl meðal fjölskyldufólks og þess vegna fór Ríkisútvarpið ekki sömu leið og spænska, írska og slóvenska ríkisútvarpið sem ákváðu hvorki að taka þátt í keppninni né sýna frá henni. 

Sjá meira