„Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár fela í sér þyngri byrðar á bæði fjölskyldur og fyrirtæki. Hærri álögur komi ekki í stað varanlegs aðhalds í ríkisrekstri. 7.9.2026 13:21
„Hvar ætla þau þá að spara?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja jákvætt að ríkisstjórnin stefni að hallalausum ríkisrekstri en segja að það hangi á bláþræði hvort það muni takast og óttast að áætlanir muni ekki halda. Þá segist þingmaður Miðflokksins óljóst hvar skera eigi niður á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bankaskatt eiga eftir að bitna mest á skuldurum. 7.9.2026 12:58
Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Ríkisstjórnin hyggst kynna nýja gjaldtöku á ferðamannastöðum sem felur í sér að ferðamenn verða rukkaðir um sérstakan aðgöngumiða. Fjármálaráðherra segir um að ræða fyrirkomulag sem þekkist víða annars staðar en með þessu á að afla fimm milljarða króna til ríkissjóðs. 7.9.2026 10:52
Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs. 7.9.2026 10:27
Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. 7.9.2026 10:15
Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár í beinni útsendingu. Útsendinguna auk textalýsingar frá fundinum má finna neðst í fréttinni. 7.9.2026 08:01
Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. 4.9.2026 14:00
Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Heilbrigðisráðherrar Danmerkur og Grænlands hafa komist að samkomulagi um að Grænlendingar geti nálgast fría læknisþjónustu í Danmörku. Hingað til hafa Grænlendingar þurft að sækja um sérstök leyfi til að nálgast læknisþjónustu í Danmörku en Grænlendingar hafa stýrt eigin heilbrigðismálum síðan árið 1992. 4.9.2026 07:43
Lægðardrag teygir sig yfir landið Lægðardrag teygir sig nú yfir landið og er vindátt því breytileg. Yfirleitt gola eða kaldi í dag eða einhverjar skúrir á stangli, en norðan- og austanlands má víða búast við rigningu eða súld. Hiti sjö til fimmtán stig, hlýjast á Suðausturlandi. 4.9.2026 07:17
Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Hinn árlegi haustboði, tollering nýnema fór fram í blíðskaparveðri fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík í dag. Fréttamaður og tökumaður skelltu sér á vettvang og stemningin var ógleymanleg. 3.9.2026 15:41