Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Eitt umtalaðasta atvikið frá kappræðum forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum í gærnótt er samsæriskenning Donald Trump um gæludýraát innflytjenda. Frekari upplýsingar hafa nú komið fram um meint dýraát, sem forsetinn fyrrverandi byggði kenningu sína á. 11.9.2024 23:44
Lítið mál að fjölga löggum Lögregla undirbýr meiri viðveru í miðborginni til þess að sporna við auknu ofbeldi og hnífaburði meðal ungmenna. Viðbragð lögreglu er hluti af aðgerðum stjórnvalda sem eiga að taka á ofbeldishrinu. 11.9.2024 22:17
Tækifæri til að sammælast um breytingar á stjórnarskránni Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hélt í kvöld stefnuræðu fyrir komandi þingvetur. Í ræðu sinni kom hann víða við, sagði raunhæfan möguleika á að afgangur verði á ríkissjóði á næsta ári, þrátt fyrir að opinberar áætlanir geri ráð fyrir halla. Varðandi útleningamál sagði hann að Ísland megi ekki verða segull á umsóknir um alþjóðlega vernd. 11.9.2024 20:58
Býður Taylor barn Auðkýfingurinn Elon Musk er ólíkindatól. Í dag skrifaði hann einkennilega færslu á samfélagsmiðli sínum X þar sem hann býðst til þess að gefa söngkonunni Taylor Swift barn eftir að hún gaf út stuðningsyfirlýsingu við Kamölu Harris forsetaefni Demókrata. 11.9.2024 20:19
Tárast yfir verði á aðgerð og þúsundir barna á biðlista Sjúklingar þurfa að reiða fram rúma milljón króna til að komast í bakaðgerð hjá einkaaðilum. Við ræðum við forstjóra sem segir að verið sé að búa til stéttaskiptingu í heilbrigðiskerfinu og að fólk fari stundum að gráta þegar það heyrir verðið. 11.9.2024 17:58
1,4 milljarðar króna fyrir að mæta ekki fyrir rétt Bandaríski rapparinn Sean „Diddy“ Combs var í dag dæmdur til þess að greiða meintum brotaþola 100 milljónir dala, um 1,4 milljarða króna, vegna kynferðisbrots fyrir 27 árum síðan. 11.9.2024 00:02
„Þetta er allt að koma...eftir sjö ár“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ekki ýkja hrifin af fjárlagafrumvarpinu sem Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra kynnti í dag undir yfirskriftinni „Þetta er allt að koma“. „Þetta er allt að koma...eftir sjö ár,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. 10.9.2024 23:16
Sveik 1,3 milljarða úr streymisveitum með gervispilunum Karlmaður í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir stórfelld fjársvik sem fólust í því að framleiða urmul laga með hjálp gervigreindar og nýta vélmenni til að falsa spilanir á streymisveitum. Með þessum hætti fékk hann greidd höfundalaun sem námu hátt í 1,3 milljörðum króna. 10.9.2024 22:00
„Píratar hafa lengi verið mikið áhugamál hjá mér“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins mun sitja í þingsal umkringdur Pírötum þennan þingvetur. Píratar hafa lengi verið sérstakt áhugamál Sigmundar sem kveðst spenntur að halda áfram að rannsaka þá og vonandi „koma þeim inn á rétta braut“. 10.9.2024 19:48
Mótmælt við þingsetningu, hávaði og afdrifaríkar kappræður Síðasti þingvetur kjörtímabilsins hófst formlega í dag þegar Alþingi var sett og fjárlagafrumvarp lagt fram. Mótmælendur söfnuðust saman á Austurvelli og stjórnarandstaðan gagnrýnir útgjaldavöxt í verðbólgu. 10.9.2024 18:28