Leggur til afnám við sjálfkrafa skráningu barna í trúfélög Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um skráð trú- og lífsskoðunarfélög. Breytingin felur í sér að færa ákvörðun um félagsaðild barna í trú- og lífsskoðunarfélög til foreldra og síðar til barnanna sjálfra þegar þau ná 12 ára aldri. 24.1.2023 23:48
Leynileg skjöl fundust á heimili Pence Tólf leynileg skjöl fundust við leit á heimili Mike Pence, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, í Indiana fylki í Badnaríkjunum. Lögfræðingur Pence fann skjölin og hafa þau nú verið afhent alríkislögreglunni. 24.1.2023 23:14
Verkföll komi spánskt fyrir sjónir í ljósi góðra launa Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir að stemning fyrir verkföllum virðist vera lítil innan ferðaþjónustunnar. Rekstraraðilar hafa leitað til samtakanna vegna starfsfólks sem vilji skrá sig úr Eflingu. 24.1.2023 22:51
Gera ekki athugasemdir við vanhæfi Þrastar Innviðaráðuneyti gerir ekki athugasemdir við ákvörðun sveitastjórnar Múlaþings þar sem Þröstur Jónsson, sveitastjórnarfulltrúi Miðflokksins, er talinn vanhæfur til að fjalla um leiðarval fyrirhugaðra Fjarðarheiðarganga. Þröstur kærði ákvörðun tíu af ellefu sveitastjórnarmanna til ráðuneytisins. 24.1.2023 21:23
Hleypa hlébörðunum á vígvöllinn Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur tekið ákvörðun um að senda skriðdreka, svonefnda hlébarða (Leopard 2) til Úkraínu. Þá verður öðrum þjóðum, sem búa yfir slíkum skriðdrekum, að öllum líkindum leyft að senda þá til Úkraínu, en þar sem skriðdrekarnir eru framleiddir í Þýskalandi þurfa þarlend yfirvöld þurfa að samþykkja útflutning þeirra. 24.1.2023 19:07
„Þá er hægur leikur að leyfa annan vopnaburð“ Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra, á því hvers vegna reglugerðarbreytingar sem snúa að því að veita lögreglumönnum rafbyssur hafi ekki verið teknar til umræðu innan ríkisstjórnar. Þingmaður Samfylkingar segir að ef hægt sé að leyfa rafbyssur án samráðs við ríkisstjórn sé hægur leikur að leyfa annan vopnaburð. 24.1.2023 17:40
„Þú ert að sturta þessum prófessorstitli þínum í ruslflokk“ Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segist ekki hrifinn af hugmyndum innan stéttarfélagsins Eflingar að draga eigi launafólk í dilka eftir búsetu. Stefán Ólafsson, sérfræðingur innan Eflingar segir að Samtök atvinnulífsins hafi haldið sýndarfundi við Eflingu sem þau hafi viljað semja síðast við. Hann segir Vilhjálm einnig „hóta“ Eflingarfólki því að það muni tapa þremur milljörðum á því að berjast fyrir sínum kjörum. 15.1.2023 14:45
„Alveg ljóst að um veikindi einstaklings er að ræða“ Tveir þurftu að leita á sjúkrahús eftir að karlmaður, sem er talinn andlega veikur, réðist á þau í Kringlunni. 15.1.2023 13:19
Neyðarástandi lýst yfir vegna hamfaraflóða Að minnsta kosti 19 manns hafa látist af völdum flóða í Kaliforníu í Bandaríkjunum og þúsundir þurft að yfirgefa heimili sín. Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástandi vegna óveðursins. 15.1.2023 10:47
Á löggustöð í úlpu með frosinn gogg Lögreglan á Suðurnesjum fann gæs með frosinn gogg á vappi í gær og bauð henni að hlýja sér í úlpu á lögreglustöðinni. 15.1.2023 10:24