Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Aldrei hafa fleiri umsóknir borist um nám í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn við Háskólann á Akureyri. Alls bárust 250 umsóknir. Inntökupróf stóðu yfir mestallan apríl mánuð. 8.7.2025 06:21
Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Skipstjóri var handtekinn í gærkvöldi þegar hann kom í höfn í Reykjavík. 8.7.2025 06:10
Rembihnútur á þinginu en örþrifaráð ekki til umræðu Frumvarp um veiðigjöld er eitt á dagskrá Alþingis í dag og búast má við löngum og miklum umræðum. Þingflokksformenn mættu til vikulegs fundar með forseta þingsins í morgun og enn eru þinglokasamningar ekki í höfn. Þingflokksformenn segja rembihnút kominn á viðræðurnar sem sigldu í strand um helgina. 7.7.2025 12:22
Bandarískur kjarnorkukafbátur í heimsókn Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur verður í þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag og næstu daga þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn. 7.7.2025 10:33
Formenn þingflokka halda spilunum þétt að sér Þinglok eru hvergi í augsýn og þingflokksformenn halda spilunum þétt að sér. Þeir funda með forseta Alþingis áður en þingfundur hefst klukkan tíu en eina málið á dagskrá er veiðigjaldafrumvarpið. 7.7.2025 08:47
Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Donald Trump Bandaríkjaforseti segir tilætlanir Elons Musk, auðkýfings og „niðurskurðarkeisara,“ um að stofna nýjan stjórnmálaflokk fáránlegar. Hann líkir því jafnframt að það að fylgjast með athöfnum þessa fyrrum samstarfsfélaga við að horfa á lestarslys í beinni útsendingu. 7.7.2025 08:00
Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Skjálfti af stærðinni 3,4 mældist snemma í morgun um 11,1 kílómetra austsuðaustur af Árnesi, nálægt Leirubakka í Landsveit. Skjálftinn mældist þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í fimm. 7.7.2025 07:35
Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Tala látinna í hamfaraflóðum sem dunið hafa á Texas-ríki undanfarna eftir mikla og skyndilega vatnavexti hefur náð 81. Fleiri tuga manns er enn saknað og björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar standa í ströngu við að finna týnda ástvini. 7.7.2025 06:45
Hiti nær 22 stigum fyrir austan Nú í morgunsárið er hæðarhryggur yfir landinu. Hægur vindur um mest allt land og yfirleitt bjart. Á Höfuðborgarsvæðinu eru enn þokuský á sveimi, en nú þegar sólin byrjar að skína hverfur þar fljótlega á brott. Hiti nær allt að 22 stigum og hlýjast er austanlands. 7.7.2025 06:23
Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Lögreglunni á lögreglustöð eitt, sem sinnir verkefnum í mið- og vesturhluta borgarinnar, barst í gær tilkynning um óvelkominn aðila á öldrunarheimili. Hann var fjarlægður þaðan af lögreglumönnum. 7.7.2025 06:17