Íþróttafréttamaður

Runólfur Trausti Þórhallsson

Runólfur er íþróttafréttamaður á Vísi og Stöð 2 Sport.

Nýjustu greinar eftir höfund

Atlético Madríd stal sigrinum í París

Atlético Madríd tryggði sér frækinn sigur á París Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu. Eftir að lenda undir komu gestirnir frá Madríd til baka og tryggðu sér stigin þrjú með síðustu spyrnu leiksins. 

Vand­ræði Madríd halda á­fram

Franski miðvallarleikmaðurinn Aurélien Tchouaméni verður frá keppni næstu fjórar vikurnar hið minnsta eftir að togna á ökkla. Hann hefur verið í lykilhlutverki hjá Evrópu- og Spánarmeisturum Real Madríd sem hafa átt erfitt uppdráttar á leiktíðinni.

Börsungar á bleiku skýi í Belgrað

Barcelona gerði góða ferð til Belgrað í Serbíu þegar lærisveinar Hansi Flick sóttu Rauðu stjörnuna heim í Meistaradeild Evrópu í kvöld. 

Aftur skutu Skytturnar púður­skotum á Ítalíu

Inter Milan lagði Arsenal 1-0 í einum af stórleikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Skytturnar hans Mikel Arteta hafa nú farið tvívegis til Ítalíu á leiktíðinni og mistekist að skora í báðum leikjum sínum þar.

Grikk­land lagði Georgíu með minnsta mun

Grikkland og Georgía eru með íslenska karlalandsliðinu í handbolta í riðli í undankeppni EM 2026. Þjóðirnar mættust í dag og þar höfðu Grikkir betur með minnsta mun.

Glóru­laus Mings kostaði Villa

Aston Villa komst ekki á topp Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 tap gegn Club Brugge á útivelli. Sigurmarkið kom eftir að Tyrone Mings, miðvörður Villa, fékk á sig glórulausa vítaspyrnu.

McGregor sakaður um nauðgun

Bardagakappinn Conor McGregor er sakaður um að hafa nauðgað konu í Dublin á Írlandi árið 2018. 

Sjá meira