Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Bakgarðshlaupið stendur nú yfir í Heiðmörkinni. Rúmlega 250 manns skráðu sig til leiks en þegar þettar er skrifað eru átta hlauparar eftir og eru þeir að fara hring númer 25. 22.9.2024 09:23
Slegist með vopnum við skemmtistað Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um slagsmál fyrir utan skemmtistað þar sem menn voru sagðir slást með vopnum. Lögregluþjónar frá lögreglustöð 3, sem sér um Kópavog og Breiðholt, voru sendir á vettvang og eru slagsmálin til rannsóknar. 22.9.2024 07:49
Skiptast á eldflaugum í massavís Ísraelski herinn og Hezbollah hafa skotið fjölda eldflauga þvers og kruss yfir landamæri Ísrael og Líbanon í nótt og í gær. Árásirnar hafa líklega aldrei verið jafn umfangsmiklar í hvora áttina frá því Hezbollah hóf árásir á Ísrael í október í fyrra, eftir að Ísraelar hófu hernað sinn á Gasaströndinni. 22.9.2024 07:37
Senda svifsprengjur fyrir F-16 Yfirvöld í Bandaríkjunum íhuga að senda Úkraínumönnum nýjar svifsprengjur sem hægt er að varpa með F-16 orrustuþotum, sem Úkraínumenn hafa þegar fengið. Enn er verið að leggja lokahönd á næsta hergagnapakka sem Bandaríkjamenn ætla að senda en hann á að vera metinn á um 375 milljónir dala. 21.9.2024 14:55
Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Forsvarsmenn Repúblikanaflokksins í Norður-Karólínu hafa áhyggjur af því að þeir muni tapa öllum þeim árangri sem náðst hafi í ríkinu á undanförnum árum og að framboð hans muni koma niður á flokknum í komandi forsetakosningum. Er það vegna Mark Robinson, frambjóðenda þeirra til embættis ríkisstjóra en hann var nýverið sakaður um að hafa látið falla mjög svo umdeild ummæli á spjallborði klámsíðu. 21.9.2024 13:54
Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ráðstefnan „Taktu málin í þínar hendur!“ sem er á vegum Alzheimersamtakanna fer fram í dag. Hún er haldin í tilefni af alþjóðlegum Alzheimerdegi í dag og hefst klukkan hálf eitt. 21.9.2024 12:02
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Formaður dómstólsins í Avignon í Frakklandi lýsti því yfir í gær að ef frekari myndbönd verði sýnd af mönnum nauðga Gisele Pelicot sofandi, verði fjölmiðlafólki vísað úr salnum. Verjendur fimmtíu sakborninga í málinu kröfðust þessa og vísuðu til „mannlegrar virðingar“ skjólstæðinga þeirra en Gisele var sjálf mótfallinn því að fjölmiðlafólki yrði vísað út. 21.9.2024 10:32
Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Önnur stór vopnageymsla í Rússlandi stendur í ljósum logum eftir árás Úkraínumanna í nótt. Stórar sprengingar urðu í vopnageymslunni í nótt og hafa fleiri sést í morgun. 21.9.2024 07:58
Byssan reyndist leikfang Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með talsverðan viðbúnað eftir að tilkynning barst um mann sem ók um með það sem tilkynnandi kallaði loftbyssu. Umfangsmikil leit hófst þó að bílnum sem fannst skömmu síðar. 21.9.2024 07:15
Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Talsmaður Ísraelshers segir að þó nokkrir af háttsettum leiðtogum Hezbollah-samtakanna hafi verið felldir í loftárás í Beirút í dag. Helsta skotmark árásarinnar var Ibrahim Aqil, einn af æðstu leiðtogum samtakanna sem sagður var hafa leitt hernaðararm Hezbollah eftir að fyrrverandi leiðtogi þessa arms var ráðinn af dögum í júlí. 20.9.2024 16:52