„Sumarveður“ í kortunum Norðlægar áttir verða ríkjandi á næstu dögum en í vikunni er útlit fyrir að landið skiptist í tvenn hvað hita varðar. Hlýrra verður á sunnanverðu landinu en svalt á því norðanverðu. 17.7.2023 07:58
Grunaður raðmorðingi giftur íslenskri konu Maðurinn, sem handtekinn var í New York í gær og er ákærður fyrir að myrða þrjár konur, er giftur íslenskri konu. Spjótin beindust meðal annars að honum vegna DNA-sýnis sem fannst á konunum þremur og talið er vera af íslensku konunni. 14.7.2023 22:06
Skutu geimfari af stað til tunglsins í þriðja sinn Starfsmenn Geimvísindastofnunar Indlands (Isro) skutu í morgun geimfari af stað til tunglsins. Farið nefnist Chandrayaan en þetta er í þriðja sinn Indverjar skjóta tunglfari út í geim en þeir vilja verða fyrstir til að lenda fari á suðurpól tunglsins. 14.7.2023 15:03
Skæður raðmorðingi loks gómaður Lögreglan í New York hefur handtekið mann sem grunaður er um aðild að „Morðunum á Gilgo Beach“ svokölluðu. Hann er talinn hafa myrt nokkrar konur en líkamsleifar ellefu manns hafa fundist við rannsókn morðanna frá árinu 2010. 14.7.2023 14:20
„Wagner málaliðahópurinn er ekki til“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist hafa boðið málaliðum Wagner group að berjast áfram í Úkraínu en að auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hafi hafnað því. Þetta mun hafa gerst á fundi þann 29. júní, nokkrum dögum eftir uppreisn Wagner og sókn málaliðanna að Moskvu. 14.7.2023 11:01
Reyna að góma ágengan og þjófóttan otur Embættismenn í Kaliforníu vinna nú að því að handsama ágengan sæotur sem hefur verið að áreita fólk á brimbrettum og kajökum og jafnvel stolið brettum af fólki. Oturinn er fimm ára gamall og kvenkyns hefur hagað sér á ágengan hátt undan ströndum Santa Cruz. 14.7.2023 08:35
Borgarar pyntaðir í haldi Rússa og neyddir til þrælkunarvinnu Rússar halda þúsundum óbreyttra úkraínskra borgara í fangelsum, bæði á yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og í Rússlandi. Verið er að undirbúa mögulega fangelsun þúsunda Úkraínumanna til viðbótar en margir borgarar eru þvingaðir til þrælkunarvinnu. 13.7.2023 23:13
Reyna aftur að stöðva samruna Microsoft og Activision Samkeppniseftirlit Bandaríkjanna áfrýjaði í gær úrskurði dómara um að Microsoft mætti kaupa leikjafyrirtækið Activision Blizzard. Samruninn yrði sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins. 13.7.2023 11:59
„Ég er mikill daðrari“ Kevin Spacey, hinn þekkti bandaríski leikari, segist miður sín yfir því að maður hafi sakað sig um nauðgun. Spacey segist hafa liðið eins og hann hafi verið stunginn í bakið þegar hann heyrði fyrst af ásökunum. 13.7.2023 11:19
Hús hrynja vegna fordæmalausra flóða Rúmlega hundrað manns hafa látið lífið vegna umfangsmikilla flóða í norðurhluta Indlands í vikunni. Flóðunum hefur verið lýst sem fordæmalausum en þau fylgja fordæmalausum rigningum á monsúntímabilinu svokallaða, sem hófst í síðasta mánuði. 13.7.2023 10:23