Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. 26.10.2022 11:07
Reyna að lifa af og spila með áhorfendum Stelpurnar í Queens ætla að verja kvöldinu í undarlegum heimum og reyna að deyja ekki úr hungri þar. Þá munu þær einnig spila jackbox leiki með áhorfendum. 25.10.2022 20:31
Vildi ekki binda sig við ríkisstjórastólinn Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, vill ekki heita því að sitja heilt kjörtímabil sem ríkisstjóri, nái hann endurkjöri í kosningunum í næsta mánuði. Charlie Crist, mótframbjóðandi hans, gagnrýndi ríkisstjórann í kappræðum þeirra í gær og sagði hann ekki hafa áhuga til að sinna embættinu áfram. Öll hans athygli beindist að mögulegu forsetaframboði. 25.10.2022 14:07
Bandarískur flugmaður sem vann í Kína handtekinn í Ástralíu Bandarískur maður sem var flugmaður í landgönguliði Bandaríkjanna var nýverið handtekinn í Ástralíu og stendur til að framselja hann í Bandaríkjunum. Kínverjar eru sagðir hafa leitað til vestrænna flugmanna varðandi þjálfun í Kína. 25.10.2022 11:54
„Kokkur Pútins“ ræddi við hann og gagnrýndi leiðtoga hersins Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gengið hefur undir nafninu „kokkur Pútíns“, ræddi nýverið við Vladimír Pútin, forseta Rússlands, og gagnrýndi það hvernig haldið hefði verið á spöðunum varðandi innrás Rússa í Úkraínu. Gagnrýnin beindist mest að leiðtogum rússneska hersins en Prigozhin og aðrir hafa gagnrýnt herinn opinberlega að undanförnu. 25.10.2022 10:28
GameTíví spilar með áhorfendum Strákarnir í GameTíví og Benni úr Sandkassanum ætla að spila skemmtilega leiki með áhorfendum sínum í kvöld. Þeir leikir eru Fall guys, Golf with your friends og Warzone. 24.10.2022 19:30
Skuldir Twitter stigmagnast við yfirtöku Musks Yfirtaka Elons Musks á Twitter mun leiða til mikillar aukningar skulda hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu og gera rekstur þess erfiðar. Greinendur búast við því að fyrirtækið muni bæta við sig um þrettán milljörðum dala við yfirtökuna. 24.10.2022 17:10
Sendu tvær þyrlur eftir sprengingu um borð í flutningaskipi Landhelgisgæslunni barst í dag tilkynning um eld um borð í erlendu flutningaskipi undan ströndum Íslands. Áhafnir tveggja þyrla, varðskipsins Þórs og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum voru kallaðar út á mesta forgangi. 24.10.2022 15:50
Eldur kviknaði í bragga á Ásbrú Eldur kviknaði í húsnæði Borgarplasts á Ásbrú í dag. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja sendi slökkviliðsmenn á staðinn sem náðu tökum á eldinum en mikinn reyk bar frá eldinum. 24.10.2022 15:28
Réttarhöldin gegn fyrirtæki Trumps hefjast Réttarhöld í skattsvikamáli New York-ríkis gegn Trump Organization, fyrirtækis Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefjast í dag. Fyrsta verkefnið í dómsal mun að öllum líkindum reynast gífurlega erfitt en það er að finna ellefu kviðdómendur sem hafa ekki sterka skoðun á forsetanum fyrrverandi. 24.10.2022 15:07