Frestuðu ávarpi Pútíns um innlimun til morguns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlaði að ávarpa þjóðina í kvöld en svo virðist sem hætt hafi verið við að birta ávarpið. Fyrst átti að ávarpið, sem ku hafa verið tekið upp fyrr í dag, klukkan fimm að íslenskum tíma. 20.9.2022 22:30
Queens skoða uppruna mannsins Stelpurnar í Queens ætla að kíkja á uppruna mannkynsins í leiknum Ancestors: The Humankind Odyssey. Þar munu þær fikra sig í gegnum fyrsta æviskeið Óla Jóels. 20.9.2022 20:31
Lögreglubíll varð fyrir lest með handtekna konu í aftursætinu Kona sem lögregluþjónar í Colorado í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn slasaðist þegar lögreglubíll sem hún var í varð fyrir lest. Hún var ein í bílnum en lögregluþjónarnir höfðu lagt honum á lestarteinum, án þess að taka eftir því. 20.9.2022 08:00
Segja ágreining en ekki meintan ölvunarakstur ástæðu afsagnar Stjórn Fimleikasambands Íslands segir ekki rétt að Kristinn Arnarsson, formaður, hafi sagt af sér vegna meints ölvunaraksturs eins af landsliðsþjálfurum sambandsins. Langvarandi ágreiningur um val landsliðsþjálfara hafi þess í stað verið ástæðan og Kristinn hafi sjálfur sagt það. 20.9.2022 00:05
Sleppt úr fangelsi átta árum eftir útgáfu Serial Morðdómi Adnan Syed hefur verið snúið við af dómara eftir að saksóknarar fundu nýjar vísbendingar sem tengjast morði fyrrverandi kærustu hans. Mál Syeds varð frægt um heiminn allan eftir að fjallað var um það í hlaðvarpinu Serial sem birt var árið 2014. 19.9.2022 22:51
Formaður segir af sér eftir meintan ölvunarakstur landsliðsþjálfara Kristinn Arason, fyrrverandi formaður Fimleikasambands Íslands, sagði af sér á fundi stjórnar sambandsins í kvöld. Það gerði hann vegna ákvörðunar stjórnar Fimleikasambandsins að gera nýjan samning við landsliðsþjálfara sem er sagður hafa keyrt undir áhrifum áfengis eftir samkvæmi í sumar. 19.9.2022 21:19
Stærðarinnar jarðskjálfti undan ströndum Mexíkó Stærðarinnar jarðskjálfti undan ströndum Mexíkó í kvöld. Skjálftinn mældist 7,6 stig og átti hann upptök í Kyrrahafinu, um 37 kílómetra frá ströndum Mexíkó og á 15,1 kílómetra dýpi. Sérfræðingar eiga von á flóðbylgjum en minnst einn er dáinn en sá varð undir vegg sem hrundi. 19.9.2022 20:36
Flytja og skoða nýja Call of Duty Strákarnir í GameTíví ætla að opna flutningaþjónustu í kvöld og spila Call of Duty: Modern Warfare 2. Fyrst ætla strákarnir að reyna við leikinn Totally Reliable Delivery Service, áður en þeir kíkja á betu-prufu MW2. 19.9.2022 19:40
Skemmdirnar á Púertó Ríkó sagðar hörmulegar Fellibylurinn Fíóna olli hörmulegum skemmdum á eyjunni Púertó Ríkó í dag. Ríkisstjóri eyjunnar segir eyðilegginguna hvað versta í þéttbýli og að minnst einn sé látinn. Enn sé þó ekki búið að ná að fullu utan um eyðilegginguna. 19.9.2022 19:05
Þrjú ungmenni grunuð vegna sprenginganna Lögreglan á Suðurlandi hefur haft hendur í hári þriggja einstaklinga sem grunaðir eru um að hafa sprengt sprengjur á Selfossi. Þrímenningarnir eru taldir hafa búið til að sprengt heimagerðar sprengjur á undanförnum dögum en eru undir tuttugu ára aldri. 19.9.2022 17:47