Áttatíu herþotur yfir Gasa Her Ísraels tilkynnti skömmu fyrir fjögur í dag að áttatíu herþotur yrðu notaðar til að gera árásir á um 150 skotmörk á Gasa-ströndinni, einu þéttbýlasta svæði heims. Markmiðið væri að gera útaf við getu Hamas-Samtakanna til að skjóta eldflaugum á Ísrael. 11.5.2021 16:20
Cheney líklega bolað úr embætti á morgun Þingkonan Liz Cheney, þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir atkvæðagreiðslu um að víkja henni úr þeirri stöðu hennar. Leiðtogar flokksins eru ósáttir við að hún neiti að dreifa „stóru lyginni“ svokölluðu um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað Donald Trump, fyrrverandi forseta, sigur í kosningunum í fyrra. 11.5.2021 15:49
Hundrað dagar frá valdaráninu í Mjanmar Hundrað dagar eru liðnir frá því her Mjanmar tók þar völd. Það var gert á grundvelli grunsamlegra ásakana um kosningasvindl og var Aung San Suu Kyi, leiðtoga ríkisins komið frá völdum. Síðan þá hefur mikil óreiða og hundruð almennra borgara liggja í valnum. 11.5.2021 14:02
Hættustig vegna hættu á gróðureldum Búið er að lýsa yfir hættustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum allt frá Breiðafirði og austur undir Eyjafjöll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Þar segir að ríkislögreglustjóri hafi tekið þessa ákvörðun, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vestfjörðum, Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi. 11.5.2021 12:03
Hvetja konur til að eignast fleiri börn, nema í Xinjiang Verulega hefur dregið úr fólksfjölgun í Kína og hefur 1,4 milljarða manna samfélagið þar verið að eldast töluvert. Víðsvegar um Kína er verið að hvetja konur til að eignast fleiri börn, nema í Xinjiang-héraði. Þar er þrýst á konur til að eignast færri börn og þær jafnvel þvingaðar í ófrjósemisaðgerðir. 11.5.2021 11:26
Níu börn meðal hinna látnu á Gasa Her Ísraels hefur haldið loftárásum sínum á Gasa áfram í morgun en eldflaugum hefur sömuleiðis áfram verið skotið þaðan. Embættismenn á Gasa segja minnst 24 Palestínumenn, þar af níu börn, hafa látist í árásum Ísraels og rúmlega hundrað hafa særst. 11.5.2021 09:23
Mánudagsstreymið: Sýna hæfileika sína í LoL Strákarnir í GameTíví fengu einhverra hluta vegna ekki boð á MSI mótið sem stendur nú yfir í Laugardalshöll. Því ákváðu þeir að sýna hæfileika sína í League of Legends í mánudagsstreyminu. 10.5.2021 19:30
Fjölda eldflauga skotið að Ísrael Tugum eldflauga hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael og Jerúsalem í dag. Forsvarsmenn Hamas höfðu gefið yfirvöldum Ísraels frest til klukkan þrjú í dag, að íslenskum tíma, til að yfirgefa al-Aqsa moskuna á musterishæð. 10.5.2021 16:07
Búast ekki við að anna eftirspurn út 2022 Forsvarsmenn Sony vöruðu nýverið hóp greinenda við því að fyrirtækið myndi ekki anna eftirspurn eftir PlayStation 5 út árið 2022. Vandræðin má bæði rekja til mikillar eftirspurnar og skorts, meðal annars á hálfleiðurum. 10.5.2021 14:33
Ruslahaugur á sporbraut: Hættan á stórslysi eykst sífellt Spútnik, fyrsta gervihnetti jarðarbúa, var skotið á loft frá Sovétríkjunum árið 1957. Síðan þá hefur þúsundum gervihnatta og annarra muna verið skotið á braut um jörðu. Mikil óreiða ríkir á sporbraut og gífurlegt magn svokallaðs geimrusls hefur myndast þar. 10.5.2021 12:47
Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Innlent