Fyrsti þeldökki varnarmálaráðherra Bandaríkjanna Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur staðfest tilnefningu fyrrverandi herforingjans Lloyd J. Austin til embættis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann er fyrsti þeldökki varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. 22.1.2021 16:31
Leiðtogar smyglhringsins dæmdir í fangelsi Fjórir menn hafa verið dæmdir samtals 78 ára í fangelsi vegna dauða 39 farandmanna og kvenna frá Víetnam sem fundust í gámi í Essex árið 2019. Fólkið hefði kafnað í gámnum á meðan verið var að flytja hann frá Belgíu til Bretlands. 22.1.2021 15:19
Rúmlega fimmtíu þúsund Þjóðverjar hafa dáið vegna Covid-19 Fjöldi þeirra sem hafa dáið vegna Covid-19 í Þýskalandi er kominn yfir fimmtíu þúsund. Yfirvöld þar opinberuðu í dag 859 dauðsföll milli daga og samkvæmt opinberum tölum hafa 50.642 dáið þar í landi. 22.1.2021 14:26
Bandamenn Navalnís handteknir vegna mótmæla Bandamenn rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní, hafa verið handteknir vegna ætlana þeirra um að halda mótmæli vegna handtöku Navalnís víða um Rússland á morgun. Meðal þeirra eru þær Lyubov Sobol, og Kira Jarmísj, talskona Navalnís. 22.1.2021 12:42
Netverjar grínast áfram með Bernie: „Ég var bara að reyna að halda á mér hita“ Öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders vakti gífurlega mikla athygli á innsetningarathöfn Joe Biden á miðvikudaginn. Þar var hann klæddur í þykka úlpu og ullarvettlingum sem gerðir voru úr endurunnum efnum. 22.1.2021 11:25
Hópur réðst á fimmtán ára dreng um miðjan dag og myrti hann Fimmtán ára drengur var myrtur í Birmingham á Englandi í gær þegar hópur manna vopnaðir hnífum veittist að honum á miðri íbúðargötu. Lögreglan segir að ráðist hafi verið á hann um klukkan hálf fjögur í gær og hann hafi dáið af sárum sínum á sjúkrahúsi. 22.1.2021 09:42
Fimm dóu í bruna hjá stærsta bóluefnaframleiðanda heims Fimm eru dánir eftir að eldur kviknaði í húsnæði stærsta bóluefnaframleiðanda heims í Indlandi. Eldurinn mun þó ekki koma niður á framleiðslu bóluefnis AstraZeneca, sem fyrirtækið Serum Institute of India hefur verið að framleiða. 21.1.2021 16:35
Biden gefur í gegn veirunni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, skrifar undir tíu forsetatilskipanir í dag sem snúa að baráttunni við faraldur nýju kórónuveirunnar. Meðal þeirra aðgerða sem grípa á til er að skikka fólk til að auka framleiðslu bóluefna, auka skimun, opna skóla og fyrirtæki samhliða því að auka notkun andlitsgríma. 21.1.2021 15:33
Fimmtíu handteknir og hald lagt á rúmlega 300 milljónir evra Fimmtíu hafa verið handteknir og rannsókn hafin á stjórnmálamanni í áhlaupi lögreglunnar á Ítalíu gegn ‘Ndrangheta-mafíunni. Saksóknarar segja áhlaupið varpa ljósi á viðleitni mafíunnar til að þvætta fé og kaupa pólitísk áhrif. 21.1.2021 14:16
Q-liðar á krossgötum: Engin herlög og engar fjöldahandtökur Í þrjú ár hafa Qanon-liðar staðið í þeirri trú að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi háð leynilega baráttu gegn djöfladýrkandi Demókrötum og meðlimum elítunnar svokölluðu sem níðast á börnum og drekka blóð þeirra til að halda sér ungum. 21.1.2021 12:29