Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Bráð veikindi á Fimm­vörðu­hálsi

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út og er á leið að Fimmvörðuhálsi vegna alvarlegra veikinda sem upp komu hjá göngumanni. Aðgerðir eru enn yfirstandandi.

Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi

Um klukkan fimm í morgun voru björgunarsveitir ræstar út vegna ungs manns sem skilaði sér ekki til baka úr ferð um uppsveitir Suðurlands. Maðurinn hafði haldið af stað í gærkvöldi einsamall og meðal annars ætlað sér að klífa fjöll.

„Það er gaman að gera erfiða hluti“

„Ég hleyp aldrei, mér finnst bara gaman að taka áskoranir, á sjálfan mig,“ segir Egill Trausti Ómarsson sem mætti greinilega með rétta hugarfarið á Esjuna í dag. Egill ætlar, ásamt Hrólfi Vilhjálmssyni, að hlaupa fimmtán sinnum upp og niður fjallið í dag. Ævintýrið hófst klukkan fjögur í morgun og voru þeir félagar að klára sína fimmtu ferð þegar fréttastofa náði tali af Agli á tíunda tímanum í morgun.

Neytendastofa tæklar bílastæðamálin

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum.  Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. 

Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný

Vesturbæjarlaug var opnuð á ný klukkan þrjú í dag eftir að hafa verið lokuð vegna viðhalds í tíu daga, frá 23. júní síðastliðnum. Við opnun var hiti sundlaugarinnar um tólf gráður en byrjað var að láta renna í hana síðdegis í gær. Það má því velta fyrir sér hvort laugin muni fyrst og fremst draga að sjósundsfólk í dag en búist er við að laugin muni hafa náð fullum hita á morgun.

Snæddi með furstanum af Móna­kó

Halla Tómasdóttir forseti Íslands snæddi hádegisverð með Alberti, fursta af Mónakó. Ræddu þau meðal annars hvernig smáríki geta haft áhrif og gildi öflugrar alþjóðlegrar samvinnu á tímum mikilla breytinga.

Quang Le fer ekki langt

Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi farbann yfir Quang Lé til föstudagsins 25. september næstkomandi. Quang er sakborningur í máli þar sem meðal annars er til rannsóknar gífurlega umfangsmikið mansal.

Vill að ríkið taki við sölu vímu­efna

Svala Jóhannesdóttir segir bann- og refsistefnu þegar kemur að vímuefnum ekki hafa skilað neinum árangri og kominn sé tími á að afleggja hana. Hún segir að sú stefna sem skili bestum árangri sé sú sama og í áfengismálum þar sem ríkið stjórni aðgengi. Skatttekjur af nýju kerfi myndu nægja til að fjármagna forvarnir og meðferðarstarf. Svala er formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og mannréttindi fólks sem notar vímuefni.

„Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“

„Ég held að tala látinna eigi eftir að hækka,“ segir tónlistarmaðurinn landskunni, Páll Óskar Hjálmtýsson, um hörmungarnar í Venesúela. Skjálfti að stærð 7,5 reið þar yfir á miðvikudag í liðinni viku og er tala látinna komin upp í 2295 samkvæmt yfirvöldum. Eiginmaður Páls Óskars, Antonio, er venesúelskur.

Leggur til að hætt verði lestri kveðja við út­farir

„Ég legg þetta til en almáttugur minn, þó ég sé nú stjórnsöm þá ræð ég þessu ekki ein,“ segir séra Hildur Eir Bolladóttir í pistli þar sem hún veltir því upp hvort sá siður í útförum að lesa upp kveðjur í lok minningarorða sé barn síns tíma.

Sjá meira