Landsbankinn varar við áformum um ríkislausn í greiðslumiðlun Landsbankinn hvetur stjórnvöld til að endurskoða frá grunni áform Seðlabanka Íslands um að koma á fót innlendri smágreiðslulausn. Bankinn varar við því að uppbyggingin verði „ómarkviss, tilviljunarkennd og óþarflega dýr“, og bendir jafnframt á að mörgum mikilvægum spurningum sé enn ósvarað. 28.7.2023 15:01
Verðtryggð fyrirtækjalán sækja í sig veðrið eftir fjögurra ára dvala Hagtölur gefa vísbendingu um að íslensk fyrirtæki séu í auknum mæli að velja verðtryggð lán eftir verulegar uppgreiðslur á slíkum lánum á árunum 2019 til 2022. 28.7.2023 08:09
Umframfé Arion allt að 24 milljarðar en útgreiðsla háð matsfyrirtækjum Arion banki bindur vonir við að eiginfjárkröfur fjármálaeftirlitsins annars vegar og erlendra matsfyrirtækja hins vegar muni leita í sama horf sem mun gera bankanum kleift að greiða út umfram eigið fé, sem er metið á bilinu 15-25 milljarðar króna, til hluthafa. 27.7.2023 13:32
Taprekstur kísilversins á Bakka versnaði milli ára Taprekstur kísilvers PCC á Bakka jókst verulega milli ára þrátt fyrir að tekjur fyrirtækisins hefðu meira en tvöfaldast. Stjórnendateymið hefur nú þegar hrint í framkvæmd rekstraráætlun sem miðar að því að bæta reksturinn. 27.7.2023 08:36
Þrettán fjárfestar draga Gamma fyrir dóm vegna meintra blekkinga Hópur þrettán fjárfesta, þar á meðal Stefnir, Lífsverk og fjárfestingafélagið Gnitanes, hefur höfðað mál á hendur Gamma Capital Management, dótturfélags Kviku banka, vegna þess hvernig staðið var að rekstri sjóðsins GAMMA:ANGLIA, sem fjárfesti í fasteignaþróunarverkefnum í Bretlandi. Fjárfestahópurinn segir Gamma meðal annars hafa blekkt fjárfesta með því að upplýsa ekki um að sjóðurinn hafi verið vanfjármagnaður frá upphafi, fjárfest langt um efni fram og handstýrt gengi hlutdeildarskírteina. 26.7.2023 12:37
Ríkur vilji meðal hluthafa að koma kaupaukum á fót Kaupaukakerfið sem fasteignafélagið Kaldalón hefur komið á fót er í samræmi við „ríkan vilja“ hluthafa eins og kom fram á síðasta aðalfundi félagsins. Þetta segir Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns, í samtali við Innherja. 25.7.2023 15:37
Spá 50 punkta vaxtahækkun vegna stöðunnar á vinnumarkaði Þrátt fyrir það að árstaktur verðbólgunnar hafi lækkað þrjá mánuði í röð er líklegasta niðurstaðan á næsta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að nefndin hækki vexti um 50 punkta. Þetta er mat skuldabréfamiðlunar Arion banka sem bendir á að Seðlabankinn geti ekki horfti fram hjá því að vinnumarkaðurinn er enn á „yfirsnúningi“. 25.7.2023 07:48
Fjarskiptafélögin „hressilega ofseld“ upp á síðkastið Fjarskiptafélögin Síminn og Sýn hafa ekki notið sanngirni á hlutabréfamarkaði að mati Jakobsson Capital en greiningarfyrirtækið telur að lækkanir á verði bréfanna hafi verið umfram tilefni. Þetta kemur fram í nýbirtu hlutabréfayfirliti fyrir júlí. 24.7.2023 12:19
Stærsti hluthafi Eikar tekur jákvætt í viðræður um samruna við Reiti Stjórnendur Brimgarða, sem er stærsti hluthafinn í Eik og leggst gegn yfirtökutilboði Regins, fullyrða að ekkert sé því til stuðnings að fjármögnunarkjör stærra fasteignafélags muni batna, heldur gætu kjörin þvert á móti versnað þar sem heimildir stærri fjárfesta til áhættutöku gagnvart einstaka útgefendum er takmörkuð. 4.7.2023 08:29
Actavis greiðir út 75 milljarða króna í formi arðs Stjórn Actavis Group PTC hefur lagt til að 500 milljónir evra, jafnvirði 75 milljarða króna, verði greiddar í formi arðs en endanlegur eigandi félagsins er Teva Pharmaceuticals, stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims. 29.6.2023 15:00