Íþróttafréttamaður

Valur Páll Eiríksson

Valur Páll er íþróttafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vals­menn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaft­æðið“

Þjálfari Þórs á Akureyri segir Valsmenn hafa sýnt vanvirðingu með því að mæta með annan flokk liðsins til leiks er þau áttust við norðan heiða í vikunni. Fjölmörg lið á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarin misseri ekki viljað senda sína bestu menn norður.

„Gátum ekki látið hann stjórna því“

Leikmenn fá ekki að stýra því hvar þeir spila á vellinum. Af þeim sökum er Ibrahima Baldé, lykilmaður í liði Þórs er það vann Lengjudeildina á síðustu leiktíð, farinn frá Akureyri.

Utan vallar: Hjá­kát­leg yfir­lýsing í skugga stríðs

Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki. 

Barton á­kærður fyrir líkams­á­rás

Fyrrum fótboltamaðurinn Joey Barton hefur verið ákærður ásamt öðrum fyrir meinta líkamsárás fyrir utan golfklúbb. Fórnarlambið er sagt í alvarlegu en stöðugu ástandi á spítala.

Gæti misst af titilvörninni

Rory McIlroy neyddist til að draga sig úr keppni á Arnold Palmer-boðsmótinu í golfi um helgina vegna bakmeiðsla. Óvíst er með þátttöku hans á Players-móti helgarinnar.

Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið

Í það minnsta fimm landsliðskonur Írans í fótbolta hafa strokið eftir þátttöku liðsins á Asíumótinu í Ástralíu. Leikmenn liðsins sættu harðri gagnrýni heimafyrir á meðan mótinu stóð og sagðar svikarar á stríðstímum.

Verstappen tikkar af golulistanum

Max Verstappen, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og ökuþór fyrir Red Bull, er sérlega spenntur fyrir því að taka þátt í 24 tíma þrekkappakstrinum á Nürburgring í vor.

HM-leikir í Boston í upp­námi

Aðeins 94 dagar eru þar til HM karla í fótbolta hefst í Norður-Ameríku. Enn er ekki endanlega staðfest að sjö fyrirhugaðir leikir í Boston geti farið fram vegna deilna um kostnað.

Sjá meira