Flug

Fréttamynd

Stranda­glópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður að­gangur að flugi

Erling Ormar Vignisson og eiginkona hans, Dögg Gunnarsdóttir, telja að brotið hafi verið á farþegaréttindum þeirra þegar þeim var meinaður aðgangur að flugi með Neos sem þau keyptu hjá Heimsferðum og þeim boðið í staðinn að fljúga heim í gegnum London í næturflugi. Lög geri ráð fyrir að farþegar eigi að geta annaðhvort fengið endurgreitt eða sambærilega ferð í staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Far­þegum fjölgaði á milli ára í mars

Icelandair flutti 342 þúsund farþega í mars 2026, 10 prósentum fleiri en í mars á síðasta ári. Í mánuðinum voru 39 prósent farþega á leið til Íslands, 22 prósent frá Íslandi, 32 prósent voru tengifarþegar og sjö prósent ferðuðust innanlands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Virkjuðu flug­slysaáætlun á Akur­eyri

Dagurinn hefur verið annasamur hjá björgunarsveitum í austanbylnum sem gengur yfir landið. Á sjötta tímanum var óskað eftir aðstoð í Reykjanesbæ vegna yfirvofandi foktjóns. Þá var viðbragðsáætlun vegna flugslyss virkjuð á Akureyri í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ó­veðrið hefur á­hrif á flugáætlun Icelandair

Óveðrið sem gengur brátt yfir landið er farið að hafa áhrif á flugferðir Icelandair og hafa nokkrar utanlandsferðir verið felldar niður í fyrramálið. „Það er náttúrulega spáð mjög slæmu veðri um allt land á morgun og við gerum alveg ráð fyrir að það muni valda einhverjum röskunum á flugi.“ 

Innlent
Fréttamynd

Innan­lands­flugi af­lýst vegna veðurs

Flugferðum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Unnið er að endurskipulagningu flugferða til að ferðalangar komist á áfangastað í síðasta lagi á morgun. 

Innlent
Fréttamynd

Stjórn­stöð í Kópa­vogi sem líkist geimferðamiðstöð

Í skrifstofubyggingu í Smárahverfi í Kópavogi er stjórnstöð þakin svo mörgum tölvuskjám að minnir á geimferðamiðstöð. Stöðin á það sammerkt með NASA að þar sitja einnig sérfræðingar við skjái að fylgjast með að allt gangi vel í ferðum á fjarlægum slóðum.

Innlent
Fréttamynd

Engar fækkanir fyrir­hugaðar fari kaupin í gegn

Icelandair kannar kaup á tæplega helmingshlut í starfsemi Fly Play á Möltu. Forstjórinn segir að takist kaupin muni það efla starfsemi félagsins. Ekki sé gert ráð fyrir fækkun starfsfólks hér á landi. Þrotabú Play mun fá tiltekna hlutdeild í fyrirhuguðum viðskiptum gangi kaupin eftir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þrota­búið fengi hlut­deild í mögu­legum endur­heimtum starf­seminnar á Möltu

Hlutabréfaverð Icelandair hefur rokið upp eftir að greint frá áformum þess um að kaupa tæplega helmingshlut í Fly Play Europe en forstjóri flugfélagsins segir aðgang að flugrekstrarleyfi á Möltu geta skapað „talsverð hagræðingartækifæri.“ Gangi samkomulagið eftir þá mun þrotabú Play fá hlutdeild í mögulegum endurheimtum skuldabréfaeigenda þegar starfsemin á Möltu fer af stað.

Innherji
Fréttamynd

Ofsa­hræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flug­tak

Ofsahræðsla greip um sig meðal farþega flugvélar Delta Air Lines þegar henni var flogið á loft í Sao Paulo í Brasilíu í gær. Rétt eftir flugtak slökknaði á öðrum hreyfli vélarinnar með miklum látum og hvellum og kviknaði í honum. Engan sakaði þó og tókst flugmönnum flugvélarinnar að snúa við og framkvæma neyðarlendingu.

Erlent
Fréttamynd

Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim

„Íslendingar vita kannski ekki mikið um Atlanta. Þeir eru svo ósýnilegir í íslensku viðskiptalífi. Þar er bara yfirbyggingin og skrifstofan. En öll starfsemin er náttúrlega annarsstaðar.“

Innlent
Fréttamynd

Þrota­bú Wow air verður af hundruðum milljóna króna

Landsréttur hefur sýknað sjö kröfuhafa Wow air af kröfum þrotabús félagsins um riftun á mörg hundruð milljóna króna greiðslum sem félagið greiddi þeim skömmu fyrir gjaldþrot þess. Skúli Mogensen og stjórnarmenn í félaginu voru einnig sýknaðir af skaðabótakröfu upp á rúma tvo milljarða króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leyniklefi á­hafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla

Risaþotum af gerðinni Boeing 777 í flota Air Atlanta fjölgar upp í sex á árinu en þær eru núna stærstu flugvélar heims í fjöldaframleiðslu. Svo stórar eru þær að um borð er að finna leyniklefa uppi í rjáfri fyrir áhafnir sem farþegar vita almennt ekki um.

Innlent
Fréttamynd

Af­lýsa og seinka flug­ferðum

Morgunflugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli á morgun hefur ýmist verið aflýst eða því seinkað vegna veðurs. Komuflugi Icelandair frá Norður-Ameríku hefur verið seinkað frá morgni til hádegis og búist er við að veðrið muni hafa áhrif á innanlandsflug fyrri partinn.

Innlent
Fréttamynd

Isavia ANS hefur ham­skipti og verður Avians

Flugleiðsöguþjónusta Isavia yfir Norður-Atlantshafi fékk nýja nafnið Avians í dag. Dótturfélagið hefur fram að þessu gengið undir heitinu Isavia ANS en breytingin er sögð eiga að aðgreina ólíka starfsemi samstæðunnar skýrar og ganga betur í erlenda viðskiptavini.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Okkar bestu menn valdir í afísinguna“

Afísing flugvéla er einhver þýðingarmesti öryggisþáttur flugsins í vetrarveðrum eins og núna ganga yfir landið. Afísingarsérfræðingur á Keflavíkurflugvelli segir þá sem annast verkið vel meðvitaða um hvað sé í húfi.

Innlent
Fréttamynd

Hinir treystu sér ekki en Ís­lendingarnir flugu

Íslendingar skipa stóran sess í flugsögu Grænlands. Íslenskir flugmenn gátu sér þar snemma gott orð. Talað var um að þeir treystu sér oftar til að fljúga í krefjandi landslagi og misjöfnu veðri en aðrir flugmenn.

Innlent