Slökkvilið

Fréttamynd

Aukin hætta á gróðureldum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins varar við aukinni hættu á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu næstu daga vegna langvarandi þurrka. 

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta á Hring­braut

Bíll valt á Hringbraut í morgun en enginn er talinn alvarlega slasaður. Ökumaðurinn komst sjálfur út úr bílnum en einhverjar tafir eru á umferð vegna slyssins.

Innlent
Fréttamynd

Eldur olli miklum skemmdum í kjallara

Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna tilkynningar um reyk í fjölbýlishúsi í Kópavogi við Fossvog. Upp kom eldur í kjallaraíbúð, Furugrund 42 en miklar skemmdir urðu á íbúðinni vegna eldsins.

Innlent
Fréttamynd

Sinueldur við Vík í Mýr­dal

Slökkvilið reynir nú að ráða niðurlögum sinuelds sem kviknaði skammt undan Vík í Mýdal, nánar tiltekið í vesturbrekkum Háfells.

Innlent
Fréttamynd

Hvað er heit vinna?

Heit vinna telst vera hvers konar vinna þar sem unnið er með opinn eld eða annan hitagjafa, s.s. logskurðarverkfæri, logsuðu, rafsuðu, heitt loft, gasloga og fleira sambærilegt. Þessi vinna er algeng í byggingariðnaði eins og við lagningu þakdúks og á hinum ýmsu verkstæðum þegar verið er að logsjóða og skera með loga.

Skoðun
Fréttamynd

Rúta valt á Kjalar­nesi

Tveir voru fluttir til skoðunar eftir að lítil rúta valt á Kjalarnesi um klukkan 14 í dag. Aðgerðum er lokið á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Breiðholts­braut lokað vegna um­ferðaróhapps

Breiðholtsbraut var lokað við Jaðarsel eftir að bíl var ekið upp á kant. Nú hefur aftur verið opnað fyrir umferð undir nýju brúna á Breiðholtsbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs en hraði tekinn niður á svæðinu.

Veður
Fréttamynd

Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóður­blöndunni

Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

„Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægi­legt“

Einn liggur þungt haldinn á spítala eftir að sprenging varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Korngörðum upp úr klukkan sjö í morgun. Sjónarvottur segir að sér sé illa brugðið eftir atvikið. Ringulreiðin og öskrin sem fylgdu hafi verið verulega óþægileg. 

Innlent
Fréttamynd

Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu

Sá hluti húsnæðis Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík sem stórt gat myndaðist á í sprengingu í morgun er hannaður til þess að gefa eftir í sprengingu. Tveir þeirra sem slösuðust voru í þeim hluta byggingarinnar. Annar þeirra er alvarlega slasaður. Sá þriðji var fyrir utan húsið þegar viðbragðsaðila bar að garði og gekk sjálfur inn í sjúkrabíl.

Innlent
Fréttamynd

Hugsi yfir fréttum af bruna­vörnum á Stuðlum

Slökkviliðsstjóri segist hugsi yfir fréttum af því að ekki hafi verið brugðist við ítrekuðum kröfum um bættar brunavarnir í aðdraganda bruna á Stuðlum árið 2024 þar sem einn lést. Ljóst sé að eigandi hússins beri ábyrgð á brunavörnum samkvæmt lögum, til greina komi að forgangsraða brunavarnareftirliti með opinberum byggingum. Stjórnendur og starfsfólk Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna segjast í yfirlýsingu harma það atvikið og að þegar hafi verið brugðist ábendingum. 

Innlent
Fréttamynd

Kviknaði í kaffibrennsluofni

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að höfuðstöðvum Tes og kaffis í Hafnarfirði á ellefta tímanum, þar sem eldur hafði kviknað í kaffibrennsluofni. Eldinum var leyft að brenna út og slökkvilið þurfti aðeins að reykræsta.

Innlent
Fréttamynd

Rúta skíð­logar í Hafnar­firði

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins berst nú við eld í rútu sem kviknaði í í Hellnahverfi í Hafnarfirði upp úr klukkan 15. Rútan var á flutningavagni og því mannlaus.

Innlent