Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Birgir Olgeirsson skrifar 23. október 2026 14:33 Einar Geir Þorsteinsson fékk hörð andsvör frá Árna Rúnari Þorvaldssyni, Hildi Rós Guðbjargardóttur og Kristínu Maríu Thoroddsen þegar hann velti upp tengslum móttöku hælisleitenda og öryggismála í skólum Hafnarfjarðar. Hafnarfjörður Nýta á betur öryggisbúnað sem þegar er til staðar í skólum Hafnarfjarðar og samræma reglur um hverjir komast inn í skólana og hvernig tekið er á móti þeim. Formaður fræðsluráðs segir öryggisúttekt á skólunum ekki hafa verið viðbragð við tilteknu alvarlegu atviki. Heitar deilur urðu í bæjarstjórn þegar fulltrúi Miðflokksins velti upp tengslum öryggismálanna við móttöku hælisleitenda.
Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður fræðsluráðs, fór yfir fyrirhugaðar öryggisúrbætur þegar málefni skólanna voru rædd í bæjarstjórn á miðvikudag. Tilefnið var erindi skólastjóra grunnskóla og tónlistarskóla bæjarins, sem Vísir hefur fjallað um. Þeir óska eftir fjármagni til að fylgja eftir öryggisúttekt, meðal annars með dyrasímum með myndavélum, auknum aðgangsstýringum og færri ólæstum inngöngum meðan kennsla stendur yfir. Kristín sagði úttektina hafa verið gerða að frumkvæði fræðsluráðs til að fá heildarmynd af stöðunni. Ákvörðunin hefði hvorki verið tekin vegna eins alvarlegs tilviks né vegna þess að talið væri að börn væru óörugg í skólunum. „Ástæðan var einfaldlega sú að við töldum mikilvægt að fara yfir þessi mál með heildstæðum og markvissum hætti, greina stöðuna og skoða hvar tækifærin væru til úrbóta.“ Hægt að gera ýmislegt án stórframkvæmda Kristín lagði áherslu á að tillögurnar snerust að verulegu leyti um skipulag og verklag. Ekki þyrfti í öllum tilvikum að ráðast í dýrar framkvæmdir eða kaupa nýjan búnað. Meðal þess sem mætti gera væri að nýta betur aðgangsstýribúnað sem þegar væri í mörgum skólum, ákveða hvaða inngangar ættu að vera opnir og bæta merkingar svo gestir vissu hvert þeir ættu að fara. Kristín María Thoroddsen lagði áherslu á að nýta betur aðgangsstýribúnað sem þegar væri í skólunum og samræma reglur um móttöku gesta. Hluta úrbótanna mætti vinna án kostnaðarsamra framkvæmda.Vísir Þá þyrfti að samræma reglur um aðgang foreldra, gesta og verktaka, móttöku þeirra og skráningu. Starfsfólk þyrfti að þekkja viðbragðsáætlanir og skýrt ætti að vera hver bæri ábyrgð. Einnig yrði að skoða aðgang að húsnæðinu utan skólatíma, þegar íþrótta- og frístundastarf eða önnur starfsemi færi þar fram. Fræðsluráð hefði falið sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að vinna með umhverfis- og framkvæmdasviði að viðbrögðum við úttektinni. Kristín vildi að úrbótum yrði forgangsraðað sem fyrst og stærri framkvæmdir kostnaðarmetnar. Hún taldi raunhæft að hefja vinnu við skýra ferla í janúar. „Þetta er ekki Malmö“ Umræðan tók annan snúning þegar Einar Geir Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins, steig í ræðustól. Hann sagði foreldra eiga rétt á að vita hvers vegna skólastjórnendur teldu þessar ráðstafanir nauðsynlegar nú. Einar rifjaði upp árás á tólf ára stúlku á leið í Víðistaðaskóla í maí 2024. Samkvæmt frásögn foreldra hennar hafði maður tekið hana hálstaki og slegið hana í munninn en hún náð að rífa sig lausa. Lögregla greindi þá frá rannsókn á alls fjórum tilvikum þar sem maður hafði veist að börnum í bænum. Einar vísaði einnig til mála frá ágúst sama ár, þegar tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um ofbeldi, hótanir og þjófnað gagnvart börnum og ungmennum. Meðal atvika voru árásir við Hraunvallaskóla þar sem ungmenni voru þvinguð til að millifæra fé. „Þetta er ekki Malmö, þetta er ekki í París, þetta er að gerast hérna í Hafnarfirði.“ Einar minnti á fundaröð um líðan og öryggi ungmenna sem bærinn boðaði til haustið 2024. Nú, tveimur árum síðar, væru skólastjórnendur að óska eftir færri ólæstum dyrum og auknu eftirliti. Einar Geir Þorsteinsson sagði foreldra eiga rétt á að vita hvers vegna skólastjórnendur teldu auknar öryggisráðstafanir nauðsynlegar nú. Hann kallaði eftir skýrum svörum um aðgerðir, ábyrgð og tímasetningar.Vísir/Vilhelm Fundaröðin bar heitið Við erum þorpið og fól meðal annars í sér opinn fund með fulltrúum ungmenna, lögreglu og bæjarins. Hann spurði hvort framkvæmd móttöku hælisleitenda og flóttafólks gæti tengst öryggisvandamálunum. „Gætu verið tengsl milli þess hvernig staðið hefur verið að móttöku hælisleitenda og flóttafólks og þeirra öryggisvandamála sem við stöndum frammi fyrir núna?“ Einar sagði Miðflokkinn hafa varað við andvaraleysi í málaflokknum. Hann krafðist skýrra svara um aðgerðir, ábyrgð og tímasetningar og hét stuðningi flokksins við aðgerðir sem bættu öryggi barna og tækju á orsökum vandans. Erlend börn eigi ekki að þola slíka umræðu Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, mótmælti tengingunni við hælisleitendur. Aðgangur að skólum hefði lengi verið til umræðu meðal skólafólks og íslenskir skólar væru almennt mjög opnir. Fólk ætti að hans mati að gera grein fyrir erindi sínu þegar það kæmi inn í skóla, óháð því hvort það væri íslenskt eða erlent. „Þarna verðum við að passa okkur í þessari umræðu því erlend börn í íslenskum skólum eiga ekki að þola svona umræðu.“ Árni Rúnar Þorvaldsson sagði íslenska skóla almennt mjög opna. Hann taldi eðlilegt að gestir gerðu grein fyrir erindi sínu við komuna í skólana. Einar svaraði að hann hefði ekki fullyrt um tengslin heldur velt þeim upp. Samfélagið hefði breyst mikið og það þyrfti að skoða. Hann lagði jafnframt til atvikaskráningu svo bæjarfulltrúar gætu fengið betri mynd af stöðunni. Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, benti þá á að ofbeldisatvik væru þegar skráð í grunnskólum Hafnarfjarðar. Hún fagnaði umræðu um öryggi en sagði Einar ekki hafa gögn til að segja til um hvaðan hættan stafaði. Einar mætti þá aftur í andsvar og sagði: „Ég heyri það bara á umræðunni að Samfylkingin er með einhverja stefnu um að stinga höfðinu í sandinn í þessum málaflokki og þá gerið þið það bara.“ Hildur Rós Guðbjargardóttir benti á að ofbeldisatvik væru þegar skráð í grunnskólum Hafnarfjarðar. Hún sagði þurfa að skoða staðreyndir áður en ályktað væri um hvaðan hættan stafaði. Hildur hafnaði því alfarið. Samfylkingin vildi horfa á staðreyndir og skoða vandann. Öryggismál gætu tengst nemendum, íslenskum sem erlendum, og foreldrum. „Það eru öryggishættur þarna og við þurfum að bregðast við þeim en við gerum það ekki með því að tala niður ákveðna hópa eða ákveða fyrir fram hvert vandamálið er.“ Einar hafnaði því að hafa talað niður hópa. Hann hefði spurt hvort tengsl væru milli samfélagsbreytinga og öryggisráðstafananna og sagði gerendur í atvikunum sem hann hefði nefnt hafa verið erlenda aðila. Kristín ítrekaði að ekki lægi tiltekið atvik að baki Kristín kom einnig til andsvars við ræðu Einars og ítrekaði að úttektin væri ekki tilkomin vegna einhvers atviks sem ekki hefði verið sagt frá opinberlega. Eðlilegt væri að nýta tækni til að auka öryggi í skólum eins og í öðrum opinberum byggingum og fyrirtækjum. Nú væri til búnaður sem hefði ekki verið til þegar skólarnir voru byggðir. Einar hafnaði því að umræða hans væri til þess fallin að ala á ótta og spurði hvar annars staðar ætti að ræða þessi mál en í bæjarstjórn. Kristín átti síðasta orðið í orðaskiptunum. „Umræða varðandi hælis- og flóttafólk á þá í rauninni heima annars staðar að mínu mati.“ Hér væri verið að fjalla um almennt öryggi í grunnskólum bæjarins og tónlistarskólanum.
Hafnarfjörður Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Ofbeldi barna Sveitarstjórnarmál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Sjá meira