Írak
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 27 ›
Forsætisráðherraefni sjíta valið Stjórnmálabandalag sjíta í Írak hefur tilnefnt Ibrahim al-Jaafari sem forsætisráðherraefni sitt. Bandalagið fékk mest fylgi í kosningunum í landinu á dögunum. Erlent 13.10.2005 18:49
Gíslum sleppt í Írak Tveimur blaðamönnum frá Indónesíu, sem var rænt í Írak fyrir helgi, hefur verið sleppt. Þetta var staðfest í morgun. Myndbandsupptaka var sýnd á sjónvarpsstöð í Indónesíu þar sem sjá mátti fréttamennina og skæruliða sem sagði að þeim yrði sleppt. Erlent 13.10.2005 18:48
Leynilegar viðræður í Írak Embættismenn bandarísku leyniþjónstunnar eiga í leynilegum viðræðum við uppreisnarmenn úr röðum súnníta um það hvernig binda megi endi á vargöldina í Írak. Frá þessu greindi tímaritið <em>Time</em> í gær. Erlent 13.10.2005 18:48
Bandaríkjamenn vilja viðræður Eftir blóðuga baráttu við uppreisnarmenn í Írak í tvö ár eru Bandaríkjamenn komnir að þeirri niðurstöðu að viðræður séu vænlegasta leiðin til að binda enda á skálmöldina. Erlent 13.10.2005 18:48
Blaðakonan biður sér griða Ræningjar ítölsku blaðakonunnar Giuliöna Sgrena hafa sent frá sér myndband þar sem hún biður sér griða. Sgrena, sem er fimmtíu og sjö ára blaðamaður á ítalska dagblaðinu Il Manifesto, var rænt í Bagdad í byrjun febrúar. Erlent 13.10.2005 18:47
Erfitt að taka við friðargæslunni Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að erfitt yrði fyrir samtökin að taka við friðargæslu í Írak af Bandaríkjamönnum. Annan var spurður um þetta mál á öryggismálaráðstefnu sem nú stendur yfir í Þýskalandi og leist ekki meira en svo á hugmyndina. Hann útilokaði þó ekki að af þessu gætu orðið. Erlent 13.10.2005 18:46
Sjítar með 60% atkvæða? Sameinaða Íraks-bandalagið, sem er samsteypa margra pólitískra samtaka sjíta-múslima, segir því hafi verið tilkynnt að það hafi fengið sextíu prósent atkvæða í þingkosningunum sem haldnar voru á dögunum. Opinberlega verður greint frá úrslitum kosninganna í Írak síðar í dag. Erlent 13.10.2005 18:46
Sjíta-múslimar sigurvegarar í Írak Sameinaða Íraksbandalagið, sem er samsteypa margra pólitískra samtaka sjíta-múslima, er sigurvegari þingkosninganna í Írak sem haldnar voru á dögunum. Flokkurinn fékk 47,6% atkvæða en niðurstöðurnar voru gerðar kunngjörðar nú fyrir stundu. Erlent 13.10.2005 18:46
Stórsigur sjíta-múslima Flokkabandalag sjíta-múslima vann stórsigur í þingkosningunum í Írak. Það gerðu Kúrdar einnig en súnní-múslimar eru úti í kuldanum. Það gæti valdið miklum vandræðum. Erlent 13.10.2005 18:46
Erfitt að taka við friðargæslunni Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að erfitt yrði fyrir samtökin að taka við friðargæslu í Írak af Bandaríkjamönnum. Annan var spurður um þetta mál á öryggismálaráðstefnu sem nú stendur yfir í Þýskalandi og leist ekki meira en svo á hugmyndina. Hann útilokaði þó ekki að af þessu gætu orðið. Erlent 13.10.2005 18:46
18 látnir, 25 særðir Að minnsta kosti átján manns létu lífið og tuttugu og fimm særðust þegar bílsprengja sprakk í bænum Músaíb í Írak í dag. Allir sem fórust og særðust voru óbreyttir borgarar. Bærinn er um sjötíu kílómetra sunnan við Bagdad. Erlent 13.10.2005 18:46
Rumsfeld hvetur Íraka Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna heimsótti í dag þjálfunarbúðir írakskra öryggissveita. Í ávarpi sem hann flutti við komuna sagði hann að Írakar yrðu sjálfir að taka við öryggismálum sínum eins fljótt og auðið yrði. Erlent 13.10.2005 15:32
Rumsfeld kominn til Íraks Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom til Íraks í dag til þess meðal annars að hitta írakska hermenn og lögreglumenn sem Bandaríkjamenn eru að þjálfa. Innanríkisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak segir að þeir verði tilbúnir til þess að sjá sjálfir um öryggismál sín eftir átján mánuði. </font /> Erlent 13.10.2005 15:32
Níu drepnir í bakaríi Byssumenn skutu að minnsta kosti níu manns til bana í bakaríi í Bagdad í morgun. Mennirnir keyrðu tveim bílum að bakaríinu og hófu skothríð þegar inn var komið. Sjö létust samstundis og tveir á sjúkrahúsi skömmu síðar. Orsök árásarinnar er ókunn. Erlent 13.10.2005 15:32
Sesar Arnar í tvær aðgerðir Sesar Arnar Sanchez, íslenski hermaðurinn sem særðist í Írak fyrr í vikunni, mun að líkindum þurfa að gangast undir tvær aðgerðir á næstunni. Móðir hans segir líkur á að hann verði skorinn upp á auga og fæti. Innlent 13.10.2005 15:32
Sjálfsmorðsárás fyrir utan mosku Yfir tuttugu manns liggja í valnum eftir árásir öfgamanna í Írak í morgun. Sjálfsmorðssprengja sprakk fyrir utan mosku á háannatíma en föstudagar eru bænadagar múslíma. Þá gerðu byssumenn árás inn í bakarí. Báðar þessar árásir voru í Bagdad. Erlent 13.10.2005 15:32
Þrír íslenskir hermenn í Írak Ekki færri en þrír Íslendingar gegna nú hermennsku í Írak og sá fjórði er á leiðinni þangað. Átján ára piltur úr Vogum á Vatnsleysuströnd varð fyrir þeirri lífsreynslu á dögunum að eldflaug lenti við svefnskála hans en til allrar mildi sprakk hún ekki. Innlent 13.10.2005 18:46
23 látnir í Írak Að minnsta kosti 23 hafa látið lífið í Írak í morgun. Tuttugu og einn lést og 27 slösuðust í sprengjuárás sem varð nærri ráðningarstöð hersins í Bagdad. Þá reyndu uppreisnarmenn að myrða stjórnmálamann í vesturhluta borgarinnar í morgun. Hann komst lífs af en tveir synir hans voru myrtir. Erlent 13.10.2005 18:45
Kúrdar vinna á Stærsti flokkur Kúrda hefur unnið mjög á í kosningunum í Írak eftir að stór hluti atkvæða í norðurhluta landsins hefur verið talinn. Nú hafa Kúrdarnir nærri fjórðungsfylgi og að sama skapi hefur fylgi bandalags Sjíta fallið úr 67 prósentum talinna atkvæða niður í rétt rúmlega helming. Erlent 13.10.2005 18:45
Lækkuð í tign vegna leðjuslags Bandarísk herlögreglukona í Írak hefur verið lækkuð í tign eftir að hún tók þátt í leðjuslag í fangabúðum þar í landi. Hún þótti sýna ósæmilega hegðun og of mikið af líkama sínum. Engir írakskir fangar urðu vitni að leðjuslagnum. Erlent 13.10.2005 18:45
Taka við eftir 18 mánuði Innanríkisráðherrann í bráðabirgðastjórn Íraks sagði í dag að hann telji að Írakar verði færir um að sjá um eigin öryggismál eftir eitt og hálft ár. Fala Al-Nakíb lét þessi orð falla á öryggisráðsternu sem nú stendur yfir í Sádi-Arabíu. Erlent 13.10.2005 18:45
Hershöfðingi Saddams handtekinn Öryggissveitir í Írak hafa handsamað fyrrverandi hershöfðingja úr her Saddams Husseins sem sakaður er um að hafa fjármagnað starfsemi hryðjuverkamanna undanfarið. Hershöfðinginn var tekinn fastur í lok desember en ekki var tilkynnt um handtökuna fyrr en í gær. Erlent 13.10.2005 18:45
Aðgerðir harðna í Írak Aðgerðir uppreisnarmanna í Írak eru að harðna og árásum að fjölga á nýjan leik eftir þingkosningarnar í landinu. Tuttugu og fimm hið minnsta hafa beðið bana í árásum í morgun og á fjórða tug í gærkvöldi. Á sama tíma blasir mannekla við í Bandaríkjaher. Erlent 13.10.2005 18:45
Reyna að halda í hermenn Bandaríkjamenn hafa gripið til margvíslegra aðgerða til þess að sporna við hugsanlegri manneklu í herliði sínu í kjölfar stríðsins í Írak. Stór hluti herliðsins í Írak hefur þegar lokið herskyldu sinni og hefur verið gripið til þess ráðs að bjóða hermönnum þúsund dollara skattfrjálsan kaupauka fyrir að framlengja veruna í Írak. Erlent 13.10.2005 18:45
12 hermenn drepnir í Írak Uppreisnarmenn í Írak drápu seint í gærkvöldi tólf írakska hermenn nærri borginni Kirkuk í norðurhluta landsins. Uppreisnarmennirnir stöðvuðu bifreið hermannanna og skutu þá síðan til bana. Tveir hermenn náðu að flýja í nærliggjandi þorp. Flestir voru hermennirnir á leiðinni úr fríi í borginni Mósúl. Erlent 13.10.2005 15:30
Breskir hermenn ákærðir fyrir morð Sjö breskir hermenn hafa verið ákærðir fyrir morð á óbreyttum íröskum borgara. Í ákæruskjalinu segir að hermennirnir hafi myrt manninn í maí í fyrra í vegkanti í Suður-Írak. Mennirnir verða leiddir fyrir herrétt en ekki hefur verið ákveðið hvenær réttarhöldin hefjast. Erlent 13.10.2005 15:30
100 þúsund hermenn í Írak til 2007 Bandaríkjamenn þurfa líklega að halda úti að minnsta kosti eitt hundrað þúsund hermönnum í Írak allt til ársloka ársins 2006. Þetta segja háttsettir embættismenn innan raða bandaríkjahers að sögn tímaritsins <em>Time</em>. Erlent 13.10.2005 18:45
Fékk ekki aðgang að fundargerðum Eiríkur Tómasson lögfræðiprófessor hafði ekki aðgang að fundargerðum utanríkismálanefndar er hann vann álit fyrir forsætisráðherra um lögmæti ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að styðja innrásina í Írak. Erlent 13.10.2005 18:45
Hermaður eða leikfang? Margt bendir til þess að mynd, sem birtist á Netinu í gær og er sögð sýna bandarískan hermann í haldi mannræningja í Írak, sé fölsuð. Leikfangafyrirtæki segir að maðurinn á myndinni sé sláandi líkur hermannabrúðunni Cody. Erlent 13.10.2005 18:45
Vopnin kvödd í Írak Lögreglustjórinn í borginni Mosúl í Írak hefur gefið borgarbúum tveggja vikna frest til þess að skila inn vopnum sínum. Eftir það mun lögreglan hefja aðgerðir til þess að gera vopn upptæk. Al-Kaída samtökin hafa brugðist við með því að hóta að myrða borgarstjórann í Mosúl. Erlent 13.10.2005 18:45