Borgarbyggð
1 2 3 4 5 6 … 17 ›
Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Bíll valt út af vegi á þjóðvegi 54 á Mýrum í Borgarfirði síðdegis í dag. Vegurinn var lokaður um tíma og aðstoðaði slökkvilið við aðgerðir á vettvangi. Nokkur hálka er á veginum að sögn vegfarenda en samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur vegurinn verið opnaður á nýjan leik. Innlent 22.12.2024 18:41
Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri Fjárhagsstaða Borgarbyggðar er góð enda er búið að framkvæma mikið á árinu og nýtt ár verður líka mikið framkvæmdarár. Nú er til dæmis verið að endurbyggja grunnskólann á Kleppjárnsreykjum en á sama tíma bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri. Innlent 22.12.2024 15:06
Óróahviður í Mýrafjöllum sagðar líkjast aðdraganda Reykjaneselda Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands líkir óróahviðum í Ljósufjallakerfinu við þær sem sáust í aðdraganda eldsumbrotanna á Reykjanesskaga. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur vekur athygli á því að mun stærri jarðskjálftahrina hafi orðið í Ljósufjöllum árið 1938 með stærsta skjálfta upp á 5,2 stig. Innlent 20.12.2024 12:12
Eldstöðvar sem ógnað gætu Vestlendingum minna á sig Stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur í Ljósufjallakerfinu til þessa, upp á 3,2 stig, varð þar í gærkvöldi og fylgdi honum skjálftahrina í nótt og fram eftir morgni. Eldstöðvakerfið teygir sig í gegnum byggðir á Vesturlandi. Innlent 19.12.2024 22:00
Margrét áfram rektor á Bifröst Stjórn Háskólans á Bifröst hefur boðið Dr. Margréti Jónsdóttur Njarðvík rektor að framlengja ráðningu hennar um fimm ár eða frá 1. ágúst 2025 til 1. júlí 2030. Viðskipti innlent 19.12.2024 12:24
Stærsti skjálftinn á svæðinu frá upphafi mælinga Skjálfti 3,2 að stærð varð við Grjótarvatn, um 26 kílómetrum norður af Borgarnesi, klukkan 22:50 í gærkvöldi. Innlent 19.12.2024 06:07
Fjölnota íþróttahús byggt í Borgarnesi Mikil eftirvænting er hjá íbúum Borgarbyggðar vegna nýs fjölnota íþróttahúss, sem á að fara að byggja í Borgarnesi. Húsið verður fyrst og fremst knatthús og mun kosta tæplega tvo milljarða króna. Ístak byggir. Innlent 8.12.2024 14:03
Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Rekstur Orkuveitunnar skilaði 5,1 milljarðs króna afgangi fyrstu níu mánuði ársins. Það er 44 prósenta aukning frá sama tímabili fyrra árs og góð undirstaða fyrirhugaðs vaxtar Orkuveitunnar á næstu árum, að mati Sævars Freys Þráinssonar forstjóra. Viðskipti innlent 26.11.2024 10:35
Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur Í gær uppgötvaðist að hundar hafi gengið lausir í Borgarfirði og drepið kindur eða flæmt þær úti í skurði. Á bænum Höll í Þverárhlíð fann Grétar Þór Reynisson bóndi níu dauðar kindur í gær og eina helsærða. Innlent 5.11.2024 18:03
„Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála Brotið var ítrekað gegn málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga hjá barnaverndarþjónustu Borgarbyggðar, leiðbeiningar til starfsfólks skorti, verkferlar voru óskýrir og samskipti við aðila mála voru ekki í samræmi við lög og reglugerðir. Innlent 30.9.2024 18:20
Knatthús á versta stað í Borgarnesi? Mig langar að vekja athygli á því sem nú er í bígerð á íþróttasvæðinu í Borgarnesi. Stefnt er að því að reisa 16 metra hátt knatthús á fallegum útsýnisstað sem jafnframt er aðalútivistarsvæði bæjarins og liggur að grunnskólalóðinni. Skoðun 29.9.2024 10:32
Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Lögreglan á Vesturlandi þurfti að veita bíl eftirför sem ók á ofsahraða um Vesturlandsveg, Borgarfjarðarbraut og Hvítarfjallarveg í Borgarfirði í gærkvöldi. Bílstjórinn og farþegar bílsins voru sautján og átján ára gamlir. Innlent 27.9.2024 14:55
Smali slasaðist við smalamennsku Fyrr í dag voru björgunarsveitir í Borgarfirði kallaðar út vegna smala sem hafði hrasað við smalamennsku í Skorradal og slasast eitthvað á fæti við það. Innlent 7.9.2024 21:48
Kerlingadráttur í 120 ára afmælisveislu í Borgarnesi „Það fæst allt í kaupfélaginu nema kannski falskar tennur og líkkistur“, segja bændur í Borgarfirði ánægðir með kaupfélagið sitt, sem fagnar 120 ára afmæli sínu á morgun með miklum hátíðarhöldum. Kerlingadráttur verður eitt af atriðum dagsins. Innlent 16.8.2024 20:05
Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Hringvegurinn er lokaður við Hafnarskóg rétt sunnan við Borgarnes eftir að eldur kviknaði í stýrishúsi vörubíls. Slökkvilið hefur ráðið niðurlögum eldsins en áfram er unnið að því að þrífa veginn og fjarlægja ökutækið. Bílstjóra sakaði ekki. Innlent 12.8.2024 19:17
Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í kvöld vegna ferðamanns sem hafði slasast á fjallinu Baulu í Borgarfirði. Innlent 6.8.2024 00:11
Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Töluverð umferð hefur verið í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi það sem af er helgi. Lögreglan segir að borið hafi á því að ekið sé á sauðfé í umdæminu. Innlent 3.8.2024 14:06
Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Sigurði Þ. Ragnarssyni, sem er betur þekktur sem Siggi Stormur, brá í brún þegar hann fékk sér ís í sjoppu í Borgarnesi. Hann sá fjóra ferðamenn á næsta borði skipta á milli sín einum diski með fiskrétti eða kjúklingi og einum súpudisk. Ástæðan er sú að túristarnir þurftu að spara á dýru Íslandi. Neytendur 24.7.2024 22:52
Allir íbúar rúmast ekki lengur í einu og sama húsinu Íbúum á Hvanneyri fer sífellt fjölgandi, þökk sé brottfluttum Hvanneyringum sem snúa aftur heim og nemendum Landbúnaðarháskólans sem ákveða að setjast að í bænum. Mikil uppbygging er fyrirhuguð og heimamenn eru hreyknir af einum flottasta frisbígolfvelli landsins. Innlent 20.7.2024 20:39
Stórhættulegur framúrakstur á Holtavörðuheiði Róbert Marvin Gíslason, tölvunarfræðingur og rithöfundur, var litlu frá því að lenda í alvarlegum árekstri á Holtavörðuheiði á mánudag þegar bílstjóri sendibíls tók fram úr honum á glannalegan hátt, bíll kom nefnilega akandi úr hinni áttinni og mjóu munaði að hann skylli framan á sendibílinn. Innlent 17.7.2024 11:28
Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Samþykkt hefur verið að hefja formlegar sameiningarviðræður sveitarfélaganna Skorradalshrepps og Borgarbyggðar. Lagt er upp með að stefnt verið að íbúakosningu um sameiningu árið 2025. Skiptar skoðanir eru uppi innan sveitarstjórnar Skorradalshrepps um áformin en minnihluti hreppsnefndar telur varaoddvita vanhæfan í málinu. Innlent 7.7.2024 12:59
Munir safnsins geyma merkilega sögu Óvenjulegt safn sem legið hefur í kössum í nokkur ár er nú aftur sýnilegt almenningi í Borgarnesi. Munir safnsins geyma merkilega sögu svæðisins en safnstjórinn heldur mest upp á muni frá ömmu og afa. Um er að ræða Hérumbilsafn Gunna Jóns í Borgarnesi en þar er meðal annars atvinnulífs- og íþróttasaga Borgarness varðveitt í ýmsum munum. Lífið 6.7.2024 09:53
Blendnar tilfinningar í Borgarnesi: „Það hefur nær ekkert samráð verið“ Sveitarstjórn Borgarbyggðar er sökuð um skort á samráði við ákvörðun um uppbyggingu á íþróttasvæðinu í Borgarnesi. Áformin vekja blendnar tilfinningar meðal íbúa og íþróttahreyfingar, sem fagna uppbyggingu en telja forgangsröðun furðulega. Innlent 1.7.2024 10:28
Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Hjólhýsi fauk út af veginum í sunnanverðum Borgarfirði á fjórða tímanum í dag. Nokkrar tafir voru á umferð í kjölfarið. Innlent 30.6.2024 15:58
Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Slökkviliðið í Borgarnesi var kallað út á þriðja tímanum í nótt þegar eldur hafði kviknað í hjólhýsi á tjaldsvæðinu á Húsafelli. Hjólhýsið brann til kaldra kola ásamt bíl þeirra sem áttu hýsið. Ekkert tjón varð á öðrum tækjum. Fréttastofu hafa borist myndir frá nóttinni. Innlent 29.6.2024 18:40
Hjólhýsi brann í Húsafelli Slökkviliðið í Borgarnesi var kallað út á þriðja tímanum í nótt þegar eldur hafði kviknað í hjólhýsi á tjaldsvæðinu á Húsafelli. Innlent 29.6.2024 10:46
Ætla að fylla Borgarnes með mörgþúsund manns Guðrún St. Guðbrandsdóttir, forseti Hinsegin Vesturlands, segir heilan helling framundan á Brákarhátíð og Hinseginhátíð Vesturlands sem fer fram um helgina. Lífið 27.6.2024 21:29
Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Björgunarsveitir á Suður- og Vesturlandi brugðust við tveimur útköllum í tengslum við útivist í gær, annars vegar vegna reiðslyss í Borgarfirði og hins vegar vegna gönguslyss í Þórsmörk. Innlent 16.6.2024 08:20
Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þrðija tímanum í dag vegna reiðslyss í Borgarfirði. Innlent 15.6.2024 14:58
Karlmaður á þrítugsaldri lést í slysinu á Vesturlandsvegi Ökumaður fólksbifreiðarinnar sem lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi í Borgarfirði, skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal, var Íslendingur á þrítugsaldri. Hann fæddist árið 1999 og var búsettur hér á landi. Innlent 11.6.2024 15:59