UEFA

Fréttamynd

Val milli grunngilda hreyfingarinnar og gylliboðs Infantino

Gianni Infantino, forseti Fifa, hefur áformað að hleypa utanaðkomandi fjárfestum inn í sambandið og hefur það farið öfugt ofan í hlutaðeigandi. Knattspyrnusamband Evrópu hefur gagnrýnt áformin harðlega og hefur boðað formenn sambanda í álfunni á neyðarfund.

Fótbolti
Fréttamynd

Prestianni fær ekki að spila gegn Real Madrid

Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, hefur verið dæmdur í eins leiks bráðabirgðabann á meðan UEFA rannsakar ásakanir í hans garð um rasisma. Hann mun því ekki mæta Vinicius Jr. og félögum í Real Madrid í Meistaradeildinni á miðvikudag.

Fótbolti
Fréttamynd

EM 2029 haldið í Þýska­landi

EM kvenna í fótbolta árið 2029 verður haldið í Þýskalandi. Aleksandr Ceferin, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, opinberaði ákvörðunina í höfuðstöðvum UEFA í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Stöðufundur í Laugar­dal klukkan 10:30

Eftirlitsaðilar Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, munu funda klukkan 10:30 með dómurum leiks Íslands og Norður-Írlands, auk forráðamanna knattspyrnusambanda ríkjanna, vegna fyrirhugaðs leiks kvöldsins í Þjóðadeild kvenna í fótbolta á Laugardalsvelli.

Fótbolti
Fréttamynd

Leik­tíma Sverris breytt þrisvar í dag vegna veðurs

Leikur Feyenoord við Panathinaikos í Evrópudeildinni í fótbolta mun fara fram klukkan 19:00 í kvöld í Rotterdam. Það er upprunalegur leiktími en honum var í morgun flýtt til 14:30 vegna veðurviðvörunar en seinkað aftur seinni partinn.

Fótbolti
Fréttamynd

UEFA grætur niður­stöðuna en gefur grænt ljós

Evrópska knattspyrnusambandið UEFA hefur gefið spænsku og ítölsku úrvalsdeildunum leyfi til að halda deildarleiki í Bandaríkjunum og Ástralíu. UEFA hefur beitt sér harðlega gegn því en neyðist til að gefa grænt ljós á leikina sem munu fara fram í Miami og Perth.

Fótbolti
Fréttamynd

Sér­fræðingar SÞ biðla til FIFA að banna Ísrael

Sérfræðingar hjá Sameinuðu þjóðunum biðla til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, og Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, að vísa fótboltaliðum Ísraels tafarlaust úr keppni á þeirra vegum. Það sé nauðsynlegt viðbragð við þjóðarmorði Ísraela á Palestínumönnum.

Fótbolti
Fréttamynd

Reyna allt til að stöðva að UEFA setji Ísrael í bann

Forkólfar ísraelska knattspyrnusambandsins eru sagðir vinna að því hörðum höndum að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu framkvæmdastjórnar UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, á morgun um að banna ísraelsk fótboltalið frá keppnum á vegum UEFA.

Fótbolti
Fréttamynd

Tíu mánaða bann fyrir að taka lyf við hár­losi

Yeray Álvarez, varnarmaður Athletic á Spáni, féll á lyfjaprófi eftir leik liðsins gegn Manchester United í undanúrslitum Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili. Hann hefur nú verið dæmdur í tíu mánaða keppnisbann.

Fótbolti
Fréttamynd

Heimta að Ísrael verði vísað úr keppni

Samtök knattspyrnuþjálfara á Ítalíu (AIAC) hafa skrifað opinbert bréf þar sem fram kemur krafa þeirra um að Ísrael verði vísað úr öllum íþróttakeppnum vegna grimmilegrar framkomu þeirra og stríðsglæpa á Gaza ströndinni.

Fótbolti