Erlent Fjórar milljónir hafa flúið í Írak Erlent 31.1.2007 13:55 Olmert íhugar að víkka aðskilnaðarmúrinn Forsætisráðherra Ísraels er að kanna hvort víkka eigi aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum, til þess að hann umljúki tvær landnemabyggðir Gyðinga, sem þar eru. Það myndi hafa í för með sér að tugþúsundir Palestínumanna yrðu girtir af, frá sinni heimabyggð. Hæstiréttur Ísraels hefur oft gripið í taumana þegar þetta hefur verið reynt. Erlent 31.1.2007 13:26 Hagnaður Boeing tvöfaldast Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing skilaði 989 milljóna dala, eða 67,8 millarða króna, hagnaði á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Þetta er rúmlega tvöfalt meiri hagnaður en á sama tíma árið 2005 en þá nam hann 460 milljónum dala, jafnvirði 31,5 milljörðum dala. Viðskipti erlent 31.1.2007 13:01 Aukin verðbólga í OECD-ríkjunum Verðbólga mældist 2,3 prósent að meðaltali á ársgrundvelli í innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í desember í fyrra. Þetta er 0,3 prósentustiga hækkun frá því í mánuðinum á undan. Næstmesta verðbólgan var líkt og fyrr hér á landi í desember en þá mældist hún 7,0 prósent. Viðskipti erlent 31.1.2007 11:57 Hráolíuverð lækkar lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag eftir nokkrar hækkanir í gær og fór niður í rúma 56 bandaríkjadali á tunnu. Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna birtir vikulega skýrslu um olíubirgðir landsins í dag. Greinendur gera ráð fyrir að olíubirgðir hafi dregist saman á milli vikna vegna kulda í Norður-Ameríku. Viðskipti erlent 31.1.2007 09:23 Vodafone yfir væntingum Viðskiptavinum breska fjarskiptarisans Vodafone fjölgaði um 8,7 milljónir um allan heim á síðasta ársfjórðungi liðins árs. Þetta er talsvert meira en gert hafði verið ráð fyrir. Aukningin skýrist að mestu um aukna hlutdeild fjarskiptafyrirtækisins, sem er eitt það stærsta í Evrópu, á nýmörkuðum á borð við Afríku, Austur-Evrópu og í Miðausturlöndum. Viðskipti erlent 31.1.2007 09:05 Kjúklingur með andarfit Kólumbískur bóndi keypti sér egg á dögunum, sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að kjúklingurinn sem kom úr egginu skartar sundfitjum að hætti anda. Líklega er að um stökkbreytingu sé að ræða. Erlent 30.1.2007 17:45 Microsoft kynnir nýtt stýrikerfi Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækið kynnti í gær nýjustu kynslóð Windows-stýrikerfisins og hefur kerfinu verið gefið nafnið Vista. Búist er við að innan árs hafi yfir eitt hundrað milljónir tölvunotenda um allan heim tekið kerfið í sína notkun. Erlent 30.1.2007 17:43 Vopnahléið að mestu virt Allt hefur verið með kyrrum kjörum á Gaza-ströndinni í dag eftir að samkomulag náðist á milli stríðandi fylkinga um vopnahlé. Verslanir og skólar voru opnaðir á nýjan leik en starfsemi þeirra hefur legið niðri síðan á fimmtudaginn þegar sló í alvarlega brýnu á milli liðsmanna Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas forseta. Erlent 30.1.2007 17:40 Á fimmta tug pílagríma liggur í valnum Á fimmta tug pílagríma lét lífið í fjölmörgum árásum í nágrenni Bagdad í dag, um það leyti sem Ashura-trúarhátíð sjía stóð sem hæst. Þar af voru sjö skotnir til bana þegar þeir voru á leið með rútu frá hinni helgu borg Karbala. Erlent 30.1.2007 17:38 55 nunnur á flótta undan löggunni Fimmtíu og fimm grískar nunnur, úr tveimur klaustrum, eru farnar í felur eftir að prjónaverksmiðja sem þær stofnuðu, fór á hausinn. Klaustur þeirra, eru nú auð og yfirgefin og enginn veit hvar hinar skuldugu þernur Krists eru niðurkomnar. Erlent 30.1.2007 16:33 DNA til að finna skellinöðruþjóf Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri manna í frönsku forsetakosningunum liggur undir ámæli fyrir það að lögreglan notaði bæði DNA prufur og fingraför til þess að hafa hendur í hári þjófa sem stálu skellinöðru frá einum sona hans. Sarkozy er innanríkisráðherra Frakklands og lögreglan heyrir undir hann. Erlent 30.1.2007 16:02 Grænlendingar vilja eiga olíuna einir Grænlendingar vilja eiga sína olíu óskipt, þegar og ef hún byrjar að streyma. Þeir telja ekki Dani eiga neitt tilkall til tekna af henni. Danir og Grænlendingar funda nú í hinni svokölluðu heimastjórnarnefnd, þar sem meðal annars er fjallað um efnahagsmál. Talið er að mikla olíu og önnur auðævi sé að finna á grænlenska landgrunninu. Erlent 30.1.2007 15:36 Vill girða Egyptaland af Varnarmálaráðherra Ísraels vill reisa girðingu á landamærunum við Egyptaland, til þess að koma í veg fyrir að palestinskir hryðjuverkamenn komist til Ísraels yfir Sínaí eyðimörkina. Aðstoðarmaður Amirs Peretz segir að hann hafi vakið máls á þessu eftir að þrír Gyðingar fórust í sprengjutilræði í hafnarborginni Eilat. Erlent 30.1.2007 14:39 Netníðingur fékk níu ár Erlent 30.1.2007 14:15 Fá ekki undanþágu frá samkynhneigðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að kaþólska kirkjan fái enga ungaþágu frá nýjum lögum sem banna að samkynhneigðum sé mismunað í almennri þjónustu. Kirkjan fór fram á undanþágu fyrir ættleiðingarskrifstofur sínar, þar sem það samrýmist ekki trúnni að setja börn í fóstur hjá samkynhneigðum. Lögin taka gildi á þessu ári, þótt þau komi varla til framkvæmda fyrr en á því næsta. Erlent 30.1.2007 13:44 Vilja aflétta banni af Palestínumönnum Erlent 30.1.2007 13:28 Svakaleg sótthreinsun Erlent 30.1.2007 10:04 Loftslagið jarðar fer stöðugt hlýnandi Útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur valdið umtalsverðri hækkun á hitastigi andrúmsloftsins og hafsins með þeim afleiðingum að sjávarborð hefur risið og heimsskautaísinn bráðnað. Þetta er afdráttarlaus niðurstaða skýrslu sem loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna kynnir á næstu dögum. Erlent 29.1.2007 19:02 Sprengdi upp bakarí Samtökin Heilagt stríð og al-Aqsa-herdeildirnar hafa bæði lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í bænum Eilat í Ísrael í dag. Fjórir létu lífið í tilræðinu, sem er það fyrsta í landinu í níu mánuði. Erlent 29.1.2007 18:27 Allt stefnir í verkfall hjá British Airways Allt útlit er fyrir að tveggja daga verkfall starfsmanna breska flugfélagsins British Airways hefjist á morgun. Flugfélagið hefur þegar aflýst 1.300 flugferðum, þar á meðal til og frá Íslandi. Erlent 29.1.2007 12:07 Þrenn samtök lýsa ábyrgð Þrenn samtök hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í Rauðahafsbænum Eilat í Ísrael í morgun. Þrír létu lífið í árásinni en hún var gerð í bakaríi í bænum, sem er fjölsóttur af ferðamönnum. Erlent 29.1.2007 12:04 Yfir 300 uppreisnarmenn féllu í bardögum Að minnsta kosti 300 uppreisnarmenn eru sagðir hafa fallið í heiftarlegum átökum við íraskar og bandarískar hersveitir í Najaf-héraði undanfarinn sólarhring. Að minnnsta kosti fimm íraskir hermenn liggja í valnum eftir átökin og tveir bandarískir. Erlent 29.1.2007 12:02 Deutsche Telekom segir hagnað undir spám Þýski fjarskiptarisinn Deutsche Telekom segir hagnað fyrirtækisins geta orðið lægri á yfirstandandi rekstrarári en áður hafi verið áætlað vegna harðnandi samkeppni á þýska símamarkaðnum og óhagstæðs gengismunar. Viðskipti erlent 29.1.2007 10:39 Tvöfalt meira tap hjá Alitalia Ítalska flugfélagið Alitalia greindi frá því um helgina að áætlað tap fyrirtæksins í fyrra næmi um 380 milljónum evra, jafnvirði rúmra 34 milljörðum íslenskra króna. Þetta er tvöfalt meira tap en flugfélagið skilaði árið á undan. Tap flugfélagsins fram til nóvember í fyrra nemur 197 milljónum evra, tæpum 17,8 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 29.1.2007 09:50 Vígamenn Hamas ræna yfirmanni öryggissveita Fatah Vígamenn hliðhollir Hamas samtökunum rændu í kvöld yfirmanni öryggissveita Mahmoud Abbas, forseta heimastjórnar Palestínumanna. Talsmaður palestínskra öryggissveita skýrði frá þessu í kvöld. Maðurinn sem var rænt heitir Sayyed Shabban og var yfir öryggissveitum á Gaza. Erlent 28.1.2007 20:46 Kabila treystir stöðu sína Stuðningsmenn Joseph Kabila, forseta Kongó, unnu auðveldan sigur í fylkisstjórakosningum í Kongó en úrslit voru birt í dag. Stjórnarandstaðan, undir forystu Jean-Pierre Bemba, mótmælti niðurstöðununum samstundis og sagði brögð í tafli. Kosningabandalag Kabila vann sex af níu fylkisstjórakosningum og sjálfstæðir frambjóðendur unnu tvær. Erlent 28.1.2007 20:29 Fimm hermenn felldir í Najaf Tveir bandarískir hermenn létu lífið þegar þyrla hrapaði í bardaganum í Najaf í dag. Þetta sagði fulltrúi bandaríska hersins í kvöld. Fréttamaður Reuters fréttaveitunnar sá þyrluna hrapa eftir að hafa lent í skothríð. Reykur liðaðist frá þyrlunni þegar hún hrapaði. Erlent 28.1.2007 20:09 250 uppreisnarmenn felldir í Írak Bandarískar og íraskar hersveitir hafa barist í allan dag við uppreisnarmenn úr röðum súnnía og sjía múslima í borginni Najaf. Bandaríski herinn hefur hingað til ekki viljað segja neitt um bardagann þar sem hann er enn í gangi en írösk yfirvöld sögðu rétt í þessu að fleiri en 250 uppreisnarmenn hefðu látið lífið. Erlent 28.1.2007 18:56 Leyniviðaukar ræddir á Alþingi Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði fyrir tæpu ári að Íslendingar hefðu EKKI gengist undir kvaðir sem losuðu Bandaríkjamenn undan ábyrgð á að hreinsa varnarsvæði á Íslandi. Síðan þá hafa komið fram leyniviðaukar, við varnarsamninginn frá 1951, sem segja aðra sögu. Utandagskrárumræða um viðaukana er fyrirhuguð á Alþingi um miðja viku. Erlent 28.1.2007 18:02 « ‹ 171 172 173 174 175 176 177 178 179 … 334 ›
Olmert íhugar að víkka aðskilnaðarmúrinn Forsætisráðherra Ísraels er að kanna hvort víkka eigi aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum, til þess að hann umljúki tvær landnemabyggðir Gyðinga, sem þar eru. Það myndi hafa í för með sér að tugþúsundir Palestínumanna yrðu girtir af, frá sinni heimabyggð. Hæstiréttur Ísraels hefur oft gripið í taumana þegar þetta hefur verið reynt. Erlent 31.1.2007 13:26
Hagnaður Boeing tvöfaldast Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing skilaði 989 milljóna dala, eða 67,8 millarða króna, hagnaði á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Þetta er rúmlega tvöfalt meiri hagnaður en á sama tíma árið 2005 en þá nam hann 460 milljónum dala, jafnvirði 31,5 milljörðum dala. Viðskipti erlent 31.1.2007 13:01
Aukin verðbólga í OECD-ríkjunum Verðbólga mældist 2,3 prósent að meðaltali á ársgrundvelli í innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í desember í fyrra. Þetta er 0,3 prósentustiga hækkun frá því í mánuðinum á undan. Næstmesta verðbólgan var líkt og fyrr hér á landi í desember en þá mældist hún 7,0 prósent. Viðskipti erlent 31.1.2007 11:57
Hráolíuverð lækkar lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag eftir nokkrar hækkanir í gær og fór niður í rúma 56 bandaríkjadali á tunnu. Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna birtir vikulega skýrslu um olíubirgðir landsins í dag. Greinendur gera ráð fyrir að olíubirgðir hafi dregist saman á milli vikna vegna kulda í Norður-Ameríku. Viðskipti erlent 31.1.2007 09:23
Vodafone yfir væntingum Viðskiptavinum breska fjarskiptarisans Vodafone fjölgaði um 8,7 milljónir um allan heim á síðasta ársfjórðungi liðins árs. Þetta er talsvert meira en gert hafði verið ráð fyrir. Aukningin skýrist að mestu um aukna hlutdeild fjarskiptafyrirtækisins, sem er eitt það stærsta í Evrópu, á nýmörkuðum á borð við Afríku, Austur-Evrópu og í Miðausturlöndum. Viðskipti erlent 31.1.2007 09:05
Kjúklingur með andarfit Kólumbískur bóndi keypti sér egg á dögunum, sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að kjúklingurinn sem kom úr egginu skartar sundfitjum að hætti anda. Líklega er að um stökkbreytingu sé að ræða. Erlent 30.1.2007 17:45
Microsoft kynnir nýtt stýrikerfi Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækið kynnti í gær nýjustu kynslóð Windows-stýrikerfisins og hefur kerfinu verið gefið nafnið Vista. Búist er við að innan árs hafi yfir eitt hundrað milljónir tölvunotenda um allan heim tekið kerfið í sína notkun. Erlent 30.1.2007 17:43
Vopnahléið að mestu virt Allt hefur verið með kyrrum kjörum á Gaza-ströndinni í dag eftir að samkomulag náðist á milli stríðandi fylkinga um vopnahlé. Verslanir og skólar voru opnaðir á nýjan leik en starfsemi þeirra hefur legið niðri síðan á fimmtudaginn þegar sló í alvarlega brýnu á milli liðsmanna Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas forseta. Erlent 30.1.2007 17:40
Á fimmta tug pílagríma liggur í valnum Á fimmta tug pílagríma lét lífið í fjölmörgum árásum í nágrenni Bagdad í dag, um það leyti sem Ashura-trúarhátíð sjía stóð sem hæst. Þar af voru sjö skotnir til bana þegar þeir voru á leið með rútu frá hinni helgu borg Karbala. Erlent 30.1.2007 17:38
55 nunnur á flótta undan löggunni Fimmtíu og fimm grískar nunnur, úr tveimur klaustrum, eru farnar í felur eftir að prjónaverksmiðja sem þær stofnuðu, fór á hausinn. Klaustur þeirra, eru nú auð og yfirgefin og enginn veit hvar hinar skuldugu þernur Krists eru niðurkomnar. Erlent 30.1.2007 16:33
DNA til að finna skellinöðruþjóf Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri manna í frönsku forsetakosningunum liggur undir ámæli fyrir það að lögreglan notaði bæði DNA prufur og fingraför til þess að hafa hendur í hári þjófa sem stálu skellinöðru frá einum sona hans. Sarkozy er innanríkisráðherra Frakklands og lögreglan heyrir undir hann. Erlent 30.1.2007 16:02
Grænlendingar vilja eiga olíuna einir Grænlendingar vilja eiga sína olíu óskipt, þegar og ef hún byrjar að streyma. Þeir telja ekki Dani eiga neitt tilkall til tekna af henni. Danir og Grænlendingar funda nú í hinni svokölluðu heimastjórnarnefnd, þar sem meðal annars er fjallað um efnahagsmál. Talið er að mikla olíu og önnur auðævi sé að finna á grænlenska landgrunninu. Erlent 30.1.2007 15:36
Vill girða Egyptaland af Varnarmálaráðherra Ísraels vill reisa girðingu á landamærunum við Egyptaland, til þess að koma í veg fyrir að palestinskir hryðjuverkamenn komist til Ísraels yfir Sínaí eyðimörkina. Aðstoðarmaður Amirs Peretz segir að hann hafi vakið máls á þessu eftir að þrír Gyðingar fórust í sprengjutilræði í hafnarborginni Eilat. Erlent 30.1.2007 14:39
Fá ekki undanþágu frá samkynhneigðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að kaþólska kirkjan fái enga ungaþágu frá nýjum lögum sem banna að samkynhneigðum sé mismunað í almennri þjónustu. Kirkjan fór fram á undanþágu fyrir ættleiðingarskrifstofur sínar, þar sem það samrýmist ekki trúnni að setja börn í fóstur hjá samkynhneigðum. Lögin taka gildi á þessu ári, þótt þau komi varla til framkvæmda fyrr en á því næsta. Erlent 30.1.2007 13:44
Loftslagið jarðar fer stöðugt hlýnandi Útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur valdið umtalsverðri hækkun á hitastigi andrúmsloftsins og hafsins með þeim afleiðingum að sjávarborð hefur risið og heimsskautaísinn bráðnað. Þetta er afdráttarlaus niðurstaða skýrslu sem loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna kynnir á næstu dögum. Erlent 29.1.2007 19:02
Sprengdi upp bakarí Samtökin Heilagt stríð og al-Aqsa-herdeildirnar hafa bæði lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í bænum Eilat í Ísrael í dag. Fjórir létu lífið í tilræðinu, sem er það fyrsta í landinu í níu mánuði. Erlent 29.1.2007 18:27
Allt stefnir í verkfall hjá British Airways Allt útlit er fyrir að tveggja daga verkfall starfsmanna breska flugfélagsins British Airways hefjist á morgun. Flugfélagið hefur þegar aflýst 1.300 flugferðum, þar á meðal til og frá Íslandi. Erlent 29.1.2007 12:07
Þrenn samtök lýsa ábyrgð Þrenn samtök hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í Rauðahafsbænum Eilat í Ísrael í morgun. Þrír létu lífið í árásinni en hún var gerð í bakaríi í bænum, sem er fjölsóttur af ferðamönnum. Erlent 29.1.2007 12:04
Yfir 300 uppreisnarmenn féllu í bardögum Að minnsta kosti 300 uppreisnarmenn eru sagðir hafa fallið í heiftarlegum átökum við íraskar og bandarískar hersveitir í Najaf-héraði undanfarinn sólarhring. Að minnnsta kosti fimm íraskir hermenn liggja í valnum eftir átökin og tveir bandarískir. Erlent 29.1.2007 12:02
Deutsche Telekom segir hagnað undir spám Þýski fjarskiptarisinn Deutsche Telekom segir hagnað fyrirtækisins geta orðið lægri á yfirstandandi rekstrarári en áður hafi verið áætlað vegna harðnandi samkeppni á þýska símamarkaðnum og óhagstæðs gengismunar. Viðskipti erlent 29.1.2007 10:39
Tvöfalt meira tap hjá Alitalia Ítalska flugfélagið Alitalia greindi frá því um helgina að áætlað tap fyrirtæksins í fyrra næmi um 380 milljónum evra, jafnvirði rúmra 34 milljörðum íslenskra króna. Þetta er tvöfalt meira tap en flugfélagið skilaði árið á undan. Tap flugfélagsins fram til nóvember í fyrra nemur 197 milljónum evra, tæpum 17,8 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 29.1.2007 09:50
Vígamenn Hamas ræna yfirmanni öryggissveita Fatah Vígamenn hliðhollir Hamas samtökunum rændu í kvöld yfirmanni öryggissveita Mahmoud Abbas, forseta heimastjórnar Palestínumanna. Talsmaður palestínskra öryggissveita skýrði frá þessu í kvöld. Maðurinn sem var rænt heitir Sayyed Shabban og var yfir öryggissveitum á Gaza. Erlent 28.1.2007 20:46
Kabila treystir stöðu sína Stuðningsmenn Joseph Kabila, forseta Kongó, unnu auðveldan sigur í fylkisstjórakosningum í Kongó en úrslit voru birt í dag. Stjórnarandstaðan, undir forystu Jean-Pierre Bemba, mótmælti niðurstöðununum samstundis og sagði brögð í tafli. Kosningabandalag Kabila vann sex af níu fylkisstjórakosningum og sjálfstæðir frambjóðendur unnu tvær. Erlent 28.1.2007 20:29
Fimm hermenn felldir í Najaf Tveir bandarískir hermenn létu lífið þegar þyrla hrapaði í bardaganum í Najaf í dag. Þetta sagði fulltrúi bandaríska hersins í kvöld. Fréttamaður Reuters fréttaveitunnar sá þyrluna hrapa eftir að hafa lent í skothríð. Reykur liðaðist frá þyrlunni þegar hún hrapaði. Erlent 28.1.2007 20:09
250 uppreisnarmenn felldir í Írak Bandarískar og íraskar hersveitir hafa barist í allan dag við uppreisnarmenn úr röðum súnnía og sjía múslima í borginni Najaf. Bandaríski herinn hefur hingað til ekki viljað segja neitt um bardagann þar sem hann er enn í gangi en írösk yfirvöld sögðu rétt í þessu að fleiri en 250 uppreisnarmenn hefðu látið lífið. Erlent 28.1.2007 18:56
Leyniviðaukar ræddir á Alþingi Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði fyrir tæpu ári að Íslendingar hefðu EKKI gengist undir kvaðir sem losuðu Bandaríkjamenn undan ábyrgð á að hreinsa varnarsvæði á Íslandi. Síðan þá hafa komið fram leyniviðaukar, við varnarsamninginn frá 1951, sem segja aðra sögu. Utandagskrárumræða um viðaukana er fyrirhuguð á Alþingi um miðja viku. Erlent 28.1.2007 18:02