Erlent
33 34 35 36 37 38 39 40 41 … 334 ›
Afkoma Storebrand talsvert yfir væntingum Norska fjármálafyrirtækið Storebrand hagnaðist um 675,8 milljónir norskra króna, 8,3 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi. Þetta er talsvert yfir væntingum. Kaupþing og Exista eiga tæp þrjátíu prósent í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 13.2.2008 09:09
Við núllið í Bandaríkjunum Helstu hlutabréfavísitölur leituðu jafnvægis í átt til núllsins eftir stökk uppá við í upphafi viðskiptadagsins í kjölfar þess að auðkýfingurinn Warren Buffett, einn af ríkustu mönnum heims, bauðst til að baktryggja nokkur af stærstu skuldatryggingafyrirtækjum Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 12.2.2008 21:04
Arabaríki sameinast um fréttahamlandi lög Arabaríki samþykktu í dag sameiginleg lög um gervihnattasjónvarp sem styrkir vald þeirra yfir slíkum útsendingum og setur pólitískri umræðu hömlur. Erlent 12.2.2008 16:36
Ísrael hrekur Asíubúa úr landi Ísraelska ríkisstjórnin ætlar að bola útlenskum matreiðslumönnum úr landi á næstu tveimur árum með því að endurnýja ekki atvinnuleyfi þeirra. Erlent 12.2.2008 14:23
Þjóðarsorg út af brunnu hliði Þjóðarsorg ríkir í Suður-Kóreu eftir að einn helgasti minnisvarði landsins eyðilagðist í bruna. Það var Namdæmun sem í beinni þýðingu er "Mikla suðurhliðið." Erlent 12.2.2008 11:39
Ástralskur liðsauki kominn til A-Timor Tvöhundruð manna framvarðasveit ástralskra hermanna kom til Austur-Timor í dag. Jafnframt kom áströlsk freigáta upp að ströndinni undan Dili, höfuðborg landsins. Erlent 12.2.2008 10:50
Ekki eitrað fyrir Napoleon Það hefur lengi verið haft fyrir satt að Bretar hafi myrt Napoleon Bonaparte með arseniki, þar sem hann var í útlegð á eynni Sankti Helenu í Suður-Atlantshafi. Erlent 12.2.2008 10:13
Aðeins hærra næst, majór Sænskur herflugmaður sem flaug 35 tonna Herkúles flutningavél svo lágt að hún nánast straukst við jörðina var í síðustu viku settur í tímabundið flugmann. Erlent 11.2.2008 16:07
SAS berst fyrir lífi sínu Nýr stjórnarformaður SAS flugfélagsins segir að það berjist nú fyrir lífi sínu. Daninn Fritz H. Schur segir að ekkert fyrirtæki á Norðurlöndum eigi í eins miklum erfiðleikum og SAS. Erlent 11.2.2008 15:53
Al Kæda að niðurlotum komin í Írak Í tveimur skýrslum frá foringjum Al Kæda í Írak er því lýst að samtökin séu að niðurlotum komin og liðsmenn óviljugir til að berjast. Erlent 11.2.2008 15:13
Vilja dauðadóma yfir Guantanamo föngum Bandaríska varnarmálaráðuneytið mun krefjast dauðadóms yfir sex föngum sem haldið er í Guantanamo fangelsinu á Kúbu. Erlent 11.2.2008 13:54
Farþegavél á fimmföldum hljóðhraða Breska fyrirtækið Reaction Engines, í Oxford hefur teiknað 300 sæta flugvél sem á að fljúga á 6.400 kílómetra hraða. Það er fimmfaldur hljóðhraði. Erlent 11.2.2008 12:39
Norska sendiráðinu í Kabúl lokað vegna hótunar Norska sendiráðið í Kabúl hefur verið rýmt og því lokað vegna hótunar um hryðjuverkaárás. Erlent 11.2.2008 11:53
Sprengdi sjálfan sig í loft upp Afganskur múlla í Helmand héraði sprengdi sjálfan sig í loft upp meðan hann var að útbúa sprengju sem hann ætlaði að nota gegn hermönnum NATO. Erlent 11.2.2008 10:52
Slagsmál og íkveikjur á Nörrebro Mikil slagsmál og íkveikjur voru á Nörrebro í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Danskir fjölmiðlar segja að óeirðaseggirnir hafi verið annarrar kynslóðar innflytjendur. Erlent 11.2.2008 10:11
Nýtt hlutafé í Société Generale með afslætti Franski bankinn Société Generale hóf í dag hlutafjárútboð sem reiknað er með að muni bæta eiginfjárstöðu hans um 5,5 milljarða evra, jafnvirði tæpra 550 milljarða íslenskra króna. Athygli vekur að hlutafjárútboðið er með afslætti og heilum 38,9 prósentum undir lokagengi bréfa í bankanum á föstudag í síðustu viku. Viðskipti erlent 11.2.2008 09:11
EES samningurinn opnað dyr EES samningurinn hefur opnað dyrnar að mikilvægu samstarfi Íslands og Noregs og annarra Evrópuríkja i öryggismálum. Þetta sagði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, á ráðstefnu um Evrópumál sem haldin var í Ósló um helgina. Erlent 10.2.2008 18:29
Íslensks pilts enn leitað á Jótlandi Danska lögreglan hefur um helgina kannað tvo staði á Jótlandi eftir að vísbendingar bárust um að 18 ára íslenskur piltur, Ívar Jörgensson, væri þar niðurkomin, en ekkert hefur spurst til hans í heila viku. Erlent 10.2.2008 18:19
Þurfum að sækja um aðild að ESB. Ísland verður að sækja um aðild að Evrópusambandinu og taka upp evru sem gjaldmiðil til að losna við þá ofurbyrði sem hvílir á íslenskum heimilum og fyrirtækjum. Þetta sagði Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, á ráðstefnu um Evrópumál sem haldin var í Ósló í dag. Innlent 9.2.2008 18:18
Vinur verðbréfaskúrksins handtekinn Franska lögreglan greindi frá því í dag að hún hefði í gæsluvarðhaldi verðbréfamiðlara sem talinn er geta átt aðild að umsvifamiklum verðbréfaviðskiptum Jerome Kerviels. Kerviels tapaði 4,9 milljörðum evra, jafnvirði um 480 milljörðum íslenskra króna, í áhættusömum og framvirkum verðbréfaviðskiptum í nafni franska bankans Societe Generale. Þetta er umsvifamesta tap miðlara í heimi. Viðskipti erlent 8.2.2008 10:40
Ráðherrar funda um efnahagshorfur Fjármálaráðherra sjö stærstu iðnríkja heims eru nú staddir í Tókýó í Japan en þeir munu funda um dræmar efnahagshorfur á næstu mánuðum á morgun. Viðskipti erlent 8.2.2008 09:58
Hækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Hlutabréfamarkaðurinn hefur farið vel af stað í Evrópu í dag eftir fremur slappa viku. Gærdagurinn var sérstaklega slæmur en fjárfestar voru almennt óánægðir með stýrivaxtaákvörðun bæði í Bretlandi og á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 8.2.2008 08:58
Stýrivextir lækka í Bretlandi Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, lækkaði stýrivexti um 25 punkta í dag og standa vextirnir nú í 5,25 prósentum. Þetta er í samræmi við spár markaðsaðila sem segja að bankastjórnin standi frammi fyrir erfiðum aðstæðum. Hann vilji halda verðbólgu niðri á sama tíma og aðstæður á fjármálamörkuðum séu með versta móti, vextir með hæsta móti og lánsfé því dýrt. Viðskipti erlent 7.2.2008 12:18
Stefnir í fjöldauppsagnir hjá Northern Rock Útlit er fyrir að allt að 2.400 manns verði sagt upp hjá breska bankanum Northern Rock á næstu þremur árum eigi að takast að snúa við rekstrinum. Þetta segir Paul Thompson, einn þeirra sem leiðir yfirtökutilboð Richard Bransons í bankann. Viðskipti erlent 7.2.2008 11:50
HBSC sagður bjóða í Société Generale Gengi hlutabréfa í franska bankanum Société Generale hækkaði um rúm sex prósent á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag eftir að orðrómur fór á kreik að evrópski risabankinn HSBC sé að íhuga að leggja fram yfirtökutilboð í bankann. Viðskipti erlent 6.2.2008 11:34
BHP hækkar tilboðið í Rio Tinto Ástralska námafélagið BHP Billiton hefur hækkað óvinveitt yfirtökutilboð sitt í ál- og námurisann Rio Tinto. Helsta ástæðan fyrir bættu tilboði er gagntilboð frá Chinalco, stærsta álfélagi Kína, sem er í ríkiseigu, í Rio Tinto. Gengi hlutabréfa í BHP féll um fimm prósent í kjölfarið. Viðskipti erlent 6.2.2008 09:37
Disney-risinn siglir gegnum niðursveifluna Hagnaður Disney-risans var umfram væntingar á fyrsta ársfjórðungi, sem lauk í enda janúar samkvæmt bókum afþreyingafyrirtækisins. Það skrifast á góða sölu á DVD-myndum á borð við „High School Musical“ og fjölgun gesta í Disneyland- og Disneyworldgarðana. Viðskipti erlent 6.2.2008 09:02
Alvöru nágrannaerjur Fyrir sextán árum setti ungverskur prófessor upp einfalda loftnetsstöng á raðhúsi sínu í Bergen í Noregi. Hann vildi geta talað við fjölskyldu sína í heimalandinu um stuttbylgju-talstöð. Erlent 4.2.2008 16:54
15 ára drengur hálshöggvinn í Saudi Arabíu Fjölskylda fimmtán ára drengs í Saudi-Arabíu sem var hálshöggvinn fyrir morð vill fá bætur frá ríkinu á þeim forsendum að aftaka hans brjóti í bága við lög. Erlent 4.2.2008 16:17
100 þúsund börn í fangelsi í Bandaríkjunum Yfir 100 þúsund börn sitja í fagelsum í Bandaríkjunum, mörg fyrir litlar sakir. Bandaríska dagblaðið Chicago Tribune hefur skrifað greinaflokk um ástandið sem blaðið segir að sé skelfileg. Erlent 4.2.2008 16:04