Erlent
80 81 82 83 84 85 86 87 88 … 334 ›
Stýrivextir hækka í Bretlandi Englandsbanki ákvað í dag að hækka stýrivexti um 25 punkta og fara þeir við það í 5,75 prósent. Þetta er í takt við væntingar en lengi búist við að bankinn myndi hækka stýrivexti á næstunni. Viðskipti erlent 5.7.2007 11:34
Dóttur bresks verkamanns rænt í Nígeríu Þriggja ára gamalli dóttur verkamanns sem sagður er breskur var rænt af byssumönnum í Nígeríu snemma í morgun. Stúlkan var numin á brott úr bíl á leið hennar í skólann í olíuborginni Port Harcourt. Erlent 5.7.2007 10:25
Hráolíuverð lækkar Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega á markaði í Asíu í dag en greinendur gera ráð fyrir því að eldsneytisbirgðir hafi aukist á milli vikna í Bandaríkjunum. Birgðirnar hafa dregist saman vestanhafs undanfarnar vikur. Viðskipti erlent 5.7.2007 10:05
Rútuslys í Mexíkó Óttast er að að minnsta kosti 40 manns séu látnir eftir að rúta varð undir skriðu í gærmorgun nærri bænum San Miguel Eloxochitlan í Mexíkó. Rútan var á leið um fjalllendi og er talið að skriðan hafi fallið í kjölfar mikillar úrkomu á svæðinu undanfarið. Erlent 5.7.2007 09:52
Hlutabréf féllu í Kína Gengi kínversku SCI-vísitölunnar féll um 5,25 prósent í kauphöllinni í Sjanghæ við lokun viðskipta í Kína í dag. Ástæðan er ótti fjárfesta við að aukinn fjöldi fyrirtækjaskráninga á hlutabréfamarkað og hlutafjáraukningar muni veikja markaðinn. Viðskipti erlent 5.7.2007 09:20
Ástralar segja olíu vera ástæðu veru sinnar í Írak Varnarmálaráðherra Ástralíu, Brendan Nelson, sagði í gær að það að tryggja olíuforða heimsins væri ein af þeim ástæðum sem ríkisstjórn landsins horfði til þegar ákveðið væri hversu lengi ástralskar hersveitir yrðu í Írak. Nelson sagði þó að meginástæðan fyrir veru hersveitanna þar væri til þess að koma í veg fyrir að skilyrði almennings versni ekki enn frekar. Erlent 5.7.2007 08:04
Al-Kaída sendir frá sér nýtt myndband Næstráðandi al-Kaída birti í gær nýtt myndband á internetinu. Í því lofar hann vígamenn sem berjast í Írak og annars staðar. Hann birtist klæddur í allt hvítt og varaði Bandaríkjamenn við því að vindurinn, að boði Allah, blési gegn Washington. Erlent 5.7.2007 07:13
Sochi heldur Vetrarólympíuleikana árið 2014 Rússneska borgin Sochi hefur verið valin til þess að halda Vetrarólympíuleikana árið 2014. Hún var valin í kosningu sem fram fór á fundi Alþjóðaólympíuráðsins í Gvatemala í gærkvöldi. Vladimir Putin, forseti Rússlands, mætti til Gvatemala og talaði fyrir hönd Sochi til þess að auka líkurnar á því að hún yrði fyrir valinu. Erlent 5.7.2007 07:09
Stjórnvöld í Brasilíu semja um alnæmislyf Stjórnvöld í Brasilíu hafa tekið tilboði lyfjarisans Abbott um ódýr alnæmislyf. Samningurinn sparar ríkinu um 10 milljónir dollara ár hvert. Í maí síðastliðnum afnámu þau einkaleyfi á ýmsum alnæmislyfjum og flytja nú inn mun ódýrari samheitalyf. Erlent 5.7.2007 07:06
Fleiri en þúsund herskáir múslimar hafa gefist upp í Rauðu moskunni Fleiri en eitt þúsund nemendur við bænaskólann Rauðu moskuna í Islamabad, höfuðborg Pakistan, hafa gefist upp að beiðni pakistanskra yfirvalda. Erlent 5.7.2007 06:56
Evrópusambandið slær í gegn á YouTube Eitt vinsælasta myndbandið á vefveitunni YouTube þessa dagana er myndband frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Myndbandið fjallar hins vegar ekki um landbúnaðarsáttamála þess heldur er það samantekt af kynlífsatriðum úr evrópskum bíómyndum. Erlent 4.7.2007 17:30
Myndbandsupptökur af gíslum birtar Uppreisnarmenn í Kólumbíu hafa birt myndbandsupptökur af sjö gíslum sem sumir hafa verið í haldi í nærri áratug. Í upptökunum biðja gíslarnir ríkisstjórn Kólumbíu um að ræða við gíslatökumennina en vara við því að hernaðaraðgerðum verði beitt við björgun. Erlent 4.7.2007 16:23
Brown vill aukið eftirlit með nýráðningum lækna Gordon Brown lofaði í fyrsta fyrirspurnartíma sínum í þinginu í dag að leggja sitt af mörkum til að stuðla að auknu öryggi í ljósi sprengjutilræðanna sem urðu einungis tveimur dögum eftir að hann tók við embætti. Erlent 4.7.2007 14:48
Alan Johnston þakkar vestrænum fjölmiðlum Breska fréttamanninum Alan Johnston var sleppt í morgun en hann hafði verið í haldi mannræningja á Gaza í 114 daga. Hann hélt fréttamannafund í Jerúsalem í dag og sagði það stórkostlega tilfinningu að vera frjáls á ný. Erlent 4.7.2007 13:55
Breska lögreglan finnur sjálfsmorðsbréf Breska lögreglan hefur fundið sjálfsmorðsbréf í tengslum handtöku tveggja manna sem lögðu sprengjuhlöðnum bíl við flugvöllinn í Glasgow síðastliðinn laugardag, að því er CNN fréttastofan greinir frá. Erlent 4.7.2007 13:36
Metsekt fyrir samkeppnisbrot Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins (ESB) dæmdu í dag spænska símafyrirtækið Telefonica til að greiða 151,9 milljónir evra, jafnvirði 12,8 milljarða íslenskra króna, í sekt vegna brota á samkeppnislögum. Þetta er metsekt vegna brota af þessu tagi. Viðskipti erlent 4.7.2007 13:24
KKR skráð á markað Fjárfestingasjóðurinn KKR ætlar að feta í fótspor bandaríska félagsins Blackstone og skrá félagið á markað vestanhafs í kjölfar útboðs með bréf í félaginu. Fjárfestingasjóðir hafa í auknum mæli horft til þess sækja sér aukið á almennum markaði til að auka fjárfestingagetu sína. Viðskipti erlent 4.7.2007 11:08
Yfirvöld í Ástralíu fá 48 klukkustunda frest til að halda indverskum lækni Dómari hefur gefið yfirvöldum í Ástralíu 48 klukkustunda frest til að halda indverskum lækni, sem handtekinn var í gær, án ákæru. Læknirinn Mohammed Haneef var handtekinn í tenglsum við sprengjutilræðin á Bretlandseyjum um síðustu helgi. Erlent 4.7.2007 11:32
Alcoa kíkir ekki í bækur Alcan Kanadíski álrisinn Alcan, móðurfélag álversins í Straumsvík, hefur neitað bandaríska álframleiðandanum Alcoa, sem rekur álver við Reyðarfjörð, að að skoða bókhald fyrirtækisins. Alcoa hefur ýjað að því að það geti hugsað sér að bæta yfirtökutilboð sitt í Alcan, sem hljóðar upp á 28 milljarða dala, jafnvirði 1.739 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 4.7.2007 11:17
Blackstone kaupir Hilton-hótelkeðjuna Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Blackstone Group, sem skráður var á hlutabréfamarkað vestanhafs fyrir um hálfum mánuði, hefur keypt Hilton-hótelkeðjuna. Kaupverð nemur 26 milljörðum dala, jafnvirði heilla 1.615 milljarða íslenskra króna. Greitt verður fyrir hótelin í reiðufé. Viðskipti erlent 4.7.2007 09:37
Íhuga að draga úr viðbúnaði Öryggissérfræðingar í Bretlandi eru að íhuga að lækka viðbúnaðarstigið í landinu um eitt stig eftir þær fjölmörgu handtökur sem farið hafa fram undanfarna daga. Ef það gerist verður slakað örlítið á öryggi í landinu. Erlent 4.7.2007 08:36
MEND aflýsir vopnahléi Nígeríski uppreisnarhópurinn MEND (Movement for the Emancipation of the Niger Delta) hefur aflýst mánaðarlöngu vopnahléi. Hópurinn ber ábyrgð á flestum þeirra árása sem eru gerðar við ósa Níger-árinnar en þar er gríðarlegt magn af olíu að finna. Erlent 4.7.2007 08:11
Frambjóðendur flykkjast til Iowa Frambjóðendur í forkosningum stjórnmálaflokkanna í Bandaríkjunum flykkjast nú til ríkisins Iowa til þess að vera viðstaddir hátíðahöld vegna þjóðhátíðardags Bandaríkjanna. Hillary og Bill Clinton fóru þangað saman og Barack Obama fór þangað með fjölskyldu sína. Þau sækjast eftir útnefningu demókrata. Erlent 4.7.2007 07:37
Búist við meiri átökum í Islamabad Yfirvöld í Pakistan gáfu nemendum í bænaskólanum Rauðu moskunni í höfuðborginni Islamabad frest til klukkan sex í morgun til þess að gefast upp en átök hafa staðið á milli þeirra síðan í gær. Fresturinn rann út án uppgjafar stúdentanna og samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera eru konur og börn að yfirgefa moskuna. Erlent 4.7.2007 07:14
Víetnam kaupir bóluefni gegn fuglaflensu Stjórnvöld í Víetnam hafa sent fulltrúa sína til Kína til kaupa á 50 milljón skömmtum af bóluefni gegn fuglaflensu eftir að tvennt lést nýverið vegna hennar. Aðeins eru til um 15 milljón skammtar í landinu sem er langt frá því að vera nóg til þess að baráttan gegn fuglaflensu í landinu eigi eftir að skila sér. Fimm manns hafa fengið flensuna síðan í maí á þessu ári og þar af hafa tveir látið lífið. Erlent 4.7.2007 07:12
25 liðsmenn al-Kaída drepnir í Írak Bandaríski herinn drap 25 vígamenn í átökum norður af Bagdad í nótt. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá hernum nú í morgun. Samkvæmt henni voru átökin hluti af þriggja daga aðgerð nærri bænum Mukhisa í Diyaa héraðinu. Þar eru nú rúmlega tíu þúsund bandarískir og írakskir hermenn staddir til þess að berjast gegn liðsmönnum al-Kaída sem þar hafa aðsetur. Erlent 4.7.2007 07:09
Alan Johnston sleppt eftir fjóra mánuði í haldi mannræningja Mannræningjar hafa sleppt breska fréttamanninum Alan Johnston eftir að hafa haldið honum í nærri fjóra mánuði. Erlent 4.7.2007 07:05
Dautt kameldýr í Svíþjóð Lögreglan í Svíþjóð klórar sér í hausnum og spyr hvaða erindi kameldýr hafI átt til Svíþjóðar. Hræ af kameldýri fannst við vegkantinn á hraðbraut nærri Karlskrona í suðausturhluta Svíþjóðar í gær. Erlent 3.7.2007 19:31
Átök í Íslamabad Minnst 9 hafa týnt lífi og rúmlega 80 særst í átökum lögreglu við herská námsmenn nærri Rauðu moskunni í Íslamabad, höfuðborg Pakistans, í dag. Samið var um vopnahlé eftir að stríðandi fylkingar höfðu skipst á skotum í margar klukkustundir. Erlent 3.7.2007 19:29
Hrökklaðist úr embætti Varnarmálaráðherra Japans hrökklaðist úr embætti í dag vegna umdeildra ummæla. Hann móðgaði marga landa sína með því að gefa í skyn að kjarnorkuárásir Bandaríkjamanna á Hiroshima og Nagasaki 1945 hafi verið réttlætanlegar. Ummæli ráðherrans gátu vart fallið á verri tíma fyrir Japansstjórn, skömmu fyrir kosningar. Erlent 3.7.2007 19:27
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent