Erlent
83 84 85 86 87 88 89 90 91 … 334 ›
Naglar, gas og bensín í sprengjunni í Lundúnum Lögreglan í Lundúnum fann og gerði óvirka sprengju sem fannst í bíl nærri Piccadilly Circus í miðborginni í nótt. Sprengjan er sögð hafa verið stór. Sprengjusveit lögreglunnar var kölluð til og sprengdi hún hana í loft upp. Í bílnum fundust naglar og mikið af bensíni og gasi í kútum. Erlent 29.6.2007 07:39
Galdraráðstefna í Noregi Meira en sextíu sérfræðingar í fjölkynngi víðs vegar að úr heiminum ætla að hittast í bænum Vardo í Noregi til skrafs og ráðagerða. Ráðstefnan, sem ber heitið Alþjóðlega miðnætur fjölkyngis ráðstefnan, er skipulögð af skandínavískum og bandarískum háskólum. Erlent 28.6.2007 23:27
Eldsvoði í Stokkhólmi Mikill eldur kom upp í líkamsræktarstöð á Långholmsgatan í Stokkhólmi um hádegisbilið í dag. Einungis liðu tíu mínútur frá því að brunavarnarkerfið fór í gang og þar til staðurinn var orðinn alelda. Snör viðbrögð starfsmanna urðu til þess að allir komust út en að sögn Anders Bergqvist sem leiddi björgunaraðgerðirnar munaði mjóu þar sem eldurinn breiddist gífurlega hratt út. Erlent 28.6.2007 23:09
Algert bann við umskurði kvenna í Egyptalandi Stjórnvöld í Egyptalandi hafa lagt algert bann á umskurð kvenna. Ákvörðunin er tekin í kjölfar þess að ung stúlka dó nýlega á meðan á umskurði stóð. Bann við umskurði kvenna tók gildi í Egyptalandi fyrir 10 árum en var aðgerðin þó leyfð í sérstökum tilfellum og þá eingöngu ef hún var í höndum hæfra lækna. Erlent 28.6.2007 21:24
Fimm klappstýrur létust í bílslysi Fimm stúlkur úr klappstýruliði bandaríska menntaskólans Fairport létust á þriðjudag eftir árekstur við vörubíl nærri Rochester. Stúlkurnar voru á leið heim úr helgarferðalagi ásamt fjórum öðrum úr klappstýruliðinu sem keyrðu í bíl fyrir aftan þær. Stúlkurnar í aftari bílnum urðu vitni að því þegar bíll stúlknanna sem létust fór yfir á vitlausan vegarhelming og mætti vörubíl. Erlent 28.6.2007 20:49
Jarðskjálfti í Chile Jarðskjálfti varð 150 KM norður af Valparaiso í Chile í dag. Skjálftinn var 5.6 á ricter. Hann fannst vel í höfuðborginni Santiago og skulfu byggingar og rúður. Engar upplýsingar eru um tjón eða slys á fólki. Erlent 28.6.2007 20:18
Áherslan á innanríkismál Töluverðar breytingar urðu á ráðherraliðinu í nýrri ríkisstjórn Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands, sem kynnt var í dag. Skipt var um utanríkisráðherra og kona í fyrsta sinn skipuð innanríkisráðherra. Breskur stjórnmálafræður sem staddur er á Íslandi telur að Brown leggi áherslu á mál sem komi við buddu almennra Breta og láti sérfróða um heimsmálin. Erlent 28.6.2007 18:25
Öldungadeild Bandaríkjanna felldi innflytjendafrumvarpið Öldungadeild Bandaríkjanna felldi í dag frumvarp um innflytjendur. 60 atkvæði þurfti til frumvarpið yrði samþykkt en aðeins 46 kusu með því þannig að 14 atkvæði vantaði upp á. Erlent 28.6.2007 16:47
Skógareldar í Grikklandi Skógareldar sem geisa í Grikklandi hafa orðið að minnsta kosti tveimur að bana og eyðilagt mörg heimili. Þetta er aðeins nokkrum dögum eftir að gífurleg hitabylgja varð til þess að minnsta kosti níu manns létust úr hitaslagi. Erlent 28.6.2007 16:27
Olíuverð ekki hærra í 10 mánuði Heimsmarkaðsverð á hráolíu skaust yfir 70 dali á tunnu á helstu fjármálamörkuðum í dag vegna yfirvofandi skorts á eldsneyti yfir sumartímann. Verðið hefur ekki verið jafn hátt síðan síðasta haust. Viðskipti erlent 28.6.2007 16:06
Hægur hagvöxtur í Bandaríkjunum Hagvöxtur mældist 0,7 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að hagvöxtur hafi ekki mælst minni í fjögur ár er þetta 0,1 prósentustigi meira en gert var ráð fyrir. Hagfræðingar höfðu hins vegar gert ráð fyrir 0,8 prósenta hagvexti. Viðskipti erlent 28.6.2007 15:56
Hæstiréttur stöðvar aftöku geðsjúks manns Hæstiréttur í Washington stöðvaði í dag aftöku geðsjúks manns sem hlaut lífstíðardóm árið 1995. Maðurinn drap foreldra fyrrverandi konu sinnar árið 1992. Maðurinn klæddist fjólubláum kúrekafötum við réttarhöldin og kenndi John F. Kennedy og Jesú um morðin. Atkvæðagreiðsla hæstaréttar um málið endaði 5-4. Erlent 28.6.2007 15:46
Flugslys í Angólu TAAG Boeing 737 flugvél hrapaði í norðurhluta Angólu í dag með 78 farþega innanborðs. Að minnsta kosti sex hafa látið lífið og margir slasaðir hafa verið fluttir á sjúkrahús. Samkvæmt ANGPOP fréttastofunni missti flugvélin jafnvægi við lendingu og brotlenti á byggingu sem eyðilagðist. Erlent 28.6.2007 15:13
11 manns látist á tíu dögum í Texas Flóð í Texas hafa orðið 11 manns að bana í Marbles Falls síðustu tíu daga. Stanslaus rigning og vindur í gær gerði það að verkum að þyrlur þurftu að gera bið á því að bjarga fólkum af húsþökum heimila sinna. Erlent 28.6.2007 14:54
Hjónum sleppt gegn tryggingu í Pakistan Hæstiréttur í Pakistan hefur skipað fyrir um að hjón sem hafa verið í haldi verði sleppt gegn tryggingu. Hjónin voru handtekin eftir að í ljós kom að eiginmaðurinn Shumail Raj væri í raun kona. Þau voru upprunalega dæmd í þriggja ára fangelsi. Erlent 28.6.2007 14:23
Samsvörun í fuglaflensutilvikum í Tékklandi og Þýskalandi Fuglaflensutilvik sem hafa komið upp í Tékklandi og suðurhluta Frakklands síðustu misseri eru talin eiga sama uppruna. Heilbrigðisyfirvöld í Tékklandi hafa fundið H5N1 afbrigði veirunar í tveimur fuglabúum og í einum dauðum svani á meðan þjóðverjar hafa fundið veiruna í þónokkrum villtum fuglum. Erlent 28.6.2007 13:57
Metafkoma hjá BBC Breska ríkisútvarpið (BBC) skilaði hagnaði upp 111,1 milljónir punda, um 14 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er metafkoma í sögu útvarpsins sem skrifast að miklu leyti á góða sölu á mynddiskaútgáfum sjónvarpsþátta á borð við Planet Earth, Life on Mars og Doctor Who, sem nú er sýndur í Ríkissjónvarpinu. Viðskipti erlent 28.6.2007 13:25
S-Kórea mun bæta verkamönnum upp tekjutap Suður-Kórea mun eyða 140,3 milljörðum dala til að bæta sjómönnum og bændum upp tap sem þeir verða fyrir vegna samnings um frjáls viðskipti við Bandaríkin. Samningurinn gildir til ársins 2013 og búist er við að efnahagur S-Kóreu styrkist til muna. Erlent 28.6.2007 13:23
Táningur handtekinn fyrir morð í Englandi Táningur hefur verið handtekinn fyrir morðið á hinum 14 ára gamla Martin Dinnegan. Dinnegan var stunginn til bana eftir að hann og vinir hans lentu í útistöðum við 20 manna hóp á þriðjudaginn. Erlent 28.6.2007 12:42
Impregilo grunað um svik á Ítalíu Gengi hlutabréfa í ítalska verktakafyrirtækin Impregilo, sem meðal annars sér um framkvæmdir á Kárahnjúkum, féll um rúm 15 prósent á hlutabréfamarkaði á Ítalíu eftir að ítalskur ríkissaksóknari þar í landi bannaði fyrirtækinu að nýta sér meinaði fyrirtækinu sjá um eyðingu úrgangs í Campaniahéraði á Ítalíu. Fyrirtækið er grunað um svik í tengslum við eyðinguna. Viðskipti erlent 28.6.2007 12:36
Tveir láta lífið í sjálfsmorðsárás í Kabúl Tveir vestrænir öryggisverðir létu lífið í dag í höfuðborg Afghanistan, Kabúl. Mennirnir létust þegar ráðist var að bílalest þeirra með sjálfmorðssprengjubíl. Talíbanar segjast bera ábyrgð á árásinni. Erlent 28.6.2007 12:29
Menntun flóttabarna Átta milljón börn flóttamanna munu njóta menntunar ef áætlun Alþjóðasamtaka Barnaheilla nær fram að ganga. Þegar hafa þau komið á þriðju milljón barna til hjálpar. Neyðarteymi samtakanna fundar í Reykjavík þessa dagana. Innlent 28.6.2007 12:04
Sjúkrahús í Los Angeles losa sig við heimilislausa Saksóknarar í Los Angeles hafa skráð borgaralega kvörtun gegn tveimur sjúkrahúsum og flutningafyrirtæki fyrir að losa sig við heimilislausa sem þurfa hjálp. Vitað er um fjögur aðskilin atvik. Á meðal þeirra sem hafa verið sendir í burtu er hinn 54 ára gamli Gabino Olvera. Erlent 28.6.2007 11:54
Lockerbie-málið verður tekið upp á ný Hæstiréttur Skotlands þarf að taka fyrir áfrýjun í máli líbíska leyniþjónustumannsins Abdel Basset al-Megrahi sem sakfelldur var fyrir aðild sína að Lockerbie sprengjuárásinni árið 2001. Sjálfstæð eftirlitsnefnd skoska ríkisins komst að þessari niðurstöðu í morgun. Víst þykir að aðstandendur fórnarlambanna eigi eftir að mótmæla niðurstöðunni harkalega. Erlent 28.6.2007 11:40
FIFA endurskoðar hæðarbann Forseti FIFA, Sepp Blatter, sagði í dag að hann myndi endurskoða ákvörðun sambandsins um að banna alþjóðlega knattspyrnuleiki 3.000 metrum yfir sjávarmáli og athuga hvort ætti að ógilda hana. Yfirlýsing Blatters kemur í kjölfar fundar með forseta Bólivíu, Evo Morales. Það var í gær sem að FIFA ákvað að hækka viðmiðið úr 2.500 metrum í 3.000. Lokaniðurstöðu í málinu verður að vænta í næstu viku. Erlent 28.6.2007 10:54
Unglingspiltur dregur játningu til baka í Bandaríkjunum Kenneth Bartley hefur dregið játningu sína til baka, en hann var dæmdur fyrir tæplega tveimur árum fyrir morð á aðstoðarskólastjóranum sínum. Einnig var hann dæmdur fyrir tilraun til manndráps. Bartley, sem er 15 ára, segir nú að þáverandi lögfræðingur sinn hafi sagt honum að játa. Erlent 28.6.2007 10:41
Eþíópía býr sig undir innrás frá Eritreu Stjórnvöld í Eþíópíu sögðu frá því í dag að þau séu að búa sig undir innrás frá grannþjóðinni Eritreu. Löndin tvö börðust hatrammlega um svæði á landamærum sínum á árunum 1998 til 2000. Ráðamenn í Eþíópíu segja undirbúninginn fyrirbyggjandi og til þess að geta hrundið árás ef til hennar kemur. Stjórnvöld í Eritreu neita því hins vegar að þau hafi í hyggju að ráðast inn í Eþíópíu. Erlent 28.6.2007 10:26
Fjöldi fanga eykst ört Fjöldi fanga í fangelsum í Bandaríkjunum fjölgaði um 42.000 síðasta ár. Það er mesti fjöldi nýrra fanga síðan árið 2000. Samtals eru 2,2 milljónir manna í fangelsum í Bandaríkjunum. Erlent 28.6.2007 10:18
Capello sagður á förum frá Real Spænska blaðið Marca fullyrðir í dag að þjálfari Spánarmeistara Real Madrid, Ítalinn Fabio Capello, hafi verið rekinn úr starfi. Hermt er að Pedja Mijatovic, íþróttamálastjóri félagsins, hafi þegar tjáð aðstoðarmanni Capellos að krafta hans sé ekki lengur óskað en Capello er nú í fríi í Kína. Fótbolti 28.6.2007 10:16
Indónesískum flugfélögum bannað að fljúga í Evrópu Öllum indónesískum flugfélögum hefur verið bannað að fljúga til Evrópusambandsins frá og með næstu viku. Ekkert indónesískt flugfélag flýgur um þessar mundir til Evrópu svo að bannið er frekar viðvörun en nokkuð annað. Erlent 28.6.2007 10:14
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent