Lög og regla
85 86 87 88 89 90 91 92 93 … 120 ›
Sjö króna sekt fyrir grammið Bannað er með lögum að flytja inn munntóbak sem engu að síður margir nota. Allt munntóbak sem finnst er gert upptækt á Keflavíkurflugvelli og er sjö króna sekt á hvert gramm sem næst. Heildsali sem blaðið veit um selur um 125 kíló af munntóbaki á tveggja vikna fresti. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:48
Ökumaður virtist látinn Lögreglan og sjúkrabíll voru send með hraði á Vogastapa um hádegisbil eftir að tilkynnt var um kyrrstæða bifreið þar sem ökumaðurinn virtist ekki vera með lífsmarki. Því var neyðarlið sent á staðinn í flýti. Í þann mund er hjálpin barst varð vart við lífsmark í bílnum. Innlent 13.10.2005 18:49
Dylgjur óheimilar Samkeppnisráð úrskurðaði í gær að Hnit hf., hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að gefa í skyn í bréfi til ýmissa sveitarfélaga að keppinautur noti gamlan og úreltan búnað við loftmyndatöku. Innlent 13.10.2005 18:48
Enginn handtekinn vegna ránsins Enginn hefur enn verið handtekinn vegna ránsins í Árbæjarapóteki í fyrradag eftir að tveimur mönnum var sleppt í gær að loknum yfirheyrslum. Grunur beindist fljótt að þeim en þeir virðast hafa öruggar fjarvistarsannanir. Innlent 13.10.2005 18:48
Fangelsi og 30 milljóna sekt Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun tvo menn til að greiða þrjátíu milljónir króna hvor í sekt og í fjögurra og fimm mánaða fangelsi fyrir stórfelld skattsvik og bókhaldsbrot. Innlent 13.10.2005 18:48
Báturinn gjöreyðilagðist í eldinum Slökkvistarfi um borð í fiskiskipinu Val GK í Sandgerðishöfn lauk ekki fyrr en klukkan hálf þrjú í nótt. Talið er að báturinn sé gjörónýtur og að tjónið nemi tugum milljóna króna. Innlent 13.10.2005 18:48
Dæmdur fyrir fjársvik og innbrot Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir fjársvik, þjófnað og að taka við þýfi. Maðurinn hafði meðal annars framvísað greiðslukorti fyrirtækis í leyfisleysi og brotist inn í íbúðarhúsnæði og stolið þaðan verðmætum. Innlent 13.10.2005 18:48
8 handteknir vegna fíkniefnamála Átta manns voru handteknir á Akureyri um helgina vegna fíkniefnamála og enn eitt fíkniefnamálið hefur verið í rannsókn síðan í nótt. Mennirnir átta voru teknir í tvennu lagi og fundust fíkniefni og tól til neyslu þeirra í báðum tilvikum. Innlent 13.10.2005 18:48
Skilorð fyrir árás með flösku Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær mann á 23. aldursári í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir að hafa slegið mann með bjórflösku í andlitið og sparkað í höfuð hans með þeim afleiðingum að bein í andliti brotnuðu. Innlent 13.10.2005 18:48
Tæpt ár fyrir kjálkabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 33 ára gamlan karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, innbrot og þjófnað. Manninum var gefið að sök að hafa ráðist á konu í íbúð sinni að morgni gamlársdags árið 2003 og misþyrmt henni með þeim afleiðingum að hún kjálkabrotnaði. Innlent 13.10.2005 18:48
Stal buxum, kaffi og frönskum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær nítján ára Keflvíking í hundrað daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðartilraun. Pilturinn hafði aðfaranótt 26. maí í fyrra farið inn á Flughótel í Keflavík og látið þar greipar sópa. Innlent 13.10.2005 18:48
Strauk frá Stuðlum og er leitað Leit stendur yfir að 14 ára dreng sem strauk af meðferðarheimilinu á Stuðlum. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins strauk drengurinn síðastliðinn miðvikudag og hefur því verið týndur í tæpa viku, þegar þetta er skrifað. Innlent 13.10.2005 18:48
Dæmdur í 10 mánaða fangelsi Maður á fertugsaldri var dæmdur í tíu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir að hafa ráðist á konu, slegið hana í höfuðið og misþyrmt henni á gamlársdag í hitteðfyrra. Innlent 13.10.2005 18:48
Grunuðum ræningjum sleppt Karlmönnunnum tveimur sem lögregla handtók á miðnætti, grunaða um vopnað lyfjarán í Árbæjarapóteki í gær, hefur verið sleppt. Mennirnir, sem báðir hafa komið við sögu lögreglu áður, voru handteknir í heimahúsi og voru yfirheyrðir í dag en sleppt að þeim loknum og er málið er enn í rannsókn. Innlent 13.10.2005 18:48
Lögreglufréttir Innbrot í Sandgerði Þremur myndavélum, vídeóupptökuvél, sérríflösku og peningaveski var stolið úr húsi við Klapparstíg í Sandgerði að morgni sunnudags. Innlent 13.10.2005 18:48
Sprenging í kannabisinnflutningi Mikil sprenging hefur orðið í innflutningi á kannabisefnum á Bretlandseyjum. Að sögn breskra dagblaða er ástæðan sú að lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum settu kókaín og heróín sem algjör forgangsmál í byrjun síðasta árs. Innlent 13.10.2005 18:48
Átta með fíkniefni á Akureyri Átta menn innan við tvítugt voru teknir með fíkniefni í fórum sínum á Akureyri á laugardag. Innlent 13.10.2005 18:48
Vonar að börn sjá ekki myndbandið Móðir ungs manns sem lést eftir líkamsárás í Hafnarstræti segist ekki skilja hvers vegna fólk dreifi myndum af árásinni á Netinu. Hún vonar að börn sjái ekki þessar myndir. Innlent 13.10.2005 18:48
Lögregla yfirheyrir tvo vegna ráns Lögreglan í Reykjavík handtók um miðnætti tvo karlmenn sem grunaðir eru um vopnað lyfjarán í Árbæjarapóteki í gær. Mennirnir, sem báðir hafa komið við sögu lögreglu áður, voru handteknir í heimahúsi og verða yfirheyrðir í dag. Ræningjarnir réðust inn í apótekið um hádegisbil klæddir bláum samfestingum og með hettur á höfði, vopnaðir hnífum. Þeir náðu nokkru af lyfjum. Innlent 13.10.2005 18:48
Átta handteknir á Akureyri Átta manns voru handtekin á Akureyri í gærkvöldi og í nótt vegna fíkniefna í tveimur aðskildum málum. Fyrra málið kom upp um kvöldmatarleytið. Fernt var handtekið og hald lagt á tæki og tól til fíkniefnaneyslu sem og hass og amfetamín. Þeim var sleppt seint í gærkvöldi eftir yfirheyrslu og telst málið upplýst. Innlent 13.10.2005 18:48
Slasast eftir ofsahraðakstur Karlmaður um þrítugt var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala-háskólasjúkrahúss eftir bílveltu innanbæjar í Þorlákshöfn. Hann er ekki í lífshættu að sögn vakthafandi lækni. Innlent 13.10.2005 18:48
Eldur í skipinu Valur Eldur kom upp við stakkageymslu á millidekki í skipinu Vali GK-185 í Sandgerðishöfn upp úr klukkan átta í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 18:48
Ók á tvo ljósastaura Mikil mildi þykir að ekki varð stórslys þegar fólksbíl var ekið á tvo ljósastaura á Drottningarbraut á Akureyri í gærkvöldi. Tvennt var í bílnum og slapp það ómeitt en bíllinn er gjörónýtur eftir áreksturinn. Innlent 13.10.2005 18:48
Myndband af líkamsárás á Netinu Myndbandi með líkamsárás í Hafnarstræti í Reykjavík, sem leiddi til dauða ungs manns, er dreift á Netinu. Myndbandið er úr eftirlitsmyndavél lögreglunnar og var sönnunargagn í málinu gegn árásarmönnunum. Yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir þetta afar ósmekklegt. Innlent 13.10.2005 18:48
Þriggja tonna tjakki stolið Brotist var inn í fiskvinnslufyrirtæki á Reykjanesi í fyrrinótt og hvarf þjófurinn á brott með verkfærakistu á hjólum, rafsuðutæki, hátíðnisuðutæki og þriggja tonna tjakk. Innlent 13.10.2005 18:48
Vopnað rán í Árbæjarapóteki Vopnað rán var framið í Árbæjarapóteki um hádegisbil í dag. Tveir hettuklæddir menn í samfestingum vopnaðir hnífum komu inn í apótekið og ógnuðu starfsfólki án þess þó að meiða neinn. Þeir létu greipar sópa í lyfjaskápum apóteksins en komust ekki í peningakassa. Innlent 13.10.2005 18:48
Tókust á við lögreglumenn Lögreglumenn í Keflavík þurftu að beita piparúða á tvo ofstopamenn á veitingahúsi í bænum laust eftir miðnætti eftir snörp átök við þá. Við úðann dösuðust mennirnir svo lögregla kom járnum á þá og flutti þá í fangageymslur þar sem þeir sofa úr sér ölvímu. Einn lögreglumaður þurfti að leita læknis í kjölfar þess að annar mannanna sparkaði harkalega í hann. Innlent 13.10.2005 18:48
Lést í vélsleðaslysi Maður lést þegar hann fór fram af hengju á vélsleða á Landmannaleið um miðnætti á aðfaranótt föstudags. Innlent 13.10.2005 18:48
Fegurðardrottning tapar máli Fyrrverandi þátttakandi í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland.is tapaði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur máli sem hún höfðaði á hendur aðstandendum keppninnar og íslenska ríkinu. Stúlkan hafði tekið þátt í kynningu á torfærukeppni og slasast þegar hún keyrði yfir sandbing. Hún krafðist bóta upp á tæplega tvær milljónir króna. Innlent 13.10.2005 18:48
Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu Enn var brotist inn í íbúðarhús í Hafnarfirði í gær og þaðan stolið verðmætum. Nokkuð hefur verið um innbrot þar að undanförnu, gjarnan um hábjartan daginn, og stórir hlutir á borð við sjónvörp og tölvur borin út án þess að nokkur virðist taka eftir því. Fyrr í vikunni var heilli búslóð stolið úr bílskúr í Breiðholti þar sem hún var í geymslu. Innlent 13.10.2005 18:48